Charlotte skrifaði:
Jeg har lige hæklet nettet og har kun brugt 1,5 ngl! Hæklefasthed og str er som i opskriften.
30.04.2018 - 12:01DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, det lyder flot! Har du brugt DROPS Muskat?
30.04.2018 - 15:54
IsaHlnt skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas cette phrase ni en Francais ni en Anglais au sujet du fond de filet :TOURS 5-10: Continuer à crocheter et à augmenter de cette façon, crocheter 1 maille en plus avant chaque augmentation, à chaque tour.
04.04.2018 - 23:11DROPS Design svaraði:
Bonjour IsaHlnt, au 5ème tour, crochetez: (1 ms dans les 3 premières ms, 2 ms dans la m suiv), au 6ème tour, vous aurez 4 ms, 1 augm, au 7ème tour 5 ms, 1 augm et ainsi de suite, c'est-à-dire que vous avez 1 ms en plus entre chaque augmentation à chaque tour. Bon crochet!
05.04.2018 - 08:56
Sylvia skrifaði:
Wird mein erstes Häkelobjekt seit Jahren. Farbe passt auch.:)))
21.01.2018 - 19:24
Katrin skrifaði:
I had done like Lone G!
12.12.2017 - 19:01
Lone G skrifaði:
Wonderful! have been looking for this for years. :-)
11.12.2017 - 17:41
Sugar Mesh#sugarmeshbag |
|
![]() |
![]() |
Hekluð taska / net með loftlykkjubogum. Stykkið er heklað neðan frá og upp úr DROPS Muskat.
DROPS 187-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (á við um botn og kant): Skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Skiptið út fyrsta hálfa stuðul með 2 loftlykkjur og endið umferð með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA / NET - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið byrjar með hring með fastalykkjum í botni, síðan eru heklaðir loftlykkjurbogar sem mynda netið. Að lokum er heklaður kantur með handfangi í hvorri hlið. BOTN: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 og Muskat, tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. LESIÐ LEIÐBEININGAR. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 lykkjur. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 lykkjur. UMFERÐ 4: Heklið * 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 lykkjunum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 lykkjur. UMFERÐ 5-10: Haldið áfram að hekla og auka út svona, hekluð er 1 lykkja fleiri í hverri útaukningu í hverri umferð. Eftir 10. umferð eru 60 lykkjur í umferð og hringurinn mælist ca 10 cm að þvermáli. NET: Heklið síðan loftlykkjuboga sem mynda netið. Heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur, * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju um 2 fyrstu loftlykkjur í umferð = 30 loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur, setjið eitt prjónamerki í þessar 3 loftlykkjur (= 1. loftlykkjubogi). Þetta er gert til að auðveldara sé að sjá hvar 1 loftlykkjubogi er þegar heklað er áfram. Heklið síðan * 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga. UMFERÐ 3: Heklið 4 loftlykkjur, færið prjónamerkið að þessum loftlykkjum (= 1 loftlykkjubogi). Heklið síðan * 1 fastlykkju um næsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga. UMFERÐ 4: Heklið 5 loftlykkjur, færið prjónamerkið að þessum loftlykkjum (= 1 loftlykkjubogi). Heklið síðan * 1 fastlykkju um næsta loftlykkjuboga, 5 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga. UMFERÐ 5: Heklið 6 loftlykkjur, færið prjónamerkið að þessum loftlykkjum (= 1 loftlykkjubogi). Heklið síðan * 1 fastlykkju um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga. UMFERÐ 6: Heklið 7 loftlykkjur, færið prjónamerkið að þessum loftlykkjum (= 1 loftlykkjubogi). Heklið síðan * 1 fastlykkju um næsta loftlykkjuboga, 7 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga. UMFERÐ 7: Heklið 8 loftlykkjur, færið prjónamerkið að þessum loftlykkjum (= 1 loftlykkjubogi). Heklið síðan * 1 fastlykkju um næsta loftlykkjuboga, 8 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga. UMFERÐ 8-16: Heklið eins og umferð 7 (allir loftlykkjubogar hafa 8 loftlykkjur). UMFERÐ 17-18: Heklið eins og umferð 6 (allir loftlykkjubogar hafa 7 loftlykkjur). UMFERÐ 19-20: Heklið eins og umferð 5 (allir loftlykkjubogar hafa 6 loftlykkjur). UMFERÐ 21-22: Heklið eins og umferð 4 (allir loftlykkjubogar hafa 5 loftlykkjur), en endið umferð 22 með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í 1. loftlykkjuboga í byrjun á umferð. KANTUR MEÐ HANDFANGI: UMFERÐ 1: Heklið 5 hálfa stuðla um hvern loftlykkjuboga frá fyrri umferð = 150 hálfir stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul = 150 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 25 fastalykkjum, heklið 75 loftlykkjur (= handfang), hoppið yfir 25 fastalykkjum, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 50 fastalykkjum, heklið 75 loftlykkjur (= handfang) og hoppið yfir 25 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 25 fastalykkjum. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 25 fastalykkjum, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 75 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 50 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 75 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 25 fastalykkjum. UMFERÐ 5: Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 25 fastalykkjum, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 75 loftlykkjum (= handfang), 1 keðjulykkja í hverja af næstu 50 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 75 fastalykkjum (= handfang), 1 keðjulykkja í hverja af síðustu 25 fastalykkjum. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sugarmeshbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.