Laura skrifaði:
Quanti gomitoli bisogna ordinare x una taglia m
29.06.2018 - 16:44DROPS Design svaraði:
Buonasera Laura, per una taglia M servono 350g. Ogni gomitolo di Cotton Light è di 50g, per cui ne servono circa 7. Buon lavoro!
29.06.2018 - 21:12
Maribel Muñoz skrifaði:
¿Realmente este modelo está tejido con Cotton Light? Estoy intentando hacerlo y es imposible conseguir la tensión indicada con este hilo, es demasiado grueso. He tratado de hacerlo con un ganchillo más fino, pero es muy difícil, el hilo se abre en hebras y se engancha todo el tiempo. ¿No sería Muskat, por ejemplo, un hilo más adecuado? Gracias.
18.06.2018 - 22:28DROPS Design svaraði:
Hola Maribel. La tensión y el número de ganchillo son solo una recomendación. Tienes que hacer pruebas para encontrar la tensión adecuada para el modelo. Es cierto que este hilo tiene la tendencia a separarse debido a las características suaves y sedosas de las hebras y hay que tener cuidado trabajando con ganchillo. Si, puedes trabajar este modelo con Muskat. Los dos son del misma grupo de lanas y se sustituyen fácilmente.
23.06.2018 - 20:12Camelia skrifaði:
Love this tank! Probably name it "Flower Lace Tank"?
28.12.2017 - 13:03
Rumpelstiltzchen skrifaði:
Very nice combination of geometric and floral elements.
28.12.2017 - 11:20
Ipanema#ipanematop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur með smáramynstri og gatamynstri. Toppurinn er heklaður úr DROPS Cotton Light. Stærð S - XXXL.
DROPS 190-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR-1: Fyrsta umferð í hverju blaði (= 1 stuðull, 3 loftlykkjur, 1 stuðull, 3 loftlykkjur, 1 stuðull, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í sama stuðul) heklið í miðju tvíbrugðna stuðul frá fyrra blaði – sjá A.2. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Fyrsti stuðull í byrjun á umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju í byrjun á umferð. Fyrsta fastalykkja í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er smáramynstur heklað neðst frá hlið að hlið, síðan er toppurinn heklaður upp og hringinn upp fyrir handveg. Þar skiptist stykkið og framstykki og bakstykki er heklað hvort fyrir sig. TOPPUR: Heklið 12 loftlykkjur (meðtaldar 5 loftlykkjur til að snúa við með) með Cotton Light með heklunál 3,5. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1. Haldið áfram að hekla eftir A.1 þar til hekluð hefur verið 1 mynstureining á hæðina. Endurtakið síðan umferð 7 til 12 þar til stykkið mælist ca 100-106-112-124-136-148 cm – endið eftir 12. umferð. Saumið smárakantinn í hring (saumur = hlið á topp). Heklið síðan topp út og í hring, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið upp 198-210-222-246-270-294 stuðla um stuðla frá langhlið á A.1. Heklið síðan eftir A.3 – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2. Haldið áfram með þetta mynstur upp á við. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun á stykki og 1 eftir 99-105-111-123-135-147 stuðla (= hliðar). Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 stuðlahóp (= 3 stuðlar eða 1 stuðull + 2 loftlykkjur) í hvorri hlið, fækkið lykkjum á undan báðum prjónamerkjum. Mynsturteikning A.4 sýnir hvernig lykkjum fækkar í mynstri. Endurtakið úrtöku með 4 cm millibili, fækkað er til skiptis á undan og á eftir prjónamerkjum í hliðum, þ.e.a.s. í fyrsta skipti er fækkað um 1 stuðlahóp á undan báðum prjónamerkjum, í annað skipti er fækkað um 1 stuðlahóp á eftir báðum prjónamerkjum. Fækkið alls 6 sinnum í hvorri hlið á topp = 162-174-186-210-234-258 stuðlar/loftlykkjur. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, passið uppá að næsta umferð sem á að hekla sé fyrsta umferð í A.3, skiptið stykkinu fyrir framstykki og bakstykki. Klippið frá. FRAMSTYKKI: Hoppið yfir fyrstu 6-6-9-12-18-21 stuðla, heklið A.3 yfir næstu 70-76-76-82-82-88 stuðla (= 23-25-25-27-27-29 mynstureiningar af A.3 + 1 stuðull). Snúið og heklið til baka. Haldið áfram með þetta mynstur upp úr. Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm er einungis heklað yfir fyrstu 19-22-22-22-22-25 stuðla/loftlykkjur í umferð = hægri öxl. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, klippið frá og festið enda. Heklið vinstri öxl alveg eins, þ.e.a.s. heklið einungis yfir síðustu 19-22-22-22-22-25 stuðla/loftlykkjur í umferð. Þeir 32-32-32-38-38-38 stuðlar/loftlykkjur sem ekki er heklað yfir = hálsmál. Stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. BAKSTYKKI: Hoppið yfir fyrstu 11-11-17-23-35-41 stuðla á eftir framstykki, heklið A.3 yfir næstu 70-76-76-82-82-88 stuðla (= 23-25-25-27-27-29 mynstureiningar af A.3 + 1 stuðull). Snúið og heklið til baka (nú eru eftir 11-11-17-23-35-41 stuðull í hvorri hlið sem ekki er heklað í (= handvegur). Haldið áfram með A.3 upp úr. Þegar stykkið mælist 30-32-34-36-38-40 cm skiptist bakstykkið þannig að það verður klauf við miðju að aftan. HÆGRA BAKSTYKKI: Heklið nú einungis yfir fyrstu 35-38-38-41-41-44 stuðla, heklið A.3 yfir fyrstu 33-36-36-39-39-42 stuðla/loftlykkjur og endið með 2 stuðla við miðju að aftan. Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm heklið einungis yfir fyrstu 19-22-22-22-22-25 stuðla/loftlykkjur í umferð = hægri öxl. Þeir 16-16-16-19-19-19 stuðlar sem ekki er heklað yfir = háls. Haldið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, klippið frá og festið enda. VINSTRA BAKSTYKKI: Heklið nú einungis yfir síðustu 35-38-38-41-41-44 stuðla, heklið 1 stuðul við miðju að aftan, heklið A.3 yfir næstu 33-36-36-39-39-42 stuðla/loftlykkjur og endið með 1 stuðul að hlið. Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm heklið einungis yfir síðustu 19-22-22-22-22-25 stuðla/loftlykkjur í umferð = vinstri öxl. Þeir 16-16-16-19-19-19 stuðlar sem ekki er heklað yfir = háls. Haldið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma. HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Byrjið neðst niðri í handveg. Heklið 1 fastalykkju, * hoppið fram ca 2 cm, heklið 7 stuðla um næsta stuðul, hoppið fram ca 2 cm, heklið 1 fastalykkju um næsta stuðul *, endurtakið frá *-* og endið með einni keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð. Heklið alveg eins í kringum hinn handveginn. HEKLAÐUR KANTI Í KRINGUM HÁLSMÁL: Byrjið við miðju að aftan. Heklið 1 fastalykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið fram ca 1 cm, heklið 1 fastalykkjur *, endurtakið frá *-*. FRÁGANGUR-2: Saumið eina tölu efst í klauf við miðju að aftan, hneppið tölu í gegnum 2 stuðla. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ipanematop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.