Allegra skrifaði:
Hi, the chart for the yoke pattern is no longer visible in this pattern. I’m halfway through the chart but can’t seem to find it here anymore! Help?! Thank you for such a beautiful pattern! Allegra
25.10.2022 - 01:08DROPS Design svaraði:
Hi Allegra, All the charts are at the bottom of the pattern. Happy knitting!
25.10.2022 - 06:58
Sabrina Schmidt skrifaði:
Hallo. Ich stricke gerade den ersten Ârmel, Grösse 3/4. Ich beginne bei A.4 in jeder Runde mit der 2. Masche. Das habe ich verstanden aber dann kommen ja die Abnahmen. Verschiebt sich durch die Abnahmen das Muster? Stricke ich nach den Abnahmen einfach ganz normal weiter, also weiterhin immer bei der 2. Masche starten? Vielen Dank
12.03.2022 - 22:30DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schmidt, am Anfang und am Ende der Runde stricken Sie nicht ein komplett A.4, wenn Sie dann abnehmen werden das erste A.4 und das letzte A.4 auch abnehmen, dh das Muster stricken Sie wie zuvor in der Höhe, damit die Maschen nicht verschoben werden, aber es wird am Anfang/Ende der Runde immer weniger Maschen im Muster. Viel Spaß beim stricken!
14.03.2022 - 10:54
Marit D Lyngstad skrifaði:
Skal man virkelig øke 32masker (str 9/10) når man begynner med vrangborden nede på genseren+
12.03.2022 - 18:35DROPS Design svaraði:
Hei Marit, Dette er anbefalt for at vrangborden ikke blir stram. God fornøyelse!
14.03.2022 - 07:47
Inga Jespersen skrifaði:
Jeg stikker størrelse 2 år. Efter A 1 skal jeg begynde at tage ud, men hvor mange masker skal jeg tage ud hver gang?
06.12.2021 - 09:10
Pia Sällemark skrifaði:
Mönster A1 och A2 har försvunnit från mönstret. Jag är mitt i A2. Hur ska jag kunna sticka klart?
23.08.2021 - 20:10DROPS Design svaraði:
Hej Pia. Jag ser de diagrammen här på min pc så de finns kvar. Kanske du kan prova en annan webläsare eller uppdatera sidan för att se de? Mvh DROPS Design
24.08.2021 - 09:38
Icca skrifaði:
Står jag ska ha 40+60 c kabel eller 80.. Men fattar noll ska jag ha 100cm kabel eller 80 tanke på 40+60=100 eller en både 40 & 60cm eller 80
10.08.2021 - 17:25
Anneke Ter Horst skrifaði:
Ik zou graag de wol willen bestellen maar wil graag de echte kleuren zien. Is het mogelijk kleur staaltjes toe te sturen? Alvast dank voor uw antwoord. Anneke
30.05.2021 - 17:19
Kirstin Bosse skrifaði:
Hej, ich möchte den Pullover in Gr.3/4 stricken und komme mit der Maschenzahl in der Passe nicht klar. Anschlag= 88M, 4 Abnahme=84M, in der mit Pfeil1 markierten Runde sind es dann 126M. Wo werden die fehlenden 42 Maschen zugenommen? In der Strickschrift finde ich keinen Hinweis. Wäre dankbar für Hilfe! LG
29.03.2021 - 13:46DROPS Design svaraði:
Liebe Kirstin, Sie stricken ja A.1 14x in der Runde. In jedem A.1 werden bis zum ersten Pfeil 3 Maschen zugenommen (in der 3., 5. und 7. Runde) - 14 x 3 = 42 Maschen. Gutes Gelingen weiterhin!
05.04.2021 - 00:26
Nadia Thunberg skrifaði:
Hej! Ärm storlek 2-3 år: Står att man ska Minska var 3:e cm 6 gånger. Ska man minska var 3:e cm eller var 3:e varv? Se kommentar angående detta från 11.11. 2019. Tack på förhand!
03.12.2020 - 07:25DROPS Design svaraði:
Hej Nadia. Det ska vara på var 3:e cm du gör minskningen som det står i mönstret. Mvh DROPS Design
03.12.2020 - 11:55
Mette Kloth skrifaði:
Hej. På ærmerne til denne opskrift skriver I, at man efter mønster A6 tager 1 m. ind. Det er smartere at tage den m. ind FØR A6, så passer mønsteret nemlig på en omgang!
