Rosa skrifaði:
¡ Qué pena que no esté en español !
19.08.2018 - 15:08Heather skrifaði:
Loved the pattern until I saw they were 2 strands of AIR. WHY....? I hate spending double $$$ when the pattern states 2 strands. I stay clear. Lets hope they are not all 2 strands...aghhhh
20.07.2018 - 14:13
Eli Rognstad Bakken skrifaði:
Lekker genser!
13.06.2018 - 14:51
Silke skrifaði:
Schlicht und elegant in der Musterkombination. Auch die Form schmeichelt.
12.06.2018 - 21:29
Anne skrifaði:
Must have - love the pattern.
06.06.2018 - 20:20
Clover#cloversweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með öldumynstri og perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 8,3. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 8. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum jafnt óðum eru prjónaðar í þessu dæmi ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í perluprjóni á ermum og sléttprjóni á framstykki/bakstykki. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman = 1 lykkja (færið prjónamerkið til á undan þessari lykkju). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 50-50-52-56-58-60 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-4-6-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 56-56-60-60-64-60 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða fara beint áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 6-6-6-7-7-7 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 12-12-12-14-14-14 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 18-18-18-21-21-21 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-28-28-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-30-35-35-35 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-36-42-42-42 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið slétt að miðju að aftan. Snúið, herðið á þræði og prjónið síðan 10 lykkjur brugðið fram hjá merkiþræði, snúið. Byrjið næstu umferð (þ.e.a.s. í berustykki) hér: BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptingu á milli ermi og bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 9-9-11-11-13-11 nýjar lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-11-11-13-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi). Næsta umferð er prjónuð þannig: Umferðin byrjar við fyrsta prjónamerki, í skiptingunni á milli ermi og bakstykkis. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 17 lykkjur framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-20-22 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem var útskýrð að ofan). ATH: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 (= 21 lykkjur) yfir A.1. Endurtakið A.2 á hæðina til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 180-196-208-216-228-240 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, án útaukninga, þar til stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Næsta umferð er prjónuð í mynstri og sléttprjóni eins og áður, þannig: Prjónið 50-54-57-60-63-68 lykkjur í sléttprjóni (= á bakstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram í sléttprjóni og mynstri eins og áður yfir næstu 55-59-63-67-71-77 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 1-1-2-3-4-5 lykkjur í sléttprjóni (= á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 114-122-130-142-154-170 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjum og látið prjónamerkin fylgja áfram í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri A.2. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-26-26 cm frá þar sem stykkið skiptist upp (ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 130-140-148-162-176-194 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón nr 8. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 37-41-43-43-45-45 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna nr 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 41-45-47-49-53-55 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 lykkjur og byrjið umferð hér. Prjónið perluprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-3-2-2 cm millibili alls 7-8-9-9-11-11 sinnum = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 36-34-34-32-32-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykki). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 5 lykkjur jafnt yfir = 32-34-34-36-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Ermin mælist ca 41-39-39-37-37-35 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón nr 8. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cloversweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.