Colleen Holmes skrifaði:
In working size 29/31, when I follow A.2A, A.2B, and A.2C, the pattern (from 2 and 3) looks wrong. What might I have done wrong?
10.12.2024 - 12:54DROPS Design svaraði:
Dear Colleen, could you please specify what looks wrong, so that we may better help you? Does the pattern look displaced? Which of the sections don't match? What rows seem to not fit? Happy knitting!
15.12.2024 - 14:15
åse Westlye skrifaði:
Hvilken størrelse i sko/ alder tilsvare 24/25 og 26/27?
17.05.2020 - 16:59DROPS Design svaraði:
Hei Åse. Det tilsvarer det samme i skostørrelse. Alder er inviduelt. mvh DROPS design
18.05.2020 - 12:03
Gwen skrifaði:
Når jeg er ferdig med mønstret A2a, A2B, A2c og A3; så måler hele arbeidet mitt 22 cm og ikke 18 cm. Kan det være riktig??
31.03.2020 - 17:53
Kirsten Giselsson skrifaði:
Hej. Hvordan undgår man, at indtagningerne til tå efterlader små huller? Strikker jeg for løst? Tak for svar og gode opskrifter.
11.09.2019 - 08:49DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, du kan evt bruge 1 mindre pind. God fornøjelse!
12.09.2019 - 10:07
Annette skrifaði:
"Strikk videre til arbeidet måler 11-13-14-16-18 cm fra merket på hælen. Sett 1 nytt merke i hver side slik at det blir 18-19-20-21-21 masker både oppå og under foten. Fortsett rundt med glattstrikk - SAMTIDIG felles det 1 maske på hver side av begge merkene til tå". Betyr dette at felling til tå skal skje samtidig som man strikker disse 11-13-14-16-18 cm fra merket på hælen?
07.09.2019 - 17:26DROPS Design svaraði:
Hei Annette, Du setter nye merkene etter du er ferdig med å strikke 11-13-14-16-18 cm fra merket på hælen. Da begynner du også å felle masker etter at du har strikket disse 11-13-14-16-18 cm . God fornøyelse
09.09.2019 - 07:27
Boissonneault skrifaði:
Sur le diagramme A-1 au troisième rang le point noir à gauche complètement, indiquant la couleur mer du nord....est-ce une erreur? Ne serait-ce pas plutôt un carré blanc qui devrait être là? Merci de votre réponse à l’avance.
12.06.2019 - 16:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Boissonneault, on devrait effectivement avoir un carré blanc ici, le diagramme va être corrigé, merci. Bon tricot!
13.06.2019 - 09:57
Nathalie skrifaði:
Hej! Går dessa att sticka med magic loop?
26.04.2018 - 12:29
Seiland Socks#seilandsocks |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir börn með marglitu norrænu mynstri. Stærð 24-37. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Children 30-6 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 13. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 12. og 13. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4-5-6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 4-5-6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 10-10-10-10-10 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 44-44-48-52-52 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum norðursjór. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-2-0-4-4 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1= 42-42-48-48-48 lykkjur. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 7-7-8-8-8 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 í A.1 fækkið um 2-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 40-40-48-48-48 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð þannig: STÆRÐ 24/25 og 26/28: Prjónið A.2B hringinn (= 4 mynstureiningar með 10 lykkjum). STÆRÐ 29/31, 32/34 og 35/37: Prjónið A.2A (= 4 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 40 lykkjurnar (= 4 mynstureiningar með 10 lykkjum) og endið með A.2C (= 4 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 5-5-6-6-6 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2 í A.3 er fækkað um 4-0-4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 36-40-44-48-48 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað í sléttprjóni og með litnum skógargrænn. Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18 cm haldið eftir fyrstu 9-10-11-12-12 lykkjur í umferð fyrir hæl, setjið næstu 18-20-22-24-24 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 9-10-11-12-12 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum skógargrænn yfir 18-20-22-24-24 hællykkjur í 4½-4½-5½-5½-5½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-10-12-12-12 lykkjur hvoru megin við hæl og 18-20-22-24-24 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 48-50-56-58-58 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og með litnum skógargrænn. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjur eftir 18-20-22-24-24 lykkjur ofan á fæti slétt saman og 2 síðustu lykkjur á undan 18-20-22-24-24 lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-8-8-8 sinnum = 36-38-40-42-42 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 11-13-14-16-18 cm frá prjónamerki á hæl. Setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið þar til 18-19-20-21-21 lykkjur eru bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin fyrir tá – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-5-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 0-0-2-2-2 sinnum = 12-14-12-14-14 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-7-6-7-7 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seilandsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.