Lynne skrifaði:
Hello! Could you please give a yarn quantity for doing the sweater in a single colour? Thank you!
01.05.2019 - 13:07DROPS Design svaraði:
Dear Lynne, for single coloured sweater you need 450-500-550-600-650-750 g DROPS Fabel. Happy knitting!
01.05.2019 - 20:00
Constnce skrifaði:
Bonjour, est-il possible de tricoter ce modèle entièrement au point mousse, sans faire les dominos? Merci
18.04.2019 - 12:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Constance, si vous ne tricotez pas les dominos, vous devrez recalculer entièrement la partie du bas pour qu'elle tombe juste, il sera plus simple de faire ce pull en suivant les explications ou bien trouver un autre modèle qui correspond davantage à ce que vous souhaitez. Bon tricot!
23.04.2019 - 11:42
Simona skrifaði:
Buenas tardes, no entiendo :si 1.1 tiene 21 y 20 puntos, como se recogen 17 puntos para 2.1 y 18 puntos para 3.2? En total son 35 puntos. Muchas gracias
17.04.2019 - 19:43DROPS Design svaraði:
Hola Simona. El patrón es correcto. Los 41 puntos son los puntos iniciales para comenzar el cuadrado 1.1. La forma no es exactamente cuadrada, sino que es más romboide y, por eso, hay suficientes puntos para montar los siguientes dos cuadrados de tamaño más pequeño 2.1 y 3.2.
19.04.2019 - 20:19
Lotte Mørk skrifaði:
Vedr mit tidligere spørgsmål har jeg selv fundet løsningen.
17.04.2019 - 10:43
Lotte Mørk skrifaði:
På omg. 4 står der at man skal lave 2 omslag efter 3. Og 6. Mærke. Vil det sige at man skal slå om pinden 2 gange inden midtermærket på forstykket og ryggen? Og før3. Og 6. Mærke på forstikke og ryggen. Det bliver ikke særlig pænt når man strikker næste pind.
16.04.2019 - 07:13DROPS Design svaraði:
Hei Lotte. Du skal øke 4 masker på forstykket, og 4 masker på bakstykket (=8 masker økt på omgangen). Du øker 2 masker på hver side av 3. og 6 merke (midt foran og midt bak) slik: strikk til det gjenstår 1 maske før masken med merket i, lage 1 kast, 1 rett, 2 kast, strikk masken med merket i, 1 kast, 1 rett 1 kast. Du øker altså 2 masker på hver side, med 1 maske mellom kastene. God fornøyelse
23.04.2019 - 11:27
Nadja skrifaði:
Klarer ikke å forstå oppskriften. F. eks. forstykke: "Strikk 14-18-18-21-21-23 masker rille og øk 0-0-4-0-2-7 masker jevnt fordelt". Hvor skal jeg øke? Skal jeg først strikke 23 masker og øke deretter med 7 masker på den 2.rad i rille? Skal jeg strikke 30 masker (23+7) med en gang der disse 7 blir jevnt fordelt?
23.03.2019 - 21:27DROPS Design svaraði:
Hei Nadja. Du strikker 23 masker rille, samtidig som du øker 7 masker jevnt fordelt over disse maskene (altså dette gjøres på samme omgang). Når du øker jevnt fordelt tar du antall masker og deler på antall økninger: 23/7 = 3,3. I dette tilfelle kan du øke etter/i hver 3 maske. Det vil si etter denne omgangen har du har strikket 23 masker, og økt 7, så du har nå 30 masker rille her. God fornøyelse
27.03.2019 - 09:20
Eija skrifaði:
Ohjeista ei selviä, mihin raglanlisäyksiin muiden lisäksi jää reikä näkyviin ja mitkä tehdään lisäyksillä ilman reikää. Hihoihin nähdäkseni tulee, mutta muut epäselviä.
