Kirsten Hjort skrifaði:
Er der ikke fejl i diagrammet? Mener at den korrekte farve til 2. linje (firkant med streg i) i diagram forklaring skal være 2 tråde tåge og ikke natur som I har noteret? Ellers passer det ikke til billedet eller til symetrien i striberne.
23.08.2018 - 00:16DROPS Design svaraði:
Hei Kirsten. Her hadde det skjedd en glipp i den danske oversettelsen, det er helt riktig at symbol nr 2 (firkant med strek) skal være 2 tråder tåke. Dette er nå rettet, takk for beskjed og god fornøyelse.
23.08.2018 - 07:58
Sanne skrifaði:
Ja tak en fed trøje
03.07.2018 - 21:37
Michela skrifaði:
Sportivo. Adatto per il tempo libero. Molto bello.
11.06.2018 - 14:42
Denim Crush#denimcrushsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-3 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 2,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um berustykki): Aukið er út til skiptis á undan og á eftir prjónamerki. Þ.e.a.s. í fyrstu umferð með útaukningu, aukið út um 1 lykkju á eftir hverju og einu af 8 prjónamerkjum, í annarri umferð með útaukningu, aukið út á undan hverju og einu af 8 prjónamerkjum o.s.frv. Aukið út á eftir hverju prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út á undan hverju prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 52-56-56-60-60-64 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með 1 þræði í litnum þoka og 1 þræði í litnum gallabuxnablár (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Nú er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn þar til stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 9 og 2 þræði í litnum þoka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-18-18-20-20-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 70-74-74-80-80-86 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Nú eru sett 8 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan), hoppið yfir 8-10-10-10-10-10 lykkjur, setjið næsta prjónamerki hér, setjið síðan næstu 6 prjónamerki með 9-9-9-10-10-11 lykkjur á milli merkja, nú eru 8-10-10-10-10-10 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið nú rendur eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8-9-11-13-16-17 sinnum og í 4. hverri umferð 2-2-2-1-0-0 sinnum (= alls 10-11-13-14-16-17 umferðir með útaukningum) = 150-162-178-192-208-222 lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 2-6-6-2-2-4 lykkjur jafnt yfir = 152-168-184-194-210-226 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu er haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er mynsturteikning endurtekin á hæðina. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 22-24-26-28-31-34 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 32-36-40-42-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 44-48-52-55-61-67 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 32-36-40-42-44-46 lykkjur á þráð og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 22-24-26-27-30-33 lykkjur sem eftir eru í umferð (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-108-116-126-138-150 lykkjur. Haldið áfram hringinn með rendur í A.1 þar til stykkið mælist ca 21-22-23-24-25-26 cm (nú er eftir 1 umferð + 6 cm með stroffi), en stillið rendur af í mynstri A.1 þannig að endað sé á stað í mynstri þar sem næsta umferð er ekki með litnum sæblár eða natur. Prjónið síðan stykkið til loka með 1 þræði í litnum þoka og 1 þræði í litnum gallabuxnablár (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-22-22-22 lykkjur jafnt yfir = 116-124-136-148-160-172 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 32-36-40-42-44-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 9 og takið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-46-50-52-54 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt á milli 6-6-6-8-8-8 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram með mynstur A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-4-2 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6-5-4-3-3-3 cm millibili alls 6-7-8-10-10-11 sinnum = 26-28-30-30-32-32 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist ca 36-35-35-34-33-33 cm - (nú er eftir 1 umferð + 4 cm með stroffi), en stillið af rendur í mynstri A.1 þannig að endað sé á stað í mynsturteikningu þar sem næsta umferð er ekki með litnum sæblár eða natur. Prjónið síðan stykkið til loka með 1 þræði í litnum þoka og 1 þræði í litnum gallabuxnablár (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-32-32 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 8. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-40-40-39-38-38 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #denimcrushsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.