DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Miss Moss

Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og perluprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-1
DROPS Design: Mynstur ai-166
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-500-550-650 litur 12, mosagrænn

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stykkið/sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 8,3.
Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 8. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum jafnt óðum eru prjónaðar í þessu dæmi ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (= ekki gat) nema á framstykki, þar er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat).
Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur (þ.e.a.s. í perluprjóni á ermi, sléttprjón á bakstykki og í mynstri/sléttprjón á framstykki).

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman = 1 lykkja (færið prjónamerkið til á undan þessari lykkju).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.
Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 50-50-52-56-58-60 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-4-6-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 56-56-60-60-64-60 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða fara beint áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 6-6-6-7-7-7 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 12-12-12-14-14-14 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 18-18-18-21-21-21 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-28-28-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-30-35-35-35 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur að miðju að aftan, prjónið síðan 10 lykkjur brugðið fram hjá merkiþræði, snúið. Byrjið næstu umferð (þ.e.a.s. í berustykki) hér:

BERUSTYKKI:
Setjið 2 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptingu á milli ermi og bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 9-9-11-11-13-11 nýjar lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-11-11-13-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi).
Næsta umferð er prjónuð þannig: Umferðin byrjar við fyrsta prjónamerki, í skiptingunni á milli ermi og bakstykkis. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 17 lykkjur – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð = framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt.
Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-20-22 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem var útskýrð að ofan). ATH: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru eftir 2-4-5-6-3-5 útaukningar fyrir laskalínu. Prjónið síðan A.2 (= 43-43-43-43-51-51 lykkjur) yfir A.1, síðustu útaukningarnar eru prjónaðar jafnóðum í sléttprjóni hvoru megin við A.2. Mynsturteikning A.2 er endurtekin á hæðina til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 176-192-204-212-224-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, án útaukninga, þar til stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 50-54-57-60-63-68 lykkjur í sléttprjóni (= á bakstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 4-6-8-10-8-11 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.2 (= 43-43-43-43-51-51 lykkjur) og prjónið 4-6-8-10-8-11 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 1-1-2-3-4-5 lykkjur (= á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 110-118-126-138-150-166 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og látið prjónamerkin fylgja áfram í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri A.2. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-26-26 cm frá þar sem stykkið skiptist upp (ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 126-136-144-158-172-190 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón nr 8. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 37-41-43-43-45-45 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna nr 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-4-4-6-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 41-45-47-49-53-55 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 lykkjur og byrjið umferð hér. Prjónið perluprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-3-2-2 cm millibili alls 7-8-9-9-11-11 sinnum = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 36-34-34-32-32-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykki). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 5 lykkjur jafnt yfir = 32-34-34-36-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm.
Ermin mælist ca 41-39-39-37-37-35 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón nr 8.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Wanda wrote:

Bonjour, Le dos se tricote-t-il en jersey ou aussi en points ajourés ? D'après les explications, il semblerait que ce soit plutôt en jersey, mais cela ne me semble pas très clair. Merci beaucoup

07.03.2024 - 16:21

DROPS Design answered:

Bonjour Wanda, tout à fait, vous avez bien compris, le dos se tricote en jersey, pas en point ajouré. Bon tricot!

08.03.2024 - 08:03

country flag Herta wrote:

Hallo, ich möchte gerne diesen Pullover stricken, aber ich habe ein Problem mit der Anzahl der Maschen für die Halsblende. Ich verwende das Garn Drops Air zweifädig und mit der angegebenen Nadelstärke von 7 ist die Maschenprobe nicht richtig. Mit Nadelstärke 8 funktioniert die Probe besser, aber wenn ich nun die Halsblende mit 50 Maschen (laut Anleitung für Größe S) anschlage ist die Halsöffnung deutlich zu eng um einen Kopf durchstecken zu können. Wo ist hier mein Denkfehler?

17.11.2023 - 11:11

DROPS Design answered:

Liebe Herta, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollte die Maschenanzahl anpassen, ca 42 cm (mit Maschenprobe 12 M für 10 mit Ndln Nr 7) passen ganz schön um den Hals, sollte aber die Anschlagskante etwas zu eng sein, dann benutzen Sie am besten grösseren Nadeln, damit sie etwas locker und elastisch wird. Viel Spaß beim stricken!

17.11.2023 - 14:52

country flag K Goodin wrote:

Lovely...merci!..from Colorado

04.02.2022 - 20:11

country flag AUDRAIN wrote:

Bonjour, je mesure 1.70m et suis mince, ma taille est entre 36 et 38, combien de pelotes je dois commander svp?merci

30.09.2021 - 10:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Audrain, mesurez un pull similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma, c'est la méthode la plus simple pour trouver sa taille. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

01.10.2021 - 07:27

country flag Debora wrote:

Buongiorno, vorrei sapere perchè, una volta finito di lavorare l'alzata, il giro poi non comincia al centro dietro ma spostato di lato. Grazie mille!

13.03.2020 - 14:39

DROPS Design answered:

Buongiorno Debora. Dopo l’alzata, l’inizio del giro viene spostato nel passaggio tra la manica e il dietro per rendere meno evidente il cambio del giro. Buon lavoro !

14.03.2020 - 10:50

country flag Line wrote:

Jeg har lige strikket en str S til min datter og havde ingen problemer hverken med str eller med opskriften, den passer helt perfekt. Nu skal jeg igang med en str M til mig selv.

05.01.2020 - 23:08

country flag Annette wrote:

Der er fejl i maskeantallet, når ærmer skal skilles ud fra hele sættet. Maskerne stemmer med udtagninger i raglan, men når der skal strikke ærme for sig og krop for sig, stemmer maskerne ikke!

15.12.2019 - 18:26

country flag Calina wrote:

Jeg er gået i gang med denne trøje. Udtagningerne på ærmerne driller mig, da ærmet skal strikkes i perlestrik og en udtagning på ærmet skal jo strikkes drejet ret. På den måde vil det jo ikke passe med perlestrikken. Hvad skal jeg gøre?

05.03.2019 - 09:48

DROPS Design answered:

Hei Calina. Kastene på ermene strikkes vridd rett eller vridd vrang slik at det passer med perlestrikken. God fornøyelse

12.03.2019 - 14:42

country flag Mia Merethe wrote:

Jeg lurer på etter økningen til raglan står det at jeg skal strikke videre etter mønster A2, Men på mønster er det kun en maske på starten jeg har 5 etter økningen. Skal jeg fortsette med de 5 eller hvordan gjøres det? På forhånd takk :)

03.03.2019 - 20:36

DROPS Design answered:

Hei Mia. Du begynner å strikke A.2 før økningene til raglan er ferdig: Når A.1 er strikket ferdig i høyden gjenstår det 2-4-5-6-3-5 økninger til raglan. Du strikker A.2 over de samme maskene som du striket A.1, og de økte maskene strikkes fortløpende i glattstrikk på hver side av A.2. God fornøyelse

04.03.2019 - 15:00

country flag Helle Rothausen wrote:

Hej, jeg vil strikke denne flotte trøje :) Har der været bemærkninger fra andre om fejl i opskriften eller måske steder der er svære at forstå ? Mvh Helle

04.02.2019 - 21:14

DROPS Design answered:

Hej Helle, nej der har kun været spørgsmål til størrelserne. Du finder målene på trøjen i måleskitsen nederst i opskriften. Her under kommentarer kan du selv læse hvad andre har spurgt om eller kommenteret :)

06.02.2019 - 10:37