DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Le Petit Bûcheron

Peysa fyrir börn með laskalínu og köðlum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð 2-12 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Sky.

DROPS Children 30-2
DROPS Design: Mynstur me-031-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-300-300-350-400-400 g färg 31, skógargrænn

Eða notið:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200-200-250-250-250 g litur 06, sægrænn

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla
---------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 og A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.

AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Á UNDAN A.1 (á einungis við um stærð 2 ára):
Prjónið fram að 1 lykkju á undan A.1:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo að ekki myndist gat. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni.

AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Á EFTIR A.1 (á einungis við um stærð 2 ára):
Prjónið A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo að ekki myndist gat. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni.

AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á UNDAN A.1/A.2 (á við um allar stærðir):
Prjónið fram að A.1/A.2:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1/A.2. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo að ekki myndist gat. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni.

AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á EFTIR A.1/A.2 (á við um allar stærðir):
Prjónið A.1/A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo að ekki myndist gat. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til eftir eru 2 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, (prjónamerki), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Peysan er prjónuð í hring á hringprjón frá miðju að aftan. Prjónið ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-92-92-96-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Merino Extra Fine eða Sky. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið 3 cm stroffi. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 72-76-80-80-84-84 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá miðju að aftan: Prjónið 7-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), A.1 (= 8 lykkjur), 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.2 (= 8 lykkjur), 14-16-18-18-20-20 lykkjur sléttprjón (= framstykki),A.1, 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.2, 7-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH! Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum.

STÆRÐ 2 ÁRA:
AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Aukið út um 4 lykkjur á bakstykki og 4 lykkjur á framstykki (= 2 lykkjur á undan A.1 /eftir A.2): Aukið svona út í annarri hverri umferð 4 sinnum.
Aukið síðan út um 2 lykkjur á bakstykki og 2 lykkjur á framstykki (= 1 lykkja á undan A.1/eftir A.2): Aukið svona út í annarri hverri umferð 12 sinnum.

AUKIÐ SVONA ÚT Á ERMUM:
Aukið út um 2 lykkjur á hvorri ermi (= 1 lykkja á eftir A.1/á undan A.2): Aukið út í annarri hverri umferð 14 sinnum, síðan er aukið út í 4. Hverri umferð 1 sinni (= alls 15 sinnum).

STÆRÐ 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára:
AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Aukið út um 2 lykkjur á bakstykki og 2 lykkjur á framstykki (= 1 lykkja á undan A.1/á eftir A.2): Aukið út í annarri hverri umferð 21-22-24-24-26 sinnum.

AUKIÐ SVONA ÚT Á ERMUM:
Aukið út um 2 lykkjur á hvorri ermi (= 1 lykkja á eftir A.1/á undan A.2): Aukið svona út í annarri hverri umferð 11-12-12-12-12 sinnum, aukið síðan svona út í 4. hverri umferð 5-5-6-6-7 sinnum (alls 16-17-18-18-19 sinnum).

ALLAR STÆRÐIR:
Á eftir öllum útaukningum eru 212-224-236-248-252-264 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 13-15-15-17-17-18 cm frá miðju að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 31-33-35-37-38-40 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-48-50-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-66-70-74-76-80 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-50-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 31-33-35-37-38-40 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-19-23-25-29-32 cm frá skiptingu prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-32-32-36-36 lykkjur jafnt yfir = 164-172-184-192-204-212 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ERMI:
Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-6-8-8 nýjum lykkjum undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-3-3½-3½-4 cm millibili alls 7-7-8-8-9-9 sinnum = 36-38-38-40-40-42 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 19-22-26-30-35-39 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 44-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-26-30-34-39-43 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.02.2018
Nýtt efnismagn í stærstu stærðum: DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)300-300-300-350-400-400 g färg 31, skógargrænn

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur, prjónið 3 lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur, prjónið 3 lykkjur af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Sally wrote:

I'm about to embark on the "Petit Bucheron," but don't understand how the initial instructions--one marked "raglan," several marked "increase" and one marked "decrease tip"--fit in with the later instructions (which seem to progress straightforwardly from beginning to end). Once I understand the initial comments, I'll order the yarn and get started knitting!

09.09.2022 - 22:09

DROPS Design answered:

Dear Sally, at the beginning of the written pattern we explain the different techniques used in the pattern; for this jumper you will increase for raglan (depending on the size), first 2 stitches before A.1 and 2 stitches after A.1 or/and 1 stitch before/after A.1/A.2 - the diagrams A.1 and A.2 are the stitches worked with cables on each raglan line and you have to increase there, but depending on the size you might have to increase either 2 and /or only 1 stitch before/after the diagram = either 8 sts (f. ex. increase 2 sts for each body and sleeves) or only 4 sts (on body only when inc on body on every 2nd round but on sleeves on every 4th round). Hope it can help. Happy knitting!

