DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Atlantis Jacket

Prjónuð peysa með dominoferningum, garðaprjóni, röndum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Fabel.

DROPS 188-14
DROPS Design: Mynstur fa-399
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-550 g litur 340, bláa lónið
100-150-150-150-150-200 g litur 114, ljós perlugrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 45 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferð með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

LASKALÍNA (á við um berustykki):
STL S-M-L-XL:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.-2.-4.-5. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 3.-4.-6.-7. prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi, 2 lykkjur fleiri á bakstykki og 1 lykkja fleiri á hvoru framstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð).
UMFERÐ 3 (og allar umferðir frá röngu): Prjónið slétt, uppsláttur er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 4: Aukið út um 2 uppslætti á hvoru framstykki og 4 uppslætti á bakstykki þannig: Sláið 2 sinnum uppá prjóninn á eftir 1. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið til og með lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Sláið 2 sinnum uppá prjóninn á undan 4. og 7. prjónamerki þannig: Prjónið þar til eftir er 1 lykkja á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 4 lykkjur fleiri á bakstykki og 2 lykkjur fleiri á hvoru framstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð).
UMFERÐ 6: Prjónið eins og umferð 2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á bakstykki og 1 lykkja fleiri á hvoru framstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð).
UMFERÐ 8: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 4. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 4. og 7. prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri á bakstykki og 1 lykkju fleiri á hvoru framstykki = alls 4 lykkjur fleiri í umferð).
UMFERÐ 10: Prjónið eins og umferð 2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á bakstykki og 1 lykkja fleiri á hvoru framstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð).
STÆRÐ XXL-XXXL:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn eftir 1.-2.-4.-5. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 3.-4.-6.-7. prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á framstykki og á bakstykki = 8 lykkjur fleiri í umferð).
UMFERÐ 3 (og allar umferðir frá röngu): Prjónið slétt, uppslátturinn er ekki prjónaður brugðið, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 4: Aukið út með 2 uppsláttum á hvoru framstykki og 4 uppsláttum á bakstykki þannig: Sláið 2 sinnum uppá prjóninn á eftir 1. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið til og með lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Sláið 2 sinnum uppá prjóninn á undan 4. og 7. prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 4 lykkjur fleiri á bakstykki og 2 lykkjur fleiri á hvoru framstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð).
UMFERÐ 6: Prjónið eins og umferð 2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á bakstykki og 1 lykkja fleiri á hvoru framstykki = 8 lykkjur fleiri í umferð).
UMFERÐ 8: Prjónið eins og umferð 4 (= 4 lykkjur fleiri á bakstykki og 2 lykkjur fleiri á hvoru framstykki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð).
UMFERÐ 10: Prjónið eins og umferð 2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á bakstykki og 1 lykkja fleiri á hvoru framstykki = 8 lykkjur fleiri í umferð).
UMFERÐ 12: Prjónið eins og umferð 2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og 2 lykkjur fleiri á bakstykki og 1 lykkja fleiri á hvoru framstykki = 8 lykkjur fleiri í umferð).

ÚTAUKNING-1:
Prjónið 2 lykkjur í 1 lykkju.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Öll úrtaka er gerð í umferð með sléttum lykkjum.
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR (á við um dominoferninga):
Prjónið alltaf upp lykkjur frá réttu.

RENDUR:
Fyrsta umferð í hverri rönd er prjónuð frá réttu (á við um dominoferninga):
Fyrsta umferð í hverri rönd er prjónuð slétt (á við um ermar).
Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós perlugrár.
Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum blá lónið.

HEILL DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina.
Endurtakið umferð 1 og 2, þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur á miðju á ferning í annarri hverri umferð þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna.

HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðrétt):
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina.
Prjónið gagnstætt á ferningi í hinni hliðinni á stykki, þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. úrtaka er gerð við miðju að framan).
Endurtakið umferð 1 og 2, þ.e.a.s fækkað er um 1 lykkju á ferning í annarri hverri umferð þar til 1 lykkja er eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna.

HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lárétt):
Prjónið eins og heill dominoferningur, en bætið við úrtöku í miðju á ferning, setjið síðustu lykkju í lok hverrar umferðar á þráð. Haldið áfram þar til 7-5-7-7-7-7 lykkjur eru eftir á prjóni (= 9-10-10-11-12-13 lykkjur af þræði í hvorri hlið). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og setjið síðustu lykkju í lokin á prjóni á þráð = 6-4-6-6-6-6 lykkjur á prjóni. Næsta umferð (= frá réttu) prjónið þannig: Prjónið 1-0-1-1-1-1 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir 2 lykkjur sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri), 1-0-1-1-1-1 lykkjur, setjið síðustu lykkjuna á prjóni á þráð = 3-1-3-3-3-3 lykkjur. Setjið einnig þessar lykkjur á þráð. Klippið frá og festið enda. Nú hafa verið settar alls 23-23-25-27-29-31 á þráð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar berustykki mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af de 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 7-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir laskalínu í hvorri hlið á hvorri ermi við miðju að framan og við miðju að aftan. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er prjónaður 1 og 1 dominoferningur fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring í garðaprjóni í lokin.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 117-133-133-145-145-153 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 2,5 með litnum bláa lónið. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Vinstra framstykki:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju garðaprjón og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn 14-18-18-21-21-23 lykkjur garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 lykkjur jafnt yfir (= 21-25-29-28-30-37 lykkjur).
Vinstri ermi:
Prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 2. prjónamerkið í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 22 lykkjur garðaprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju garðaprjón og setjið 3. prjónamerkið í þessa lykkju (= 26-26-28-28-26-26 lykkjur).
Bakstykki:
Prjónið 14-18-18-21-21-23 lykkjur í garðaprjóni og aukið út um 0-0-4-0-2-7 lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju garðaprjón og setjið 4. prjónamerkið í þessa lykkjur (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 lykkjur garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 lykkjur jafnt yfir (= 31-39-47-45-49-63 lykkjur).
Hægri ermi:
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni og setjið 5. prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 22 lykkjur í garðaprjóni og aukið út um 0-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju garðaprjón og setjið 6. prjónamerki í þessa lykkju (= 26-26-28-28-26-26 lykkjur).
Hægra framstykki:
Prjónið 14-18-18-21-21-23 lykkjur garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju garðaprjón og setjið 7. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 21-25-29-28-30-37 lykkjur) = alls 125-141-161-157-161-189 lykkjur.
Prjónið og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, byrjið á að prjóna 3. umferð (þ.e.a.s. 1. umferð er frá röngu). Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið 3. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umferð 1 sinni = 153-169-189-185-201-229 lykkjur (= 26-30-34-33-37-44 lykkjur á hvoru framstykki, 30-30-32-32-32-32 lykkjur á hvorri ermi og 41-49-57-55-63-77 lykkjur á bakstykki).
Endurtakið 1. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umferð 7-7-8-8-7-7 sinnum = 405-421-477-473-537-565 lykkjur (= 68-72-82-81-93-100 lykkjur á hvoru framstykki, 72-72-80-80-88-88 lykkjur á hvorri ermi og 125-133-153-151-175-189 lykkjur á bakstykki).
Prjónið síðan fyrstu 0-6-0-4-4-8 umferð 1 sinni til viðbótar = 405-445-477-489-553-597 lykkjur (= 68-76-82-84-96-106 lykkjur á hvoru framstykki, 72-76-80-82-90-92 lykkjur á hvorri ermi og 125-141-153-157-181-201 lykkjur á bakstykki).
