DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10032.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Greek Melody

Prjónuð peysa með röndum, gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL. Hægt er að prjóna stykkið með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody.

DROPS 186-39
DROPS Design: Mynstur ml-023
Garnflokkur C + C eða D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-150-175-200-200 g litur 02, ljós grár
100-100-125-125-125-150 g litur 15, ljós sægrænn
75-75-100-100-100-125 g litur 01, natur

ATH: Ef prjóna á stykkið með einum lit þá þarf 300-300-350-375-400-450 g Brushed Alpaca Silk.

Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
150-150-150-200-200-200 g litur 03, perlugrár
100-100-150-150-150-150 g litur 09, ljós sægrænn
100-100-100-100-100-150 g litur 01, natur

ATH: Ef prjóna á stykkið með einum lit þá þarf 300-300-350-375-400-450 g Melody.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 12 lykkjur og 14 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 7 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 13 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

FYLGIHLUTIR: 2 trékúlur (10 mm) – fyrir snúru.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10032.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR (á við um kant að framan):
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Endurtakið A.1 og A.2 á hæðina (= 12 umferðir).

RENDUR-1 (á við um fram- og bakstykki):
RÖND 1: Prjónið 26-27-28-29-30-31 cm með 2 þráðum í litnum ljós grár Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum perlugrár Melody.
RÖND 2: Prjónið 26-27-28-29-30-31 cm með 2 þráðum í litnum ljós sægrænn Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum ljós sægrænn Melody.
Prjónið síðan með 2 þráðum í lintum natur Brushes Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum natur Melody til loka.

RENDUR-2 (á við um ermar):
RÖND 1: Prjónið 3½-3½-3½-3-3-3 cm með 2 þráðum í litnum ljós sægrænn Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum sægrænn Melody.
RÖND 2: Prjónið 3½-3½-3½-3-3-3 cm með 2 þráðum í litnum ljós grár Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum perlugrár Melody.
RÖND 3: Prjónið 3½-3½-3½-3-3-3 cm með 2 þráðum í litnum natur Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum natur Melody.
Endurtakið rönd 1-3 2 sinnum til viðbótar, síðan er endurtekin rönd 1 1 sinni til viðbótar. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum ljós grár Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum perlugrár Melody til loka.

ÚRTAKA:
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðu að framan, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 140-148-160-174-186-202 lykkjur (meðtaldar 12-12-12-14-14-14 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 7 með 2 þráðum í litnum ljós grár Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum perlugrár Melody – lesið RENDUR-1. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið A.1 yfir fyrstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur (= kantlykkjur að framan), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 12-12-12-14-14-14 lykkjur, prjónið A.2 yfir síðustu 12-12-12-14-14-14 lykkjur (= kantlykkjur að framan) – lesið MYNSTUR.
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 38-40-43-47-50-54 lykkjur inn frá miðju að framan (bakstykki = 64-68-74-80-86-94 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 19 cm er fækkað um 2 lykkjur við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 17-18-19-20-21-22 cm millibili alls 3 sinnum = 128-136-148-162-174-190 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 33-35-38-42-45-49 lykkjur, fellið af næstu 4 lykkjur fyrir handveg (= 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið næstu 54-58-64-70-76-84 lykkjur, fellið af næstu 4 lykkjur fyrir handveg, prjónið 33-35-38-42-45-49 lykkjur. Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 54-58-64-70-76-84 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-90 cm fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur fyrir hálsmái og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 21-23-26-28-31-35 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 33-35-38-42-45-49 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.1 yfir kantlykkjur að framan eins og áður og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm fellið af fyrstu 21-23-26-28-31-35 lykkjur frá röngu fyrir öxl, prjónið út umferðina = 12-12-12-14-14-14 lykkjur eftir á prjóni fyrir sjalkraga. Prjónið stuttar umferðir í garðaprjóni yfir þessar lykkjur með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 1 umferð yfir fyrstu 8-8-8-9-9-9 lykkjur, snúið og prjónið til baka, prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur, snúið og prjónið til baka. Haldið svona áfram þar til kantur í hálsmáli mælist 6-6-6-7-7-7 cm þar sem er styst. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. haldið áfram með mynstur A.2 yfir kantlykkjur að framan, fellið af fyrstu 21-23-26-28-31-35 lykkjur frá réttu fyrir öxl og prjónið stuttar umferðir yfir kant í hálsmáli með byrjun frá röngu.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.
Fitjið laust upp 48-50-53-55-58-60 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum natur Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum natur Melody. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR-2. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-11-12-13-13 sinnum = 28-28-31-31-32-34 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-41-40-38-37-34 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) skiptið yfir á sokkaprjón 7.
Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af – til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með 1 númeri grófari prjónum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið saman sjalkragann við miðju að aftan (saumurinn á að snúa inn þegar kraginn er brotinn niður að aftan). Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í.