09.01.2019 - 13:37
Inge Jensen skrifaði:
Hvordan kan domino 1.1 blive aflang, når den strikkes over fx 49 masker som en hel dominorude? Skal man så lave indtagning på hver 4, pind?
04.11.2018 - 11:58DROPS Design svaraði:
Hei Inge. Det plukkes opp nok masker til 2 dominoruter langs hver side av domino 1:1 (se målskissen) det betyr at det må plukkes opp fler masker enn det som er brukt i domino 1:1 for å få nok masker til 2 nye ruter. Dette gjør at domino 1:1 blir noe strukket, og virker litt avlang. God fornøyelse.
06.11.2018 - 08:08
Birthe skrifaði:
Jeg brugte ikke fremgangsmåden beskrevet den 13.4. Facononen blev ikke god. Jeg har udeladt dominoerne 3.2 og 3.3. Så bliver domino 1.1 ikke større end de andre idet jeg har Strikket dominoerne 2.1 og 2.2 op langs hele 1.1 side. Det giver selvfølgelig færre dominoer totalt men trøjen får en god facon.
16.06.2018 - 07:33
Oddny Sørensen skrifaði:
Maskeantallet stemmer ikke når jeg strikker raglan. Hadde utgangspunkt i str L på 150 masker før raglan. Etter å ha strikket 3.-10. 1 gang = 32 masker økt, får jeg 182. Oppskriften sier 178??? Det vil jo også bli feil videre. Skal jeg strikke 1.-10. 8 ganger = 40 masker x8, da får jeg 320 + 182 = 502. Oppskriften sier 466 ????
14.05.2018 - 19:01DROPS Design svaraði:
Hei Oddny. Etter å ha strikket 3. – 10 omgang 1 gang skal du ha økt 28 masker. Det økes ikke på omgang 3, 5, 7 og 9, og ellers økes det slik: 8 masker økt på 4 omgang, 8 masker økt på 6 omgang, 4 masker økt på 8 omgang og 8 masker økt på 10 omgang = 28 masker økt totalt, og 178 masker på pinnen. Videre økes det totalt 36 masker når du strikker omgang 1.-10. = 288 masker økt etter 8 ganger i høyden. God fornøyelse
16.05.2018 - 13:06
Atlantis Sweater#atlantissweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með dominoferningum, garðaprjóni, röndum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Fabel.
DROPS 188-15 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um dominoferninga): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LASKALÍNA (á við um berustykki): STL S-M-L-XL: UMFERÐ 1: Prjónið brugðið. UMFERÐ 2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.-3.-4.-6. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 2.-3.-5.-6. prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi, 2 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð). UMFERÐ 3 (og allar brugðnar umferðir): Prjónið brugðnar lykkjur, uppsláttur er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 4: Aukið út um 4 lykkjur á framstykki og á bakstykki þannig: Sláið 2 sinnum uppá prjóninn á eftir 3. og 6. prjónamerki þannig: Prjónið til og með lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Sláið 2 sinnum uppá prjóninn á undan 3. og 6. prjónamerki þannig: Prjónið þar til eftir er 1 lykkja á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 4 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð). UMFERÐ 6: Prjónið eins og umferð 2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð). UMFERÐ 8: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. og 6. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 3. og 6. prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = alls 4 lykkjur fleiri í umferð). UMFERÐ 10: Prjónið eins og umferð 2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð). STÆRÐ XXL-XXXL: UMFERÐ 1: Prjónið brugðið. UMFERÐ 2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn eftir 1.-3.-4.-6. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 2.-3.-5.-6. prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = 8 lykkjur fleiri í umferð). UMFERÐ 3 (og allar brugðnar umferðir): Prjónið brugðnar lykkjur, uppslátturinn er ekki prjónaður brugðið, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 4: Aukið út um 4 lykkjur á framstykki og á bakstykki þannig: Sláið 2 sinnum uppá prjóninn á eftir 3. og 6. prjónamerki þannig: Prjónið til og með lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Sláið 2 sinnum uppá prjóninn á undan 3. og 6. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 4 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð). UMFERÐ 6: Prjónið eins og umferð 2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = 8 lykkjur fleiri í umferð). UMFERÐ 8: Prjónið eins og umferð 4 (= 4 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð). UMFERÐ 10: Prjónið eins og umferð 2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = 8 lykkjur fleiri í umferð). UMFERÐ 12: Prjónið eins og umferð 2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = 8 lykkjur fleiri í umferð). ÚTAUKNING-1: Prjónið 2 lykkjur í 1 lykkju. ÚTAUKNING-2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Öll úrtaka er gerð í umferð með sléttum lykkjum. Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR (á við um dominoferninga): Prjónið alltaf upp lykkjur frá réttu. RENDUR: Fyrsta umferð í hverri rönd er prjónuð frá réttu (á við um dominoferninga): Fyrsta umferð í hverri rönd er prjónuð slétt (á við um ermar). Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós perlugrár. Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum blá lónið. HEILL DOMINOFERNINGUR: Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Endurtakið umferð 1 og 2, þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur á miðju á ferning í annarri hverri umferð þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lárétt): Prjónið eins og heill dominoferningur, en bætið við úrtöku í miðju á ferning, setjið síðustu lykkju í lok hverrar umferðar á 1 þráð. Haldið áfram þar til 7-5-7-7-7-7 lykkjur eru eftir á prjóni (= 9-10-10-11-12-13 lykkjur á þræði í hvorri hlið). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og setjið síðustu lykkju í lokin á prjóni á þráð = 6-4-6-6-6-6 lykkjur á prjóni. Næsta umferð (= frá réttu) prjónið þannig: Prjónið 1-0-1-1-1-1 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir 2 lykkjur sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri), 1-0-1-1-1-1 lykkjur, setjið síðustu lykkju á prjóni á þráð = 3-1-3-3-3-3 lykkjur. Setjið einnig þessar lykkjur á þráð. Klippið frá og festið enda. Nú hafa verið settar alls 23-23-25-27-29-31 á þráð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir laskalínu í hvorri hlið á hvorri ermi við miðju að framan og við miðju að aftan. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er prjónaður 1 og 1 dominoferningur fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring í garðaprjóni í lokin. BERUSTYKKI: Fitjið upp 106-122-122-134-134-142 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum bláa lónið. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju með garðaprjóni og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 22 lykkjur í garðaprjóni og aukið út um 0-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju garðaprjón og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju (= 26-26-28-28-26-26 lykkjur). Framstykki: Prjónið 14-18-18-21-21-23 lykkjur garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju garðaprjón og setjið 3. prjónamerkið í þessa lykkju (= miðja að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 lykkjur garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 lykkjur jafnt yfir (= 31-39-47-45-49-63 lykkjur). Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 4. prjónamerkið í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 22 lykkjur garðaprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju garðaprjón og setjið 5. prjónamerkið í þessa lykkju (= 26-26-28-28-26-26 lykkjur). Bakstykki: Prjónið 14-18-18-21-21-23 lykkjur í garðaprjóni og aukið út um 0-0-4-0-2-7 lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju garðaprjón og setjið 6. prjónamerkið í þessa lykkjur (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 lykkjur garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 lykkjur jafnt yfir (= 31-39-47-45-49-63 lykkjur) = alls 114-130-150-146-150-178 lykkjur. Prjónið og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, byrjið á 3. umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 3. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umferð 1 sinni = 142-158-178-174-190-218 lykkjur (= 30-30-32-32-32-32 lykkjur á hvorri ermi og 41-49-57-55-63-77 lykkjur á framstykki og á bakstykki). Endurtakið 1. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umferð 7-7-8-8-7-7 sinnum = 394-410-466-462-526-554 lykkjur (= 72-72-80-80-88-88 lykkjur á hvorri ermi og 125-133-153-151-175-189 lykkjur á framstykki og á bakstykki). Prjónið síðan fyrstu 0-6-0-4-4-8 umferðirnar 1 sinni til viðbótar = 394-434-466-478-542-586 lykkjur (= 72-76-80-82-90-92 lykkjur á hvorri ermi og 125-141-153-157-181-201 lykkjur á framstykki og á bakstykki). Stykkið mælist nú ca 18-20-21-22-23-24 cm mælt meðfram öxl. Prjónið 1 umferð brugðið. Nú skiptist stykkið í næstu umferð (með sléttum lykkjum): Hægri ermi: Setjið fyrstu 72-76-80-82-90-92 lykkjur (meðtaldar lykkjur með 1. og 2. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 lykkjur undir ermi (setjið 1 prjónamerkið mitt á milli nýrra lykkja). Framstykki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur að 3. prjónamerki (= 60-68-74-76-88-98 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt (= lykkja með 3. prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 4. prjónamerki (= 60-68-74-76-88-98 lykkjur), 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri = 125-141-153-157-181-201 lykkjur). Vinstri ermi: Setjið næstu 72-76-80-82-90-92 lykkjur (meðtaldar lykkjur með 4. og 5. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 lykkjur undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja). Bakstykki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur að 6. prjónamerki (= 60-68-74-76-88-98 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt (= lykkja með 6. prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (= 60-68-74-76-88-98 lykkjur), 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri = 125-141-153-157-181-201 lykkjur) = alls 266-298-322-338-386-426 lykkjur (= 133-149-161-169-193-213 lykkjur á framstykki og á bakstykki). Klippið frá. Færið umferðina til þannig að byrjað er mitt undir hægri ermi (þ.e.a.s. umferðin færist að prjónamerki). Prjónið 1 umferð brugðið, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn það eiga að myndast göt JAFNFRAMT er aukið út um 5-0-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir á undan horni við miðju að framan – lesið ÚTAUKNING-1, 5-0-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir á undan prjónamerki í hlið undir vinstri ermi, 5-0-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir á undan horni við miðju að aftan og 5-0-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir á undan prjónamerki undir hægri ermi = alls 20-0-0-0-0-0 lykkjur fleiri = 286-298-322-338-386-426 lykkjur. Setjið nú lykkjur á 2 þræði jafnframt því sem prjónað er yfir þær þannig: Prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 19-19-22-20-23-27 lykkjur (látið lykkjur vera á prjóni, það á síðar að prjóna fyrsta dominoferninginn yfir þessar lykkjur), prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 20-20-23-21-24-28 lykkjur á undan prjónamerki undir vinstri ermi, setjið þær síðan á þráð nr 1 (= 103-109-115-127-145-157 lykkjur á 1. þræði), prjónið 19-19-22-20-23-27 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið 20-20-23-21-24-28 lykkjur slétt, látið lykkjur vera á prjóni (fyrsti dominoferningurinn undir vinstri ermi er prjónaður yfir þessar 41-41-47-43-49-57 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 