Stykkið mælist nú ca 18-20-21-22-23-24 cm mælt meðfram öxl. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Nú skiptist stykkið og næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Vinstra framstykki:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (meðtalin lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 2. prjónamerki (= 60-68-74-76-88-98 lykkjur), 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri = 68-76-82-84-96-106 lykkjur)
Vinstri ermi:
Setjið næstu 72-76-80-82-90-92 lykkjur (meðtaldar lykkjur með 2. og 3. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 lykkjur undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja).
Bakstykki:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur að 4. prjónamerki (= 60-68-74-76-88-98 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt (= lykkja með 4. prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á undan 5. prjónamerki (= 60-68-74-76-88-98 lykkjur), 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri = 125-141-153-157-181-201 lykkjur).
Hægri ermi:
Setjið fyrstu 72-76-80-82-90-92 lykkjur (meðtaldar lykkjur með 5. og 6. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 lykkjur undir ermi (setjið 1 prjónamerkið mitt á milli nýrra lykkja).
Hægra framstykki:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur að 7. prjónamerki (= 60-68-74-76-88-98 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (meðtalin lykkja með prjónamerki = 68-76-82-84-96-106 lykkjur) = alls 277-309-333-349-397-437 lykkjur (= 72-80-86-90-102-112 lykkjur á hvoru framstykki og 133-149-161-169-193-213 lykkjur á bakstykki).
Prjónið 1 umferð frá röngu, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn það eiga að myndast göt JAFNFRAMT er aukið út um 5-0-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir á undan prjónamerki undir fyrri ermi, 5-0-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir á undan horni við miðju að aftan, 5-0-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir á undan prjónamerki undir næstu ermi og 5-0-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir á undan kanti við miðju að framan – lesið ÚTAUKNING-1 = alls 20-0-0-0-0-0 lykkjur fleiri = 297-309-333-349-397-437 lykkjur.
Setjið nú lykkjur á 3 þræði jafnframt því sem prjónað er yfir þær frá réttu (þ.e.a.s. prjónað er frá vinstra framstykki yfir bakstykki og að hægra framstykki) þannig:
Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 20-20-23-21-24-28 lykkjur á undan prjónamerki undir ermi, setjið þær síðan á þráð nr 1 (= 57-60-63-69-78-84 lykkjur settar á 1. þræði), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 20-20-23-21-24-28 lykkjur (= að prjónamerki), prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 19-19-22-20-23-27 lykkjur (þessar 41-41-47-43-49-57 lykkjur á að prjóna fyrsta dominoferninginn yfir vinstra framstykki/bakstykki og er lykkjunum haldið eftir á prjóni), prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 20-20-23-21-24-28 lykkjur á undan prjónamerki undir hægri ermi, setjið þær síðan á þráð nr 2 (= 103-109-115-127-145-157 lykkjur á 2. þræði), prjónið 19-19-22-20-23-27 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið 20-20-23-21-24-28 lykkjur slétt, látið lykkjurnar verða eftir á prjóni (þessar 41-41-47-43-49-57 lykkjur á að prjóna fyrsta dominoferninginn á hægra framstykki/bakstykki), prjónið sléttar lykkjur út umferðina, setjið þær síðan á þráð nr 3 (= 57-60-63-69-78-84 lykkjur á 3. þræði). Klippið frá og festið enda.
Lykkjurnar hafa nú verið settar á 3 mismunandi þræði, 57-60-63-69-78-84 lykkjur í hvorri hlið á stykki, 103-109-115-127-145-157 lykkjur í miðju á stykki og 41-41-47-43-49-57 lykkjur á prjóni í hvorri hlið á stykki (= mitt undir ermum).

