Grete Findahl skrifaði:
Jeg får ikke oppskriften til å stemme. Etter første runde med A.1 så har ikke jeg 110 masker, jeg har 114. Så blir det ennå mer feil utover i arbeidet. Der A.1 begynner blir det som på bildet, men i avslutningen av A.1 blir det ikke en jevn hullkant. Er det noe feil i oppskriften? Har nå forsøkt mange ganger å måttet rekt opp.
04.03.2018 - 14:46DROPS Design svaraði:
Hej Grete, du øger 2 masker i hver side ifølge første pind i diagrammet + de 2 masker i hver side som beskrives i opskriften. = ialt 8 m økt = 110 masker
13.03.2018 - 14:32
Pernille Iuel skrifaði:
Desuden: jeg forstår ikke jeres tip om udtagning. Skal de 4 omslag mod for- og bagstykke strikkes drejet vrang, eller ej? Der er modstrid mellem tekst og tip, synes jeg. Håber meget, at I kan hjælpe.
07.02.2018 - 17:43DROPS Design svaraði:
Hei Pernille. Øketipset gjelder i sidene på genseren (beskrevet i oppskriften), mens forklaringen til diagramikonet gjelder diagrammet (= ermene). God Fornøyelse!
09.02.2018 - 11:02
Pernille Iuel skrifaði:
Jeg kan ikke få diagrammet til at passe! Er det meningen, at der er to forskellige signaturer/symboler, der begge betyder: Lav et omslag mellem 2 masker...? Håber på svar, så jeg kan komme videre. Venlig hilsen Pernille
07.02.2018 - 17:38DROPS Design svaraði:
Hei Pernille. Her var det en feil i den danske oppskriften. Det fjerde diagramikonet skal ha denne forklaringen: = 2 masker ret sammen. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh Drops design
09.02.2018 - 10:56Stella skrifaði:
Cuantos gramos necesito para tejer con lana doble para una cardigan talle S_M?
30.01.2018 - 17:45DROPS Design svaraði:
Hola Stella. ¿Podrías concretar el modelo y la lana a la que te refieres?
31.01.2018 - 20:45
Natacha skrifaði:
Bienbien,trèstrèes BIEN !
13.12.2017 - 19:03
Mieke skrifaði:
I love this one! Can't wait for the pattern to be released
12.12.2017 - 12:36
Bejeweled#bejeweledsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu og gatamynstri á ermum, prjónuð ofan frá og niður ÚR DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-35 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (á við um hliðar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Byrjun á umferð = miðja að aftan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. PEYSA: Fitjið upp 82-86-90-94-98-102 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca og 1 ræði Kid-Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú þannig, byrjun á umferð er fyrir miðju að aftan: 12-13-14-15-16-17 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, A.1 (= 13 lykkjur = ermi), 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 24-26-28-30-32-34 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, A.1 (= ermi), 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12-13-14-15-16-17 lykkjur slétt. Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur = 90-94-98-102-106-110 lykkjur. Haldið áfram með A.1 á ermum og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í sléttprjóni – lykkjur sem auknar eru út á ermum eru teiknaðar inn í mynstur A.1, að bakstykki/framstykki er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að ofan. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt. Aukið út um 8 lykkjur í annarri hverri umferð, aukið út alls 21-24-25-28-32-36 sinnum = 250-278-290-318-354-390 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina heldur mynstrið áfram alveg eins, A.X sýnir hvernig ystu lykkjur í A.1 eru prjónaðar, þessar 6 umferðir eru síðan endurteknar. Þegar útaukning hefur verið gerð er prjónað þannig: 34-38-40-44-49-54 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 57-63-65-71-79-87 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið 68-76-80-88-98-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 57-63-65-71-79-87 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið þær 34-38-40-44-49-54 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-164-176-192-216-236 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum með 4-4-4-3-3-2½ cm millibili alls 3 sinnum = 136-152-164-180-204-224 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-14-15-13-13-11 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út í öðrum hverjum cm alls 6 sinnum = 160-176-188-204-228-248 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-27-28-26-26-24 cm prjónið 2 umferðir með stroffi, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón/sokkaprjón. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 57-63-65-71-79-87 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum mitt undir ermi = 63-69-73-79-89-97 lykkjur. Prjónið A.2, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Passið uppá að mynstur A.2 passi yfir mynstur frá A.1. Þegar ermin mælist 24-21-20-17-16-14 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 15-21-21-27-33-41 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 6 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, ermin mælist 30-27-26-23-22-20 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bejeweledsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.