23.04.2020 - 09:06
Seiland Jumper#seilandjumper |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður og prjónuð húfa með marglitu norrænu mynstri og dúsk úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 30-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.7. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukningu sem á að gera (t.d. 6) = 14. Í þessu dæmi er prjónuð 13. og 14. hver lykkja slétt saman ef fækka á lykkjum. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 14. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum norðursjó og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-7-8-8-9-9 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-14-16-16-18-18 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-21-24-24-27-27 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-28-32-32-36-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-35-40-40-45-45 sléttar lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-48-48-54-54 brugðið lykkjur. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. LEIÐBEININGAR-2 (á við um berustykki á peysu): Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina en 10 cm eins og gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili í einlitu einingunni á berustykki. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um húfu): Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Byrjun umferðar = miðja að aftan. HÁLSMÁL: Fitjið upp 84-88-88-96-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum norðursjór. Prjónið eina umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-4-6-6-4 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 78-84-84-90-90-96 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka eru 0-0-2-3-0-2 sléttar umferðir með litnum norðursjór. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Prjónið síðan A.1 hringinn (= 13-14-14-15-15-16 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 í A.1 eru 117-126-126-135-135-144 lykkjur í umferð. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið JAFNFRAMT út 18 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 135-144-144-153-153-162 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 15-16-16-17-17-18 mynstureiningar með 9 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2 í A.1 er aukið út um 21-24-24-27-27-30 lykkjur jafnt yfir = 156-168-168-180-180-192 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 prjónað hringinn (= 13-14-14-15-15-16 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með A.2 og aukið út eins og mynsturteikning sýnir. Í umferð merktri með ör-3 í A.2 eru 208-224-224-240-240-256 lykkjur. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið jafnframt út um 4-0-12-0-12-8 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 212-224-236-240-252-264 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 53-56-59-60-63-66 mynstureiningar með 4 lykkjum). Eftir A.3 mælist stykkið ca 17-17-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð með litnum ljós beige þannig: Prjónið 31-33-35-36-38-40 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki), setjið næstu 45-47-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 61-65-69-71-75-79 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 45-47-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 30-32-34-35-37-39 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (=½ bakstykki). Klippið frá þráðinn sem prjónað er með. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 134-142-150-158-166-174 lykkjur. Byrjið í annarri hlið á stykki, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið A:4 hringinn og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 136-144-152-160-168-176 lykkjur í umferð og 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 8 lykkjum. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er A.5 prjónað hringinn = 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 8 lykkjum). Endurtakið A.5 þar til stykkið mælist ca 13-17-20-23-26-29 cm frá skiptingu – stillið af að prjónaðar séu 2-4 umferðir með litnum skógargrænn eftir umferð með "doppum". Prjónið A.6 hringinn (= 34-36-38-40-42-44 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 17-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt með litnum skógargrænn þar sem aukið er út um 24-28-28-32-32-32 lykkjur jafnt yfir = 160-172-180-192-200-208 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 45-47-49-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 51-53-55-57-59-61 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Byrjið við prjónamerki mitt undir ermi og prjónið A.4 hringinn, en athugið að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu mitt undir ermi. Byrjið með 3.-2.-1.-8.-7.-6. lykkju í A.4 og endurtakið A.4 hringinn eins langt og það nær. Mynstrið verður samhverft mitt undir ermi og lykkjan með prjónamerki í mitt ofan á ermi á nú að passa við 4. lykkju í A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er A.5 prjónað hringinn, en stillið mynstrið af þannig að A.5 passi fallega yfir A.4 (lykkja með prjónamerki á að passa við staðsetningu með «doppu»). A.5 er síðan endurtekið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 3-3-5-5-7-6 cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 41-41-45-45-49-49 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 12-16-20-24-28-31 cm frá skiptingu – stillið af að prjónaðar verði 2-4 umferðir með skógargrænn eftir eina umferð með "doppur", prjónið A.6 hringinn – byrjið umferð þannig að mynstrið passi fallega yfir doppurnar í A.5. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt með skógargrænn þar sem fækkað er um 1 lykkju í öllum stærðum = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverri lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af. Ermin mælist ca 20-24-28-32-36-39 cm frá skiptingu undir ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 104-112-112-120 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum skógargrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 96-104-104-112 lykkjur. Prjónið A.7 hringinn (= 12-13-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka er prjónað í sléttprjóni með litnum ljós beige til loka. Þegar stykkið mælist 15-16-17-17 cm eru sett 8 prjónamerki í stykkið með 12-13-13-14 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Í næstu umferð er lykkjum fækkað á eftir hverju prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-7-7-8 sinnum = 48 lykkjur eftir í umferð í öllum stærðum. * Prjónið 1 umferð slétt, í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 * = 24 lykkjur. Prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 20-21-22-23 cm ofan frá og niður. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með litnum skógargrænn ca 4-5 cm að þvermáli og festið efst á húfu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seilandjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.