DOMINOFERNINGAR:
Sjá teikningu að neðan, tölur í mynsturteikningu útskýra hvaða dominoferning þú prjónar.
Prjónið fyrst 1 dominoferning mitt undir hægri ermi (= 1.1). Síðan er prjónaður 1 og 1 dominoferningur. Prjónið dominoferninga með 2 sokkaprjónum 3,5. Teknar eru upp lykkjur með litnum bláa lónið. Allir dominoferningarnir eru prjónaðir með RENDUR – sjá útskýringu að ofan, (þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð með bláa lónið frá röngu, skiptið um lit yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið síðan rendur).

HÆGRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI
RÖÐ 1 MEÐ DOMINO:
DOMINO 1.1:
Prjónið nú HEILL DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan, yfir 41-41-47-43-49-57 lykkjur undir hægri ermi.

RÖÐ 2 MEÐ DOMINO:
DOMINO 2.1:
Setjið til baka síðustu 15-16-17-19-24-26 lykkjurnar af þræði við miðju að framan/aftan á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 16-17-18-20-25-27 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR, á helming á hægri hlið á 1. dominoferning (á síðar að taka upp fleiri lykkjur í hægri hlið á 1. dominoferning í 3. röð með dominoferningum) = 31-33-35-39-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.

DOMINO 2.2:
Prjónið upp 16-17-18-20-25-27 lykkjur frá miðju í vinstri hlið (= hálf hlið) á 1. dominoferning (= að miðju að framan/miðja að aftan) og setjið til baka fyrstu 15-16-17-19-24-26 lykkjur af þræði við miðju að framan/miðja að aftan á sokkaprjón 3,5 = 31-33-35-39-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.
Nú hafa verið prjónaðir 2 heilir dominoferningar í 2. röð með domino, þ.e.a.s. prjónaður hefur verið 1 domino hvoru megin við 1. dominoferning.

RÖÐ 3 MEÐ DOMINO:
DOMINO 3.1:
Setjið til baka næstu 17-18-19-21-24-26 lykkjur af þræði við miðju að aftan/miðju að framan á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 18-19-20-22-25-27 lykkjur á hægri hlið á dominoferning 2.1 = 35-37-39-43-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.
DOMINO 3.2:
Prjónið upp 18-19-20-22-25-27 lykkjur í vinstri hlið á dominoferning 2.1 og prjónið upp 17-18-19-21-24-26 lykkjur á seinni helming í hægri hlið á 1. dominoferningi = 35-37-39-43-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.
DOMINO 3.3:
Prjónið upp 17-18-19-21-24-26 lykkjur á seinni helming í vinstri hlið á 1. dominoferning og prjónið upp 18-19-20-22-25-27 lykkjur í hægri hlið á dominoferning 2.2 = 35-37-39-43-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.
DOMINO 3.4:
Prjónið upp 18-19-20-22-25-27 lykkjur í vinstri hlið á dominoferning 2.2 og setjið til baka næstu 17-18-19-21-24-26 lykkjur af þræði við miðju að framan/miðju að aftan á sokkaprjón 3,5 = 35-37-39-43-49-53 lykkjur. Prjónið heila dominoferning.
Nú hafa verið prjónaðir 4 dominoferningar í 3. röð með domino.

VINSTRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Prjónið 1. til 3. röð með domino eins og á hægra framstykki/bakstykki.
Prjónið nú domino yfir bæði vinstra framstykki/bakstykki og hægra framstykki/bakstykki. Byrjið að prjóna domino yfir vinstra framstykki, síðan yfir vinstra bakstykki, hægra bakstykki og að lokum hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan og eins og tölur í mynsturteikningu sýna.

RÖÐ 4 MEÐ DOMINO:
DOMINO 4.1:
Setjið til baka næstu 19-20-21-23-24-26 lykkjur af þræði við miðju að framan á sokkaprjóna 3,5 og prjónið upp 20-21-22-24-25-27 lykkjur í hægri hlið á dominoferning 3.1 = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning. Nú eru eftir 6 lykkjur á þræði við miðju að framan.
DOMINO 4.2 TIL 4.4:
Prjóni upp 19-20-21-23-24-26 lykkjur í annarri hlið á dominoferning frá 3. röð og prjónið upp 20-21-22-24-25-27 lykkjur í annarri hlið á næsta dominoferning frá 3. röð = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.
DOMINO 4.5:
Prjónið upp 19-20-21-23-24-26 lykkjur í vinstri hlið á dominoferning 3.4 og setjið til baka næstu 20-21-22-24-25-27 lykkjur af þræði við miðju að aftan á sokkaprjón 3,5 = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.
DOMINO 4.6:
Setjið til baka síðustu 19-20-21-23-24-26 lykkjur af þræði við miðju aftan á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 20-21-22-24-25-27 lykkjur í hægri hlið á dominoferning 3.1 = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.
DOMINO 4.7 TIL 4.9:
Prjónið upp 19-20-21-23-24-26 lykkjur í annarri hlið á dominoferning frá 3. röð og prjónið upp 20-21-22-24-25-27 lykkjur í annarri hlið á næsta dominoferning frá 3. röð = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.
DOMINO 4.10:
Prjónið upp 20-21-22-24-25-27 lykkjur í vinstri hlið á dominoferning 3.4 og setjið til baka næstu 19-20-21-23-24-26 lykkjur af þræði við miðju að framan á sokkaprjón 3,5 = 39-41-43-47-49-53 lykkjur. Prjónið heila dominoferning. Nú eru eftir 6 lykkjur á þræði við miðju að framan.
Nú hafa verið prjónaðir 10 dominoferningar í 4. röð með domino.

