DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Bejeweled

Prjónuð peysa með laskalínu og gatamynstri á ermum, prjónuð ofan frá og niður ÚR DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 186-35

#bejeweledsweater

DROPS Design: Mynstur z-819
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250-300-300 g litur 6205, ljós blár
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-100-100-100-125-125 g litur 08, gráblár

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur A)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð með 2 þráðum.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (á við um hliðar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það á ekki að myndast gat.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Byrjun á umferð = miðja að aftan.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

PEYSA:
Fitjið upp 82-86-90-94-98-102 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca og 1 ræði Kid-Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú þannig, byrjun á umferð er fyrir miðju að aftan: 12-13-14-15-16-17 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, A.1 (= 13 lykkjur = ermi), 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 24-26-28-30-32-34 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, A.1 (= ermi), 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12-13-14-15-16-17 lykkjur slétt. Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur = 90-94-98-102-106-110 lykkjur. Haldið áfram með A.1 á ermum og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í sléttprjóni – lykkjur sem auknar eru út á ermum eru teiknaðar inn í mynstur A.1, að bakstykki/framstykki er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að ofan. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt. Aukið út um 8 lykkjur í annarri hverri umferð, aukið út alls 21-24-25-28-32-36 sinnum = 250-278-290-318-354-390 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina heldur mynstrið áfram alveg eins, A.X sýnir hvernig ystu lykkjur í A.1 eru prjónaðar, þessar 6 umferðir eru síðan endurteknar.

Þegar útaukning hefur verið gerð er prjónað þannig: 34-38-40-44-49-54 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 57-63-65-71-79-87 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið 68-76-80-88-98-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 57-63-65-71-79-87 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið þær 34-38-40-44-49-54 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-164-176-192-216-236 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum með 4-4-4-3-3-2½ cm millibili alls 3 sinnum = 136-152-164-180-204-224 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-14-15-13-13-11 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út í öðrum hverjum cm alls 6 sinnum = 160-176-188-204-228-248 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-27-28-26-26-24 cm prjónið 2 umferðir með stroffi, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón/sokkaprjón. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið 57-63-65-71-79-87 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum mitt undir ermi = 63-69-73-79-89-97 lykkjur. Prjónið A.2, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Passið uppá að mynstur A.2 passi yfir mynstur frá A.1. Þegar ermin mælist 24-21-20-17-16-14 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 15-21-21-27-33-41 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 6 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, ermin mælist 30-27-26-23-22-20 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.06.2019
Leiðrétting - ÚTAUKNING:ÚTAUKNING (á við um hliðar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa) og sláið 1 sinni uppá prjóninn.

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman <br />
<br />
= lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman

sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
Diagram for DROPS 186-35
Diagram for DROPS 186-35

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Ola skrifaði:

Dzień dobry, mam jeszcze pytanie odnośnie rękawów. Nie do końca rozumiem polecenie, że schemat A.2 powinien być w jednej linii nad A.1. Czy to znaczy, że zanim zacznę schemat A.2 powinnam jeszcze przerobić pierwsze oczka rzędu w jakiś inny sposób, tzn. sugerować się jeszcze schematem A.1?

26.06.2019 - 12:23

DROPS Design svaraði:

Witaj Olu! Musisz przerobić 1 oczko prawe ponad schematem A.1, a następnie zacząć wykonywać schemat A.2. Przerabiaj dżersejem oczka na środku pod rękawem, które nie mogą być przerabiane ściegiem fantazyjnym. Powodzenia!

27.06.2019 - 11:22

country flag Ola skrifaði:

Wydaje mi się, że jest błąd w opisie dodawania oczek. Jeśli zostawię 2 oczka przed nitką markerem, a następnie zrobię narzut i 2 oczka prawe, to nitka marker nie znajdzie się między tymi oczkami, tylko za nimi. Czy powinnam w takim razie przerabiać aż zostaje jedno oczko przed markerem, narzut i wtedy oczko prawe, marker, znowu oczko prawe i narzut? Tak by było analogicznie z opisem zamykania oczek.

25.06.2019 - 14:26

DROPS Design svaraði:

Witaj Olu, masz rację tutaj znajduje się błąd, już została zgłoszona korekta. Tutaj dodawaj oczka następująco: Przerabiać aż zostaje 2 oczka przed nitką markerem z boku, wykonać 1 narzut, przerobić 4 oczka prawe (nitka marker znajduje się na środku tych oczek) i wykonać 1 narzut. Pozdrawiamy!

26.06.2019 - 09:17

country flag Ola skrifaði:

Dziękuję za wskazówki. Mam nadzieję, że dobrze zrozumiałam: rękawy robię po prostu zgodnie ze schematem, a jeśli chodzi o tył i przód, to w co drugim okrążeniu, tam gdzie dodaję oczka, muszę przerabiać odpowiednio więcej oczek prawych, czyli (dla rozmiaru S) najpierw mam 24 oczka prawe z tyłu/przodu, później rząd oczek prawych, a później w tym miejscu muszę przerobić 26 o. prawych, 28, 30 itd.. ?

07.06.2019 - 19:47

DROPS Design svaraði:

Witaj Olu, jest dokładnie tak jak piszesz. Na tyle i przodzie liczba oczek będzie się stopniowo zwiększać, tzn. będzie o 2 o. na tyle i 2 o. na przodzie więcej co 2 okrążenia. Oczka na całym swetrze są dodawane zawsze w tym samym okrążeniu, tzn. na rękawach i na przodzie i tyle. Kolejne okrążenie jest już bez dodawania oczek, kolejne z dodawaniem itd. Powodzenia!

