DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 200-35
DROPS Design: Mynstur e-289
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Mál: Ummál: 75 cm.
Lengd án axlarólar: ca 42 cm.
Axlaról ca 38 cm.

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 11, skærgulur

HEKLFESTA:
24 stuðlar á breidd og 13 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6 (A.1, A.3 og A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar).

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur):
1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju/stuðul/tvíbrugðinn stuðul o.s.frv. á breiddina. Passið uppá að lykkjan sem gerir loftlykkjuna dragist aðeins upp á heklunálina þannig að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast þá kemur mynstrið til með að dragast saman í þeim einingum þar sem eru margar loftlykkjur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA / NET - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur):

TASKA:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið mynstur hringinn þannig: A.1 (sýnir hvernig umferðin byrjar), heklið A.2 alls 10 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 og A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 80 stuðlar í umferð. Haldið síðan áfram með stuðla og útaukningu alveg eins, þ.e.a.s. aukið er út um 10 stuðla í hverri umferð og það verður 1 stuðull fleiri á milli hverra útaukninga fyrir hverja umferð sem er hekluð. Þegar heklaðar hafa verið 15 umferðir með stuðlum eru 150 stuðlar í umferð. Heklið 1 umferð til viðbótar þar sem aukið er út um 30 stuðla jafnt yfir = 180 stuðlar.
Setjið eitt prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Heklið nú mynstur hringinn þannig: Heklið A.3 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.4 alls 15 mynstureiningar í umferð. Þegar allt A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina eru síðustu 4 umferðirnar í mynsturteikningu endurteknar á hæðina þar til stykkið mælist 25 cm frá prjónamerki – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Heklið nú handfang þannig:

KANTUR MEÐ AXLARÓL:
UMFERÐ 1: Heklið A.5 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.6 alls 15 sinnum hringinn í umferð = 180 stuðlar í umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 30 stuðlum, heklið 90 lausar loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, hoppið yfir næstu 30 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 60 stuðlum, heklið 90 lausar loftlykkjur, hoppið yfir næstu 30 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af þeim 30 stuðlum sem eftir eru.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern af fyrstu 30 stuðlum, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 90 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 60 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 90 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 30 fastalykkjum.
UMFERÐ 5-8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = byrjið hér – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift (= 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju). Haldið áfram frá tákni yfir punkti í hring og heklið til vinstri
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuhring
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum (koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá byrjun á umferð
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð. Byrjið á næstu umferð í mynsturteikningu
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Pineapple Tote

Monika, Poland

Pineapple Tote

Lise-Marie Lia, Norway

Pineapple Tote

Lise-Marie Lia, Norway

Pineapple Tote

Ruined Mama, Finland

Pineapple Tote

Marta, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Danuta wrote:

Te oczka ścisłe na filmiku są robione jak półslupki. Natomiast półsłupki na innym filmiku jak półsłupki nawijane. Stąd pewnie wzór mi nie wychodził. Robiłam oczkami ścisłymi a powinnam robić półsłupkami. To chyba dość często się zdarza w tłumaczonych wzorach że w niektórych krajach oczko ścisłe to to samo co w innych półsłupek. Dziękuję za odpowiedź. Już wiem co trzeba zmienić.

25.01.2022 - 21:14

country flag Danuta wrote:

Czy w tym schemacie gdzie są zapisane oczka ścisłe to chodzi o oczka ścisłe czy półsłupki? Bo jak robię oczkami ścisłymi to wzór jest strasznie zbity. Czy nie powinny to być półsłupki?

25.01.2022 - 20:23

DROPS Design answered:

Witaj Danuto, są to oczka ścisłe. Zobacz instrukcje video dołączone do wzoru, aby zobaczyć jak jest wykonywane oczko ścisłe. Pozdrawiamy!

25.01.2022 - 20:52

country flag Hüni wrote:

Habe keine Dropswolle verwendet. Hat gut funktioniert. Statt 4 LM, habe ich 5 LM gehäkelt

15.04.2021 - 19:56

country flag Emilie wrote:

Hej Garnstudio Jeg er lige startet på denne opskrift, men kan simpelthen ikke ikke finde ud af hvor mange stangmasker jeg skal lave i ringen i starten. Jeg har nemlig prøvet på lidt af hvert, men det går ikke op når jeg så skal skifte til A3. Så mine spørgsmål er: - Hvor mange stangmasker skal jeg hækle ned i ringen? - Skal der så derefter (ud fra diagrammet) hækles 2 stang masker i hver stangmaske fra forrige omgang?

31.07.2020 - 14:08

DROPS Design answered:

Hej Emilie, du hækler A.2 1 stangm x 10 (men de første luftmasker erstatter første st). Det vil sige at efter 8.omgang har du 8x10 stangm = 80 stangm. God fornøjelse!

05.08.2020 - 15:26

country flag Inge wrote:

Hoeveel bollen garen heb ik nodig voor deze tas?