RÖÐ 5 MEÐ DOMINO:
DOMINO 5.1:
Prjónið upp 21-22-23-25-27-29 lykkjur í hægri hlið á dominoferning frá 4.1 og prjónið HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðrétt) – sjá útskýringu að ofan.
DOMINO 5.2 TIL 5.10:
Prjónið upp 21-22-23-25-27-29 lykkjur í annarri hlið á dominoferning frá röð 4 og prjónið upp 22-23-24-26-28-30 lykkjur í annarri hlið á næsta dominoferning frá röð 4 = 43-45-47-51-55-59 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.
DOMINO 5.11:
Prjónið upp 21-22-23-25-27-29 lykkjur í vinstri hlið á dominoferning 4.10 og prjónið hálfur dominoferningur (lóðrétt).
Nú hafa verið prjónaðir 9 heilir dominoferningar og 2 hálfir dominoferningar (lóðrétt) í röð 5 með domino.

RÖÐ 6 MEÐ DOMINO:
DOMINO 6.1 TIL 6.10:
Prjónið upp 21-22-23-25-27-29 lykkjur í annarri hlið á dominoferning frá 5. röð og prjónið upp 22-23-24-26-28-30 lykkjur í annarri hlið á næsta dominoferning frá 5. röð = 43-45-47-51-55-59 lykkjur. Prjónið heilan dominoferning.
Nú hafa verið prjónaðir 10 dominoferningar í 6. röð með domino.

RÖÐ 7 MEÐ DOMINO:
DOMINO 7.1 TIL 7.9:
Prjónið upp 21-22-23-25-27-29 lykkjur í annarri hlið á dominoferning frá 6. röð og prjónið upp 22-23-24-26-28-30 lykkjur í annarri hlið á næsta dominoferning frá 6. röð = 43-45-47-51-55-59 lykkjur. Prjónið HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lárétt) – sjá útskýringu að ofan.
Nú hafa verið prjónaðir 9 hálfir dominoferningar (lárétt) í 7. röð með domino. Í hverjum domino hafa verið settar 23-23-25-27-29-31 lykkjur á þráð (það á að prjóna kant yfir þessar lykkjur).
Festið alla enda sem prjónað hefur verið með.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kantur að framan er prjónaður með bláa lónið.
Setjið til baka 6 lykkjur af þræði í vinstri hlið á stykkið á sokkaprjón 3,5. Prjónið garðaprjón fram og til baka í ca 13-14-14-15-17-18 cm, stillið af mál með dominoferning við miðju að framan (= dominoferningur 5.1). Prjónið síðan stuttar umferðir yfir kantlykkjur að framan með byrjun frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4: Prjónið eins og umferð 2.
UMFERÐ 5: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 6: Prjónið eins og umferð 2.
UMFERÐ 7: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 8: Prjónið eins og umferð 2.
Setjið 1 prjónamerki í kant að framan, HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið síðan garðaprjón yfir allar lykkjur. Þegar kantur að framan mælist 9-10-10-11-12-13 cm frá prjónamerki (stillið af mál með domino 6.1) setjið lykkjur á þráð. Saumið kant að framan við dominoferning 5.1 og 6.1 í ystu lykkjubogana.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og vinstri kantur að framan, en fyrstu 13-14-14-15-17-18 cm á að sauma við dominoferning 5.11. Prjónið stuttar umferðir yfir kantlykkjur að framan eins og á vinstri kant að framan, en með byrjun frá röngu.
Síðustu 9-10-10-11-12-13 cm á að sauma við dominoferning 6.10. Setjið lykkjur á þráð. Saumið kant að framan við dominoferning 5.11 og 6.11 í ystur lykkjubogana.

