Eva Pap De Pesteny skrifaði:
I beskrivningen står C + C vilket borde betyda att man stickar med 2 härvor garn tillsammans. Stämmer verkligen garnåtgång 300 g för stlk S, eller betyder det 600 g?
12.10.2022 - 14:30DROPS Design svaraði:
Hej Eva, ja hvis du strikker i DROPS Air og holder strikkefastheden på 10 masker på 10 cm, så stemmer det med 300 gr :)
16.12.2022 - 15:13
CAROLE skrifaði:
Bonjour ! Pour réaliser ce modèle Spring Peach, je veux utiliser la Big Mérino au lieu de la Drops Air. Dois-je aussi tricoter ensemble 2 fils de Big Mérino ? Pour une taille XL, j'ai compter qu'il me faudrait 16 pelotes. Est-ce correct ? Merci d'avance pour votre réponse.
28.08.2022 - 20:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Carole, vous pouvez effectivement remplacer 2 fils Air par 2 fils Big Merino - pensez à bien vérifier votre échantillon et à adapter la taille des aiguilles si besoin pour que les mesures soient justes. Utilisez notre convertisseur pour obtenir la nouvelle quantité nécessaire. Bon tricot!
29.08.2022 - 09:00
Vero skrifaði:
Serait il possible d avoir les explications de ce modèle ou des autres(même style) afin de le réaliser avec des aiguilles "normales" et non circulaires svp ? Merci
28.04.2022 - 21:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Vero, on utilise ici des aiguilles circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pouvez par conséquent utiliser des aiguilles droites, vos mailles seront juste plus serrées (attention à votre tension). Découvrez ici - pour une prochaine fois - comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
29.04.2022 - 08:23
Jenny skrifaði:
Ich habe den Pulli in Größe S rund gestrickt. Trotz das die Maschenprobe stimmt habe ich mit den angegebenen 300g locker ein Knäuel zu wenig. Nun hoffe ich, dass ich keinen Farbunterschied erhalten werde beim nachbestellen.
24.03.2022 - 20:50
Ejongenburger skrifaði:
Vraag ik wil dit patroon maken van katia alaska maat xl hoeveel heb ik nodig?
15.10.2020 - 22:05
Ejongenburger skrifaði:
Vraag
15.10.2020 - 22:02
E Jongenburger skrifaði:
Ik wil dit patroon maken van katia alaska hoeveel kluwen heb ik nodig
15.10.2020 - 22:01
E Jongenburger skrifaði:
Dit patroon maken van katia alaska.Hoeveen kluwen heb ik nodig?
15.10.2020 - 21:59
Katharina Faust skrifaði:
Um die einzelnen Teile zusammenzunähen, wird der Faden, so wie beim Stricken, doppelt genommen oder reicht es hier mit einem einfachen Faden zu arbeiten? Vielen Dank.
02.12.2019 - 11:10DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Faust, es könnte etwas zu dick mit 2 Fäden zusammenzunähen, versuchen Sie mit nur 1 Faden. Viel Spaß beim fertigstellen!
02.12.2019 - 13:24
Maria Steinsvik skrifaði:
Det må være noe feil i oppskriften. På str S får man to masker for lite dersom man skal felle 1 m etter de seks første m og de seks siste m på første p etter vrangbord. (6+1+11+1+11+1+11+1+6=49 m FØR felling, og ikke 47 som det står i oppskriften), Deretter står det jo at man skal fortsette mønsteret slik, dvs at det felles to flere masker enn det økes. Jeg har rekt opp noen ganger her nå...
20.09.2019 - 18:20
Spring Peach#springpeachsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með v-hálsmáli og gatamynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 2 þráðum DROPS Air.
DROPS 186-9 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 2 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum á undan 2 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fram- og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 47-47-53-59-65-71 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 9. Næsta umferð er prjónuð og lykkjum er fækkað jafnt yfir í þessari umferð þannig – frá réttu: Prjónið 6-6-6-9-9-9 lykkjur í garðaprjóni – og fækkið um 1-0-1-1-1-1 lykkjur yfir þessar, A.1 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur), 1 lykkja brugðið frá réttu (brugðið frá röngu), 11-11-13-13-15-17 lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið frá réttu (brugðið frá röngu), prjónið A.1 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur), 6-6-6-9-9-9 lykkjur í garðaprjóni – og fækkið um 1-0-1-1-1-1 lykkju yfir þessar = 45-47-51-57-63-69 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm (mælt meðfram annarri lykkjunni í garðaprjóni við hlið á A.1) fellið af 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 39-41-45-51-57-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 42-44-46-47-49-51 cm – passið uppá að enda eftir síðustu umferð í mynsturteikningu, prjónið A.2 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur) yfir A.1 til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 13-13-15-15-15-15 lykkjur í umferð, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu eftir 4 umferðir með garðaprjón eru felldar af miðju 9-9-11-11-11-11 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 15-16-17-20-23-26 lykkjur frá hægri hlið á prjóni (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóninum. Haldið áfram fram og til baka yfir þær 15-16-17-20-23-26 lykkjur sem eftir eru með mynstri og 2 kantlykkjur í garðaprjóni við háls – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – lesið ÚRTAKA = 14-15-16-19-22-25 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp alveg eins og á bakstykki og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 37-39-40-42-43-45 cm. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 19-20-22-25-28-31 lykkjur eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt, takið 1. lykkjuna yfir 2. lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri við miðju að framan), prjónið 18-19-21-24-27-30 lykkjur eins og áður. Setjið 19-20-22-25-28-31 lykkjur frá hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóninum. Fækkið nú lykkjum fyrir v-hálsmáli og jafnframt er skipt um mynsturteikningu, þ.e.a.s. þannig: Haldið áfram fram og til baka yfir 19-20-22-25-28-31 lykkjur sem eftir eru með mynstri eins og áður með 2 lykkjur garðaprjón við miðju að framan – þegar prjónuð er 1 umferð eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5-5-5 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 1 sinni = 14-15-16-19-22-25 lykkjur í umferð – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 42-44-46-47-49-51 cm – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu, prjónið A.2 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur) yfir A.1 til loka. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af. Prjónið áfram yfir lykkjur í hægri hlið á stykki alveg eins og á vinstri hlið, en spegilmynd. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Setjið lykkju sem felld var af við miðju að framan á vinstri prjón og prjónið þá lykkju slétt saman við næstu lykkju á vinstri prjón (þetta er gert til að koma í veg fyrir að það myndist "hak" neðst á v-hálsmálinu), prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður – þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli eins og í vinstri hlið. A.1 er skipt út með A.2 eins og í vinstri hlið. ERMI: Fitjið upp 17-17-20-20-20-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hið) á hringprjón 8 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan 6 umferðir með stroffi (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 9. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 31-31-37-37-37-43 lykkjur (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem aukið er út um 2-4-0-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 33-35-37-39-41-43 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 10-11-11-12-12-12 lykkjur brugðið (slétt frá röngu), A.1 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur), 10-11-11-12-12-12 lykkjur brugðið (slétt frá röngu) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 16-16-15-14-13-12 cm millibili alls 3 sinnum = 39-41-43-45-47-49 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 51-50-49-47-45-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana. Saumið ermar í - saumið í ystu 2 cm í hvorri hlið á ermi þannig að ermin passi í handveg, saumið síðan sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springpeachsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.