20-20-23-21-24-28 lykkjur á undan prjónamerki undir hægri ermi, setjið þær síðan á þráð nr 2 (= 103-109-115-127-145-157 lykkjur á 2. þræði), prjónið 20-20-23-21-24-28 lykkjur slétt og látið þær vera á prjóni (= 41-41-47-43-49-57 lykkjur á prjóni undir hvorri ermi). Klippið frá og festið enda. DOMINOFERNINGAR: Sjá mynsturteikningu að neðan, tölur í mynsturteikningu útskýra hvaða dominoferning þú prjónar. Prjónið fyrst 1 dominoferning mitt undir hægri ermi (= 1.1). Síðan er prjónaður 1 og 1 dominoferningur. Prjónið dominoferninga með 2 sokkaprjónum 3,5. Teknar eru upp lykkjur með litnum bláa lónið. Allir dominoferningarnir eru prjónaðir með RENDUR og GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð með bláa lónið frá röngu, skiptið um lit yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið síðan rendur). HÆGRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI RÖÐ 1 MEÐ DOMINO: DOMINO 1.1: Prjónið nú HEILL DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan, yfir 41-41-47-43-49-57 lykkjur undir hægri ermi. RÖÐ 2 MEÐ DOMINO: DOMINO 2.1: Setjið til baka síðustu 15-16-17-19-24-26 lykkjurnar af þræði við miðju að framan/aftan á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 16-17-18-20-25-27 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR, á helming í hægri hlið á 1. dominoferning (á síðar að taka upp fleiri lykkjur í hægri hlið á 1. dominoferning í 3. röð með dominoferningum) = 31-33-35-39-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. DOMINO 2.2: Prjónið upp 16-17-18-20-25-27 lykkjur frá miðju á vinstri hlið (= hálf hlið) á 1. dominoferning (= að miðju að framan/miðja að aftan) og setjið til baka fyrstu 15-16-17-19-24-26 lykkjurnar af þræði við miðju að framan/miðja að aftan á sokkaprjón 3,5 = 31-33-35-39-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. Nú hafa verið prjónaðir 2 heilir dominoferningar í 2. röð með domino, þ.e.a.s. prjónaður hefur verið 1 domino hvoru megin við 1. dominoferning. RÖÐ 3 MEÐ DOMINO: DOMINO 3.1: Setjið til baka næstu 17-18-19-21-24-26 lykkjur af þræði við miðju að aftan/miðju að framan á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 18-19-20-22-25-27 lykkjur í hægri hlið á dominoferning 2.1 = 35-37-39-43-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. DOMINO 3.2: Prjónið upp 18-19-20-22-25-27 lykkjur í vinstri hlið á dominoferning 2.1 og prjónið upp 17-18-19-21-24-26 lykkjur á seinni helming í hægri hlið á 1. dominoferningi = 35-37-39-43-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. DOMINO 3.3: Prjónið upp 17-18-19-21-24-26 lykkjur í seinni helming á vinstri hlið á 1. dominoferning og prjónið upp 18-19-20-22-25-27 lykkjur í hægri hlið á dominoferning 2.2 = 35-37-39-43-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. DOMINO 3.4: Prjónið upp 18-19-20-22-25-27 lykkjur í vinstri hlið á dominoferning 2.2 og setjið til baka næstu 17-18-19-21-24-26 lykkjur af þræði við miðju að framan/miðju að aftan á sokkaprjón 3,5 = 35-37-39-43-49-53 lykkjur. Prjónið heila dominoferning. Nú hafa verið prjónaðir 4 dominoferningar í 3. röð með domino. VINSTRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Prjónið 1. til 3. röð með domino eins og á hægra framstykki/bakstykki. Prjónið nú domino yfir bæði vinstra framstykki/bakstykki og hægra framstykki/bakstykki eins og útskýrt er að neðan og eins og útskýrt er með númeri í rúðu í mynsturteikningu. RÖÐ 4 MEÐ DOMINO: DOMINO 4.1: Setjið til baka næstu 20-21-22-24-25-27 lykkjur af þræði við miðju að framan á sokkaprjóna 3,5 og prjónið upp 19-20-21-23-24-26 lykkjur í hægri hlið á dominoferning 3.1 = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. DOMINO 4.2 TIL 4.4: Prjóni upp 19-20-21-23-24-26 lykkjur í annarri hlið á dominoferning frá 3. röð og prjónið upp 20-21-22-24-25-27 lykkjur í annarri hlið á næsta dominoferning