Pilar skrifaði:
Si se hace este modelo solo con una hebra , ¿como se calculan los puntos que hay que tejer? O sería con los mismo que indica el patrón?
14.10.2018 - 16:50DROPS Design svaraði:
Hola Pilar. Con sólo un hilo vas a tener que trabajar con aguja de 4 mm y la tensión va a ser diferente, no como en el patrón. Por eso no se pueden usar los cálculos del patrón. Para hacer los nuevos cálculos tienes que primero hacer una muestra para calcular cuántos puntos/filas tienes en un cuadrado de 10x 10 cm y después aplicarlo a las medidas del jersey.
14.10.2018 - 17:31
Katarina skrifaði:
Hei, kan det være feil i oppskriften her: " Fell slik på ca hver 6.-4.-4.-3.-3.-3.cm totalt 8-10-11-12-13-14 ganger "? Skal man kanskje felle hver 6. rad, ikke cm? Hvis ikke, så skal man felle over 48 cm i størrelsen S og det blir for langt, ikke sant?
27.09.2018 - 11:20DROPS Design svaraði:
Hei Katarina. Ja det stemmer, her hadde det skjedd en feil. Du skal felle på ca hver 6-4-4-3-3-3 omgang (Ikke cm). Det er nå rettet i oppskriften, takk for beskjed og god fornøyelse.
02.10.2018 - 07:53
Sivet skrifaði:
Bonjour, effectivement le convertisseur en 1 fil fonctionne mais la quantité indiqué est donc fausse vu qu'il faut que je le tricote en 2 fils ? combien de gramme dois-je prendre pour tricoté en puna ? en 1 fil dans le convertisseur sa me met le double du fil sky d'origine ... donc si je doit prendre encore le double c'est énormément de laine !
07.09.2018 - 09:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Sivet, la quantité indiquée est juste, il vous faudra le même métrage en SKy que dans une autre qualité, par ex. 350 g Sky = 7 pelotes de 50 g x 190 m= 1330 m / 110 m la pelote de Puna = 13 pelotes (en arrondissant) soit 650 g. Retrouvez la méthode de calcul ici - vous tricotez Sky en double, vous tricoterez ainsi Puna en double également, pensez juste à bien vérifier ce que votre échantillon est juste. Bon tricot!
07.09.2018 - 13:46
Sivet skrifaði:
Bonjour, votre convertisseur ne fonctionne pas sur se modèle. J'aimerais savoir si je peut le tricoté en puna ? et cb de pelote il me faudrait ?
01.09.2018 - 11:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Sivet, le convertisseur fonctionne, mais sélectionnez bien "1 fil" car vous allez remplacer Sky par une autre qualité du groupe B et non par 2 fils d'une autre qualité (correspondance effectivement impossible). Il vous faudra alors toujours tricoter avec 2 fils Puna par exemple. Bon tricot!
04.09.2018 - 11:25Maritza skrifaði:
Hola podrias traducir este patrón al español. Muchas gracias
30.07.2018 - 01:55DROPS Design svaraði:
Hola Maritza. Durante el agosto todos los patrones publicados de la nueva colección estarán traducidos al español.
31.07.2018 - 12:03
Irena skrifaði:
Mam nadzieję że opis ukaże się również w języku polskim. Przepiękny sweterek!
20.06.2018 - 18:56
Carmen skrifaði:
Muy bonito y muy bonita la lana
06.06.2018 - 23:08
Forward#forwardsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferð. Stærð S – XXXL.
DROPS 195-28 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um mynsturteikningu A.1 og A.2). LASKALÍNA (á ermum): Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir prjónamerki á ermum þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki á ermi, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Endurtakið á hinni erminni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-60-64-68-72-72 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (merkir skiptingu á milli vinstri ermi og bakstykkis). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Nú er prjónað stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í hring í 4 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 25-25-25-29-29-29 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (merkir skiptingu á milli bakstykkis og hægri ermi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 5-5-7-5-7-7 lykkjur og aukið jafnframt út um 1-2-2-2-1-2 lykkjur jafnt yfir, setjið eitt prjónamerki hér (merkir skiptingu á milli hægri ermi og framstykkis), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 25-25-25-29-29-29 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (merkir skiptingu á milli framstykkis og vinstri ermi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 5-5-7-5-7-7 lykkjur og aukið jafnframt út um 1-2-2-2-1-2 lykkjur jafnt yfir = 62-64-68-72-74-76 lykkjur. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið nú mynstur þannig: * Prjónið A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir fyrstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt (= miðjulykkja á bakstykki/framstykki), prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, (prjónamerki er staðsett hér), prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 4-5-7-5-6-7 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu), 1 lykkja slétt, (prjónamerki er staðsett hér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Haldið áfram hringinn með mynstur svona og aukið út fyrir LASKALÍNA (á ermum) – sjá útskýringu að ofan, í annarri hveri umferð þar til A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Nú hefur verið aukið út um 2 lykkjur í A.1 og 2 lykkjur í A.2 (= 8 lykkjur fleiri) og auknar hafa verið út 2 lykkjur fyrir laskalínu hvoru megin við ermar (= 8 lykkjur fleiri) = 78-80-84-88-90-92 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: * Prjónið áferð eins og áður yfir 14-14-14-16-16-16 lykkjur í A.1, prjónið A.3 (= 1 lykkja) yfir miðjulykkju á bakstykki/framstykki, prjónið áferð eins og áður yfir 14-14-14-16-16-16 lykkjur í A.2 (prjónamerki er staðsett hér), prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu), prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja slétt á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu), 1 lykkja slétt, (prjónamerki er staðsett hér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hafa verið auknar út 2 lykkjur í A.3 á framstykki/bakstykki (= 4 lykkjur fleiri) og aukið hefur verið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við hvora ermi (= 4 lykkjur fleiri) = 86-88-92-96-98-100 lykkjur. Haldið áfram hringinn með mynstur svona og aukið út fyrir laskalínu (á ermum) í annarri hverri umferð 12-14-15-18-19-20 sinnum til viðbótar (= alls 15-17-18-21-22-23 lykkjur fleiri hvoru megin við ermi frá byrjun á berustykki) og haldið áfram með A.3 og aukið út hvoru megin við A.3 í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 13-13-15-17-21-25 sinnum til viðbótar (= alls 14-14-16-18-22-26 sinnum frá fyrstu umferð í A.3). ATH: Í hvert skipti sem aukið er út hvoru megin við A.3 eru prjónaðar 2 lykkjur fleiri í áferð á milli uppslátta. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 186-196-212-236-258-280 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með áferð á fram- og bakstykki og sléttum lykkjum á ermum þar til stykkið mælist 25-27-29-31-33-35 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 57-57-61-69-77-85 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 36-41-45-49-52-55 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 9 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 57-57-61-69-77-85 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 36-41-45-49-52-55 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 132-132-140-156-172-188 lykkjur. Haldið síðan áfram hringinn með áferð. Yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum er einnig prjónað með áferð þannig að áferðamynstrið gangi jafnt upp alla leið hringinn á fram- og bakstykki. Þegar stykkið mælist 30 cm í öllum stærðum er fellt af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Peysan mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-41-45-49-52-55 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 7 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 9 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 45-50-54-58-61-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju 9 lykkjur undir ermi. Haldið áfram með sléttar lykkjur hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-3-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca 6.-4.-4.-3.-3.-3. hverri umferð alls 8-10-11-12-13-14 sinnum = 29-30-32-34-35-36 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 36-35-34-32-30-29 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-4-4-6-7-8 lykkjur jafnt yfir = 32-34-36-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 40-39-38-36-34-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forwardsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.