Francesca skrifaði:
Buongiorno, nel diagramma A1 al quinto giro (quello successivo al giro in cui si fa 2 dritti assieme e un gettato) i gettati si lavorano a dritto normale o ritorto? grazie
01.05.2022 - 18:32DROPS Design svaraði:
Buongiorno Francesca, il 5° giro è lavorato tutto a diritto. Buon lavoro!
01.05.2022 - 23:25
Barbara skrifaði:
Fantastycznie rozpisany wzór 👍. Wykonanie tego modelu było samą przyjemnością. Będę wracać do niego również jako bazy do innych swetrów. Polecam wszystkim. Dziękuję Drops 😊
24.08.2021 - 07:12
Maila Laiho skrifaði:
Om jag vill använda Muskat garn till denna och har storlek L, efter vilken storlek skall jag sticka?
13.07.2019 - 12:48DROPS Design svaraði:
Du bör använda ett garn som hör till samma garngrupp (C) som Paris. Muskat är ett tunnare garn, så då kommer inte stickfastheten att stämma då denna modell är designad för ett tjockare garn.
22.01.2020 - 18:09
Claudine Le skrifaði:
The pattern Diagram A.1 is confusing... do not know what to do? please explain, thank you
21.05.2019 - 16:39DROPS Design svaraði:
Dear Claudine Le, you will find how to read diagrams here, just start frm the bottom corner on the right side and work every round towards the left as explained under diagram key. Happy knitting!
22.05.2019 - 08:21
Faiza skrifaði:
Hei Hvor mye ekstra garn bør jeg beregne hvis jeg har lyst til å strikke den i str. S med lange ermer?
05.08.2018 - 22:12DROPS Design svaraði:
Hej, du skal nok regne med ca 3 nøgler mere :)
14.08.2018 - 16:05
Yvonne skrifaði:
Hallo, ik kom er niet uit bij het opzetten van de nieuwe steken bij het mouwtje. Doe je dat in de laatste steken van de steken op de draad (horizontaal dus) of in de laatste steek van de steek op de draad en de bovenliggende steken (verticaal dus)?
24.07.2018 - 16:44DROPS Design svaraði:
Dag Yvonne, Deze nieuwe steken komen onder de oksel en je zet ze dus horizontaal op. Daarna brei je de mouw in de rondte.
26.07.2018 - 11:19
Susi skrifaði:
En la talla M, en el canesú , al aumentar quedan 97 puntos, pero al hacer el elástico: 1 punto derecho, 1 punto revés...al finalizar la vuelta quedan 2 puntos juntos del derecho....¿Hay algún error en los números?
27.06.2018 - 22:59DROPS Design svaraði:
Hola Susi. Como en el siguiente dibujo, después del punto elástico necesito un número de puntos par, puedes comenzar con el número par el elástico también. De todas formas, tu pregunta ha sido enviada al departamento de diseño para ver si hay algún error.
08.07.2018 - 18:06
Monica skrifaði:
Mi piace il modello e il colore. Simpatica, sfiziosa, estiva.
23.12.2017 - 08:04
Mindy#mindytop |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónaður toppur með stroffi, gatamynstri og hringlaga berustykki, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 190-18 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 8,2. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverri lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og ermar): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 82-84-88-92-96-102 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 10-13-14-18-22-23 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 92-97-102-110-118-125 lykkjur. Í næstu umferð er prjónað stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff í 4-5-6-7-7-8 cm. Í næstu umferð er prjónað A.1 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 40-45-50-58-62-65 lykkjur jafnt yfir = 132-142-152-168-180-190 lykkjur. Prjónið stroff eins og áður í 4-5-6-7-7-8 cm, prjónið síðan A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 40-45-50-58-62-65 lykkjur jafnt yfir = 172-187-202-226-242-255 lykkjur. ATH! Endið umferð með A.1 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og 2 lykkjur slétt saman, prjónið 0-1-0-0-0-1 lykkjur slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið stroff eins og áður í 4-5-6-7-7-8 cm, prjónið síðan A.1, í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 40-45-50-58-62-65 lykkjur jafnt yfir = 212-232-252-284-304-320 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 31-34-37-41-45-49 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-48-52-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 62-68-74-82-90-98 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 31-34-37-41-45-49 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og kantar á ermum er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur á hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 7-7-6½-5-7-6½ cm millibili alls 5 sinum = 156-168-184-200-220-240 lykkjur. Þegar stykkið mælist 35-34-33-32-34-33 cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24-24-28-30-34-36 lykkjur jafnt yfir = 180-192-212-230-254-276 lykkjur. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 3 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Toppurinn mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. KANTUR Á ERMI: Setjið til baka 44-48-52-60-62-62 lykkjur af þræði á stuttan hringprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-54-60-68-72-74 lykkjur. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 3 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mindytop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.