Renata Arnold skrifaði:
Ich bin gerade an der anleitung lesen und hab gesehen das wenn ich beim Rückenteil 22 maschen habe und brim vorderteil auch 22 maschen und 8 maschen für jeden Ärmel müsdte ich doch 60 maschen anschlagen? Es steht aber bei meiner grösse 80 maschen anschlagen(110/116) Warum? Können sie mir bitte helfen? Vielen Dank und liebe Grüsse Renata ;-)
17.10.2017 - 13:11DROPS Design svaraði:
Liebe Renata, Sie brauchen 80 M: 22 M für Rückenteil + 22 M für Vorderteil + 8 M für jeden Ärmel + 5 M für jede Raganlinie (A.1), dh: 22 + 22 + (8x2) + (4x5) = 80 M. Viel Spaß beim stricken!
17.10.2017 - 14:05
Renata Arnold skrifaði:
Ho visto sulle spiegazioni che sulle misure 110/116 le divisioni davanti ,dietro e braccia non si trovano.Se il dietro(mezzo dietro) ha 11 maglie,il davanti 22 maglie e le braccia 8 maglie ogni uno io arrivo solo a 60 maglie dinizio e non 80 maglie come e scritto nella spiegazione.Perfavore mi aiutate o e spagliato il mio pensiero?Grazie e spero su una risposta presto. Saluti Renata Arnold
17.10.2017 - 13:01DROPS Design svaraði:
Buongiorno Renata. Deve anche lavorare il diagramma A1 (5 maglie) prima/dopo le maniche. Quindi: 11 maglie (metà dietro), 5 maglie (diagramma A1), 8 maglie (manica), 5 maglie (diag A1), 22 maglie (davanti), 5 maglie (diag A1), 8 maglie (manica), 5 maglie (diag A1), 11 maglie (metà dietro). In tutto 80 maglie. Buon lavoro!
17.10.2017 - 13:16
Maja Hoff Thomsen skrifaði:
Jeg vil rigtig gerne vise om jeres merino stammer fra lam der har været udsat mulesing?
09.09.2017 - 22:31DROPS Design svaraði:
Hej Maja, nej det gør det ikke da vores merino kommer fra Sydamerika.
14.09.2017 - 09:31
Cherry Cuddler#cherrycuddlersweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu og köðlum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 30-14 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á UNDAN A.1 í annarri hverri umferð: Prjónið fram að A.1: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð svo það myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Endurtakið þessar 2 umferðir. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á EFTIR A.1 í annarri hverri umferð: Prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð svo það myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á UNDAN A.1 í 4. hverri umferð. UMFERÐ 1: Prjónið fram að A.1. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1. UMFERÐ 2: Prjónið uppsláttinn slétt, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 3: Prjónið fram að 2 lykkjum á undan A.1. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1. UMFERÐ 4: Prjónið uppsláttinn slétt, það eiga að myndast göt. Endurtakið þessar 4 umferðir. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á EFTIR A.1 í 4. hverri umferð: UMFERÐ 1: Prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn. UMFERÐ 2: Prjónið uppsláttinn slétt, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 3: Prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkju sem var prjónuð. UMFERÐ 4: Prjónið uppsláttinn slétt, það eiga að myndast göt. Endurtakið þessar 4 umferðir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, (prjónamerki), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkju sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 72-76-80-80-84-84 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan frá miðju að aftan – þannig: Prjónið 9-10-11-11-12-12 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), A.1 (= 5 lykkjur), 8 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 18-20-22-22-24-24 lykkjur sléttprjón (= framstykki), A.1, 8 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 9-10-11-11-12-12 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki): ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýring að ofan. ATH! Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum. AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Aukið út um 2 lykkjur á bakstykki og 2 lykkjur á framstykki (= 1 lykkja á undan/á eftir A.1): Aukið út í annarri hverri umferð 20-21-22-24-24-26 sinnum. AUKIÐ ÚT Á ERMUM: Aukið út um 2 lykkjur á hvorri ermi (= 1 lykkja á eftir/á undan A.1): Aukið svona út í annarri hverri umferð 10-11-12-12-12-12 sinnum, aukið síðan út í 4. hverri umferð 5-5-5-6-6-7 sinnum (alls 15-16-17-18-18-19 sinnum). Eftir allar útaukningar eru 212-224-236-248-252-264 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 15-16-16-18-18-19 cm frá miðju að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 31-33-35-37-38-40 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-48-50-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-66-70-74-76-80 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-50-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 31-33-35-37-38-40 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-17-21-23-27-30 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-32-32-36-36 lykkjur jafnt yfir = 164-172-184-192-204-212 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 nýjum lykkjum undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-3-3½-3½-4 cm millibili alls 7-7-8-8-9-9 sinnum = 36-38-38-40-40-42 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 19-24-28-31-36-40 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 44-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-28-32-35-40-44 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cherrycuddlersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.