KANTUR:
Kanturinn er prjónaður í hring með litnum bláa lónið.
Kantur að framan (= 6 lykkjur) í hvorri hlið á stykki er settur sitt hvorn þráðinn og hver domino er með 23-23-25-27-29-31 lykkjur á þræði = alls 219-219-237-255-273-291 lykkjur á þráðum. Setjið til baka lykkjur á hringprjón 3,5.
Prjónið 4 umferðir garðaprjón JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= frá réttu) er aukið út um 4-6-6-7-6-7 lykkjur jafnt yfir hvern hálfan dominoferning (= 27-29-31-34-35-38 lykkjur á hverjum domino = alls 36-54-54-63-54-63 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2 = alls 255-273-291-318-327-354 lykkjur. ATH: Ef kanturinn stífir peysuna verður að auka út fleiri lykkjur í hverjum domino. Fellið laust af.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar með litnum bláa lónið.
Setjið til baka 72-76-80-82-90-92 lykkjur af þræði á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 80-84-88-94-102-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. Ermar eru prjónaðar í hring í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 9.-8.-8.-7.-6.-5. hverri umferð alls 16-17-17-19-22-22 sinnum = 48-50-54-56-58-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 35-33-33-32-31-30 cm, stillið af að síðasta umferð sé prjónuð brugðið. Prjónið 8 umferðir garðaprjón með röndum, fyrsta rönd er prjónuð með litnum ljós perlugrár.
Fellið af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Ermin mælist ca 37-35-35-34-33-32 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = fyrra númer sýnir hvaða röð er og seinna númer sýnir hvaða domino er í röð – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = miðja að aftan, teikning með útskýringu er teiknuð ofan frá og niður, eins og flíkin er prjónuð
symbols = miðja að framan
symbols = prjónstefna
symbols = hér eru ermalykkjur settar á þráð
symbols = miðja að aftan
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag PATRIZIA wrote:

Avorare a diritto fino a quando rimangono 20-20-23-21-24-28 maglie prima del segnapunti sotto la manica sinistra, poi trasferirle sul fermamaglie n° 1 da qua in poi non capisco quante maglie devo tyrasferire totali sui 3 fermaglie ...si parla di 3 fermagli ma poi facendo la somma delle singole parti diventano 5 ......mi sono persa sono giorni che leggo e rileggo ma non trovo soluzione grazie

27.05.2021 - 09:10

DROPS Design answered:

Buonasera Patrizia, i fermamaglie sui cui trasferire le maglie sono 3, e il passaggio e ben descritto: se segue fedelmente le indicazioni riuscirà a impostare il lavoro. Buon lavoro!

29.05.2021 - 14:46

country flag Patrizia wrote:

Qualcuno mi può aiutare x favore con la divisione dei punti sui 3 fermamaglie per iniziare con il domino ?non riesco proprio a capire come fare ..grazie sin da ora

26.05.2021 - 22:05

DROPS Design answered:

Buonasera Patrizia, ci può spiegare esattamente in quale punto riscontra difficoltà? Buon lavoro!

27.05.2021 - 00:08

country flag Tikva wrote:

Guten Tag,\r\nich möchte die Jacke für eine Frau mit Brustumfang 144 (ohne Zugaben) stricken, gibt es für diese Größe eine Berechnung, ebenfalls um die Jacke etwas in der Länge zu vergrößern, da ich bei der Größe der Frau eine deutlich längere Jacke für angebracht halte. Ich wäre sehr dankbar, wenn Sie mir auf die o.g. Maße eine Anleitung geben könnten. DANKE SEHR.

28.01.2020 - 13:03

DROPS Design answered:

Liebe Tikva, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!

28.01.2020 - 13:26

country flag Marion Jakobsen wrote:

Jeg kan ikke få plads til 2 dominoruder på siden af domino 1.1.

17.10.2018 - 08:04

DROPS Design answered:

Hei Marion. Jeg antar du snakker om langs siden av domino 1.1? Du må tilpasse slik at du strikker opp 16-17-18-20-25-27 masker langs halve ruten. Det vil si at du må strikke opp 2 masker i noen av maskene. God fornøyelse

17.10.2018 - 08:15

country flag Ana Alfonsín wrote:

Muchas gracias por el patrón, mis alumnas lo están disfrutando como niñas!!

09.05.2018 - 22:18

country flag Anna wrote:

Ser meget spændende ud

17.02.2018 - 20:48

country flag Anne Curtis wrote:

Love the design, cannot wait for the pattern to start knitting!

08.02.2018 - 08:47

country flag Dubuisson Maud wrote:

Bonjour, je trouve ce gilet très original (le dégradé de couleur) quand aurons-nous les explications du modèle ? Merci

01.02.2018 - 18:14

country flag Patricia wrote:

Superbe !!! Quand pourra t-on avoir les explications ?

19.01.2018 - 16:06

country flag Judit Maruzsi wrote:

I would love to knit this one! I hope that this pattern will be published!

19.01.2018 - 10:31