SNÚRA:
Peysan er með 2 snúrur.
1 snúra = Klippið 4 þræði í litnum ljós grár Brushed Alpaca Silk eða 2 þræði í litnum perlugrár Melody ca 1,5 metra. Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í annan endann og hnýtið hnút ca 10 cm frá kanti í hinum endanum (snúran á að vera ca 50 cm í lokin, klippið e.t.v. snúruna til í rétta lengd). Þræðið snúruna í gegnum trékúlu og hnýtið hnút – gerið 1 skúf (= Klippið 16 þræði í litnum ljós grár Brushed Alpaca Silk eða 8 þræði í litnum perlugrár Melody ca 16 cm) og hnýtið aftur hnút (með þræðinum frá snúrunni) mitt í skúfinn. Leggið skúfinn saman tvöfaldan og hnýtið þráð ca 1 ½ cm niður frá trékúlunni, í kringum skúfinn. Klippið neðri kantinn á skúfnum til.
Festið snúruna í vinstri hlið að utan verðri peysunni ca 10 cm niður frá handveg (mátið e.t.v. peysuna og stillið staðsetninguna á snúrunni).
Gerið aðra snúru til viðbótar á sama hátt og festið yst á kant að framan í hægra framstykki ca 28-29-30-31-32-33 cm frá öxl og niður.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Claudia wrote:

Guten Tag, Bei einer Länge von 19 cm 2 Maschen an jedem Markierungsfaden abnehmen (= 4 Maschen abgenommen) Sollen die Abnahmen im Rückenteilbereich stattfinden??

14.04.2024 - 13:10

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, es wird jeweils 4 Maschen abgenommen: 2 an jeder Seite - siehe ABNAHMETIPP, dh 1 Masche beim jeden Vorderteil und 2 Maschen beim Rückenteil. Viel Spaß beim Stricken!

15.04.2024 - 08:37

country flag Lisa Egebo wrote:

Brushed Alpaca Silk er i nøgler à 25 g og løber ca. 140 cm. Melody er i nøgler à 50 g og løber også ca. 140 cm. Men hvorfor skal man så købe lige mange gram af hver garntype?

18.06.2021 - 14:16

country flag Benthe Gundersen wrote:

Hei igjen :) Takk for superraskt svar :)\r\nNår jeg begynner med mønster A2 så står det at jeg skal ha 1 kast på kroken, og 2 sammen. Hvis jeg sløyfer kastet så blir det rett...da blie det 5 hull..:D

02.06.2021 - 13:04

country flag Benthe Gundersen wrote:

Hei :) Når jeg strikker hullene i stolpene...mønster .A1 og A2 så får jeg 5 hull i A1 og 6 hull i A2 stolpen..stemmer dette?? Skal det ikke være like mange hull på hver side?

01.06.2021 - 23:47

DROPS Design answered:

Hej Benthe, jo der skal være lige mange huller i stolperne - kan du have 1 omslag for meget i den ene ? :)

02.06.2021 - 12:25

country flag Tove Hansen wrote:

Trenger hjelp for å sy sammen,skjønner ikke helt hvordan stolpene skal festes, finnes et film......?

09.10.2020 - 13:33

DROPS Design answered:

Hei Tove. Vi har dessverre ingen film på akkurat dette. Men når du er ferdig med forstykkene, syr du de to avfellingskantene sammen, bak i nakken. Se evnt hjelpevideo på : Hvordan montere med usynlig maskesting. Evnt se: Instruksjnsvideoer - Montering - Sy sammen, kanskje noen video der kan hjelpe deg. Deretter sys kragen til halsrigningen bak i nakken med små sting. God Fornøyelse!

12.10.2020 - 13:34

country flag Tove Hansen wrote:

Har ikke strikket mye, men her står det at en skal strikke med to tråder, vil det si dobbel tråd, to nøster samtidig..., tror kanskje jeg har gjort feil, striker bare med et nøste av gangen🤔

10.09.2020 - 16:04

DROPS Design answered:

Hej Tove. Om du stickar med garnet Brushed Alpaca Silk så ska du sticka med två trådar (=dubbel tråd) men stickar du med garnet Melody ska du kun sticka med 1 tråd. Mvh DROPS Design

11.09.2020 - 07:12

country flag Michelle wrote:

Continuer ainsi jusqu'à ce que le col mesure 6-6-6-7-7-7 cm au plus étroit bonjour, que voulez vous dire au plus étroit?? et à partir du début des rang raccourci ou à partir du rabat des épaules? sur les 9 m du rang raccourci ou sur les 5 m qui restent? merci

22.04.2020 - 07:48

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, mesurez votre col du côté mailles rabattues pour l'épaule (en fin de rang, vu sur l'endroit), du côté où vous avez tricoté moins de rangs, l'autre côté (côté extérieur du col, début de rang sur l'endroit) doit mesurer approximativement le double. Bon tricot!

22.04.2020 - 08:37

country flag Michelle wrote:

Bonsoir.. juste pour être sur de moi. Ici : Monter 140-148-160-174-186-202 mailles (y compris 12-12-12-14-14-14 mailles de bordure devant de chaque côté de l'ouvrage) avec l'aiguille circulaire 7 les maillles des bordures sont elles prise en compte dans le comptage des mailles a monter ou faut il les ajouter? merci

31.03.2020 - 23:30

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, les bordures des devants sont comprises dans le nombre de mailles à monter dès le début, vous n'avez pas à les monter en plus. Bon tricot!

01.04.2020 - 08:23

country flag Margot wrote:

Jeg vil strikke denne model i Helpatent hvor meget garn skal jeg så bruge mere? I L Vh Margot

02.03.2020 - 14:10

DROPS Design answered:

Hej Margot, du kan prøve at sammenligne målene med denne og se hvor meget garn der skal bruges. Searching for Spring Jacket Prøv også gerne vores garnomregner :)

03.03.2020 - 15:15

country flag CHRISTINE BAKER wrote:

I'm knitting this sweater again in a smaller size. However, just want to confirm the cast on 140 stitches - do I have to add 12 on each side - making it 164 stitches?

04.01.2020 - 03:06

DROPS Design answered:

Dear Christine, for the smallest size you should cast on 140 stitches that INCLUDES the 12 stitches for the band on both sides, so you do not have to add them. Happy Knitting!

04.01.2020 - 10:23