12.09.2022 - 09:16

country flag Stefania wrote:

Hallo, Nur aus Neugierde, wieso muss man bei der Passe nach 3 cm Rippenmuster 12 Maschen abnehmen? Und spielt es eine Rolle, mit welcher Methode abgenommen wird? Vielen Dank Herzlicher Gruss Stefania

20.10.2021 - 17:38

DROPS Design answered:

Liebe Stefania, siehe Antwort unten und diese Lektion erklärt, wie man regelmäßig verteilt abnimmt. Viel Spaß beim stricken!

21.10.2021 - 06:51

country flag Stefania wrote:

Hallo, Nur aus Neugierde, wieso muss man bei der Passe nach 3 cm Rippenmuster 12 Maschen abnehmen? Und spielt es eine Rolle, mit welcher Methode man die Maschen abnimmt? Danke Herzlicher Gruss Stefania

20.10.2021 - 17:35

DROPS Design answered:

Liebe Stefania, man braucht mehr Maschen im Rippenmuster als glatt rechts, deshalb muss man nach den 3 cm Rippenmuster/Kragen abnehmen. Viel Spaß beim stricken!

21.10.2021 - 06:45

country flag Maria Marta wrote:

Maravilloso es la guia que necesitaba

22.07.2021 - 15:47

country flag Sally Price wrote:

Directions call for dpns of 3.5 and 4. I already have dpns of 3.75. Could I use them instead of getting the two new sizes?

30.06.2021 - 20:50

DROPS Design answered:

Dear Sally, the different sized needles are for knitting the differently structured stocking stitch and ribbing. You should always make a swatch and check your gauge before starting any pattern (especially, if you are planning to change needle sizes). Happy Stitching!

01.07.2021 - 01:31

country flag Madeleine wrote:

Bonjour, peut-on tricoter ce pull avec une laine du groupe A ( Baby Merino) ? comment choisir sa taille alors ? merci

30.01.2021 - 15:03

DROPS Design answered:

Bonjour Madeleine, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Pour toute assistance complémentaire, vous pouvez vous adresser à votre magasin DROPS qui saura vous conseiller et vous renseigner. Bon tricot!

30.01.2021 - 17:43

country flag Bénédicte Titley wrote:

Going from yoke to 3-parts knitting: size 5/6 . Everything tallies up to this row. BUT Sleeve: 6+(17x2)=40 stitches the instructions says 'Slip 48 stitches on the a stitch holder' Are the extra 8 stitches half the cable of the raglan? in which case should't the back left should be 9+24+4+=37 stitches and not 35 (the last 4 stitches being the half cable) and the the front 18+(24*2)+8=74 and not 70?( the last 8 stitches being 2x half-cable.) Many thanks for your help.

14.01.2021 - 18:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Titley, the stitches of each A.1 will be divided in 2 into body and sleeves, ie the first 35 sts for half back piece = 9 sts + 35 sts inc + 4 sts A.1 and the 48 sts on each sleeve = last 4 sts in A.1 + 17 sts increased + 6 sts + 17 sts increased + first 4 sts A.1 = 48 sts. same for each piece. Happy knitting!

15.01.2021 - 06:52

country flag Puja wrote:

Hi Thanks for the reply my previous question. I have a question about cables. How many rows should we knit before we twist for cables. Thank you Puja

12.10.2020 - 21:40

country flag Puja wrote:

Hi I am knitting this for my 7 year old kid. He is taller for his age and leaner, so just wondering which size is a good size. I am just wondering if we can add short rows to this pattern, is it really required or the pattern is written as such that the short rows won’t be needed. If we need to add where can we add and which method will you suggest. Thank you Puja

29.09.2020 - 21:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Puja, measure a similar garment your son has and like the shape and compare the measurements from the chart (convert into inches here) - this way you will find the best matching size; read more about sizing here - there are no short rows worked in this pattern. Happy knitting!

30.09.2020 - 08:16

country flag Karin wrote:

Hallo, ik ben de trui voor 2 jaar aan het breien, maar kom er toch niet helemaal uit. Bij het meerderen voor het voor en achterland staat elke andere naald ( dat is toch steeds de brengende naald?) Bij het meerderen voor de mouw staat om de naald meerderen . Nu ben ik eigenlijk al bij 13 cm maar heb nog niet alle meerderingen gedaan. Ben dus bang dat ik het niet goed gedaan heb

20.05.2020 - 20:51

DROPS Design answered:

Dag Karin,

Als er staat 'elke andere naald' dan wordt er om de naald bedoeld, dus de ene naald wel en de andere naald niet. Omdat je het werk in de rondte breit, heb je geen teruggaande naald, dus je breit een naald zonder te meerderen en een naald met meerderingen.

22.05.2020 - 09:47