frá 3. röð = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. DOMINO 4.5: Prjónið upp 19-20-21-23-24-26 lykkjur í vinstri hlið á dominoferning 3.4 og setjið til baka næstu 20-21-22-24-25-27 lykkjur af þræði við miðju að aftan á sokkaprjón 3,5 = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. DOMINO 4.6: Setjið til baka síðustu 19-20-21-23-24-26 lykkjur af þræði við miðju aftan á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 20-21-22-24-25-27 lykkjur í hægri hlið á dominoferning 3.1 = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. DOMINO 4.7 TIL 4.9: Prjónið upp 19-20-21-23-24-26 lykkjur í annarri hlið á dominoferning frá 3. röð og prjónið upp 20-21-22-24-25-27 lykkjur í annarri hlið á næsta dominoferning frá 3. röð = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. DOMINO 4.10: Prjónið upp 20-21-22-24-25-27 lykkjur í vinstri hlið á dominoferning 3.4 og setjið til baka síðustu 19-20-21-23-24-26 lykkjur af bandi við miðju að framan á sokkaprjón 3,5 = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heila dominoferning. Nú hafa verið prjónaðir 10 dominoferningar í 4. röð með domino. RÖÐ 5 MEÐ DOMINO: DOMINO 5.1 TIL 5.10: Prjónið upp 21-22-23-25-27-29 lykkjur í annarri hlið á dominoferning frá 4. röð og prjónið upp 22-23-24-26-28-30 lykkjur í annarri hlið á næsta dominoferning frá 4. röð = 43-45-47-51-55-59 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. Nú hafa verið prjónaðir 10 dominoferningar í 5. röð með domino. RÖÐ 6 MEÐ DOMINO: DOMINO 6.1 TIL 6.10: Prjónið upp 21-22-23-25-27-29 lykkjur í annarri hlið á dominoferning frá 5. röð og prjónið upp 22-23-24-26-28-30 lykkjur í annarri hlið á næsta dominoferning frá 5. röð = 43-45-47-51-55-59 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. Nú hafa verið prjónaðir 10 dominoferningar í 6. röð með domino. RÖÐ 7 MEÐ DOMINO: DOMINO 7.1 TIL 7.10: Prjónið upp 21-22-23-25-27-29 lykkjur í annarri hlið á dominoferning frá 6. röð og prjónið upp 22-23-24-26-28-30 lykkjur í annarri hlið á næsta dominoferning frá 6. röð = 43-45-47-51-55-59 lykkjur. Prjónið HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lárétt) – sjá útskýringu að ofan. Nú hafa verið prjónaðir 10 hálfir dominoferningar (lárétt) í 7. röð með domino. Í hverjum domino hafa verið settar 23-23-25-27-29-31 lykkjur á þráð (það á að prjóna kant yfir þessar lykkjur). Festið alla enda sem prjónað hefur verið með. KANTUR: Kanturinn er prjónaður í hring með litnum bláa lónið. Hver domino hefur 23-23-25-27-29-31 lykkjur sem settar voru á þráð = 230-230-250-270-290-310 lykkjur á þráðum. Setjið til baka lykkjur á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón JAFNFRAMT er í fyrstu umferð aukið út um 4-6-6-7-6-7 lykkjur jafnt yfir hvern hálfan dominoferning (= 27-29-31-34-35-38 lykkjur í hverjum domino = alls 40-60-60-70-60-70 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2 = alls 270-290-310-340-350-380 lykkjur. ATH: Ef kanturinn stífir peysuna verður að auka út fleiri lykkjur í hverjum domino. Fellið laust af. ERMI: Ermar eru prjónaðar með litnum bláa lónið. Setjið til baka 72-76-80-82-90-92 lykkjur af þræði á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 80-84-88-94-102-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. Ermar eru prjónaðar í hring í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 9.-8.-8.-7.-6.-5. hverri umferð alls 16-17-17-19-22-22 sinnum = 48-50-54-56-58-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 35-33-33-32-31-30 cm, stillið af að síðasta umferð sé prjónuð brugðið. Prjónið 8 umferðir garðaprjón með röndum, fyrsta rönd er prjónuð með litnum ljós perlugrár. Fellið af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Ermin mælist ca 37-35-35-34-33-32 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #atlantissweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.