07.06.2019 - 21:28

country flag Ola skrifaði:

Zrobiłam 2 ściągacze francuskie na początku i rząd z dodawaniem 8 oczek. Mam 90 oczek zgodnie z opisem. I nie do końca rozumiem co powinnam robić dalej, mam napisane tylko, że rękawy przerabiać schematem A.1 i dodawać oczka. A przód i tył powinnam robić dżersejem? Nie jest to do końca jasne.

01.06.2019 - 18:35

DROPS Design svaraði:

Witaj Olu! Musisz dodawać oczka na reglany tak samo jak w tym okrążeniu, w którym uzyskałaś 90 o. jeszcze 20 razy co 2 okrążenia, aż będziesz miała na drutach 250 o. (rozmiar S). Jak dodawać oczka: dodajesz co 2 okr. 4 oczka na przodzie i tyle (wykonując 1 narzut przed/za 2 o. prawymi z każdej strony schematu A.1) oraz 4 oczka na rękawach (te 4 dodawane o. na rękawach figurują w schemacie A.1, są to te skrajne narzuty). Powodzenia!

03.06.2019 - 11:18

country flag Laura skrifaði:

Ich habe eine Frage zur Zunahme an den Nähten. Gehören der erste und letzte Umschlag von A1 zu der beidseitigen Zunahme oder muss man 2 Umschläge hintereinander stricken? Danke!

16.04.2019 - 12:46

DROPS Design svaraði:

Liebe Laura, die Maschen, die an den Ärmeln für den Raglan zugenommen werden, sind in A.1 eingezeichnet, dh keine zusätlichen Umschläge für den Ärmel stricken, nur fur Rumpfteil. Viel Spaß beim stricken!

23.04.2019 - 10:29

country flag Maria skrifaði:

Hola buen día ! les agradecería me indiquen cómo se trabaja la manga a partir que se toman los puntos del gancho auxiliar y se tiene que agregar el patrón A.2. Se tiene que agregar a esos puntos que se levantan en el centro de la manga. No entiendo como me aseguro que el patrón A.2 esté alineado con el patrón A.1.

23.03.2019 - 15:50

DROPS Design svaraði:

Hola María. La manga se trabaja sobre los puntos que estaban apartados en un gancho auxiliar y los puntos recogidos bajo la manga. Todos los puntos pasan a una misma aguja circular. Para ajustar el diagrama A.2 para continuar, hay que empezar en la fila siguiente desde la que se terminó la parte de la manga en el canesú. Los puntos que no entren en el diagrama A.2 se trabajan en punto jersey en el centro bajo la manga.

24.03.2019 - 20:31

country flag Dilou skrifaði:

Bonjour ,je trouve ce modele tres joli mais je voudrais l adapter en laine du groupe B style coton pour mi saison , est ce faisable ? Merci

13.04.2018 - 08:10

DROPS Design svaraði:

Bonjour Dilou, ce modèle se tricote avec 2 fils du groupe A (= ou 1 fil du groupe C), si vous souhaitez le tricoter avec 1 fil du groupe B, il vous faudra tout recalculer en fonction de votre échantillon, vous pourrez probablement vous aider d'un modèle similaire dans un fil du groupe B. Bon tricot!

13.04.2018 - 08:29

country flag Mie skrifaði:

Andet symbol i forklaringen til diagram A1 ligner på skærmen en firkant med smal kant og når man udskriver står der blot “symbol”. Er det mon den trekant der strækker sig over 3 masker/firkanter på selve diagrammet ? (Sådan virker det ud fra forklaringen = tag 1 maske løs af pinden, strik 2 masker ret sammen, løft den løse maske over maskerne som blev strikket sammen)

08.04.2018 - 23:33

DROPS Design svaraði:

Hei Mie. Ja det stemmer at andre symbol er trekanten som går over 3 masker. God fornøyelse

09.04.2018 - 10:36

country flag Fauchet skrifaði:

Bonjour, je ne comprends pas où mettre les marqueurs et où faire les augmentations dos/devant et manches. De plus quand vous dites d’augmenter tous les 2 rangs 8 mailles, que faire avec A1? Augmenter tous les rangs ou tous les 2 rangs? Merci pour votre réponse ! Et bravo pour ce site merveilleux!

28.03.2018 - 13:16

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Fauchet, on va augmenter pour le raglan de chaque côté des 2 m jersey (à la transition entre chaque pièce). Les augmentations des manches figurent dans le diagramme, il faut simplement faire celles du dos/devant en faisant 1 jeté après 2 m end au début du dos/devant et avant les 2 m end à la fin du dos/devant, on va ainsi augmenter 8 m par tour d'augmentations soit tous les 2 tours. Bon tricot!

28.03.2018 - 16:02

country flag Grete Findahl skrifaði:

Jeg får ikke oppskriften til å stemme. Etter første runde med A.1 så har ikke jeg 110 masker, jeg har 114. Så blir det ennå mer feil utover i arbeidet. Der A.1 begynner blir det som på bildet, men i avslutningen av A.1 blir det ikke en jevn hullkant. Er det noe feil i oppskriften? Har nå forsøkt mange ganger å måttet rekt opp.

04.03.2018 - 14:46

DROPS Design svaraði:

Hej Grete, du øger 2 masker i hver side ifølge første pind i diagrammet + de 2 masker i hver side som beskrives i opskriften. = ialt 8 m økt = 110 masker

13.03.2018 - 14:32