09.07.2020 - 22:49

country flag Josephine wrote:

Ich finde dieses Netz wunderhübsch und würde es mir so gern selbst häkeln, allerdings scheitere ich direkt zu Beginn. Die Beschreibung ist für mich unverständlich und nicht nachvollziehbar. Von den hinterlegten Videos kann ich zu dieser Anleitung keines nutzen. Vielleicht ist zu gegebener Zeit eine Überarbeitung denkbar!?

02.07.2020 - 16:33

DROPS Design answered:

Liebe Josephine, vielleicht kann Ihnen dieses Lektion über Diagramme helfen? Viel Spaß beim häkeln!

02.07.2020 - 17:26

country flag Helene Wold wrote:

Hei, i diagram A3 og A4, andre omgang, hvordan skal det startes der? Jeg har jo en km i 3lm fra forrige omgang, skal det da være en lm opp derfra, for så 3 fm? Med 180 staver fra forrige omgang går ikke det opp for meg.

07.06.2020 - 22:20

DROPS Design answered:

Hei Helene. 1. omgang i M.3 startes med 1 luftmaske (som IKKE erstatter første fastmaske), deretter hekles A.4 15 ganger og det avsluttes med 1 kjedemaske i luftmasken omgangen startet med (ovalt ikon i A.3). 2. omgang starter også med 1 luftmaske (som IKKE erstatter første fastmaske) og som avsluttes med en kjedemaske i luftmasken på begynnelsen av omgangen. 3. omgang startes med 4 luftmasker og disse luftmaskene ERSTATTER første dobbeltstav som man ser i A.4 (3.omgang). Omgangen avsluttes med 1 kjedemaske i 4.luftmaske på begynnelsen av omgangen. God Fornøyelse!

09.06.2020 - 13:29

country flag Tatane wrote:

Bonjour, lorsque vous dites une bride dans le rond de maille en l'air, je dois bien faire une bride dans chacune des mailles en l'air ? Soit 4 brides ? Car si je fais ça, ca me forme un genre de petit cône..🤔

06.05.2020 - 22:40

DROPS Design answered:

Bonjour Tatane, quand on crochète 1 bride autour du rond de mailles en l'air, cela signifie que l'on va insérer le crochet dans le rond de 4 mailles en l'air pour faire les brides. On doit crocheter 1 fois A.1 (= début du tour) + 10x A.2, on va donc avoir 10 brides + 3 mailles en l'air pour ce début de tour et un rond parfaitement plat. Cette vidéo montre comment crocheter des brides dans un rond de mailles en l'air, suivez bien les indications du modèle, la vidéo ne montrant que la technique. Bon crochet!

07.05.2020 - 09:49

country flag Camilla wrote:

Hej. Jeg skal til at starte, og prøver på at læse opskriften korrekt. A1 og a2 i det første kommer til at udgøre bunden af nettet/tasken ikke? Og så skal jeg høre om jeg har forstået begyndelsen korrekt, først cirkel, 4 stgm rundt om luftmaskerne, derefter 2 stangmasker i hver af de 4 masker, og så 1 stgm, og så to i en stgm? Osv osv . Er det forstået rigtig?

10.02.2020 - 07:06

DROPS Design answered:

Hei Camilla. Ja, A.1 og A.2 utgjør bunnen på vesken. Når den er ferdig heklet og du har 180 staver, hekles det etter diagram A.3 og A.4. Start med A.3 slik (første lille sirkel): 1 luftmaske, deretter hekles A.4 slik: 3 fastmasker (kryss) i hver av de 3 neste stavene, 4 luftmasker (vinkel), hopp over 3 staver, 1 dobbeltstav i neste stav (lang loddrett strek med 2 vannrette streker) 4 luftmasker, 2 fastmasker i hver av de 2 neste stavene. Denne raden gjentas 15 ganger og avslutt med 1 kjedemaske i 1.fastmaske (den samme lille sirkelen) på begynnelsen av omgangen. God Fornøyelse!

10.02.2020 - 19:17

country flag Ana wrote:

If, at A1 round starts with 3 chain stitches (replaces first treble crochet) and finishes with 1 slip stitch in 3rd chain stitch at beginning of round , doesn't it count 90 at the end of the round? I had it 80 when I didn't count that tr crochet at A1. Do we count that A1 like first tr then first tr in A2 like second tr? Thank you for the pattern.

02.08.2019 - 15:06

DROPS Design answered:

Dear Ana, A.1 shows how to beg and end rounds but doesn't count as first stitch, so that you crochet A.1, then repeat A.2 a total of 10 times in the round. At the end of A.1/A.2, there are 8 tr in each A.2 x 10 = 80 tr + the 3 chains in A.1. If you choose to replace first st with A.1, you have then to replace the first st in A.2 with A.1, finish first A.1 and then repeat A.2 9 more times to get a total of 10 repeats in width. Happy crocheting!

07.08.2019 - 09:51