Josefine skrifaði:
Hej Jeg forstår ikke helt hvilke materialer jeg skal bruge til denne sweater? Er det rundpind i 60 cm kun men hvad størrelse ? :)
30.12.2019 - 10:42DROPS Design svaraði:
Hei Josefine. Du skal bruke str. nr. 15. DROPS RUNDPINDE (60 og 80 cm) nr 15 – eller de pinde du skal bruge for at få 7 masker og 8 pinde glatstrik på 10 cm i bredden og 10 cm i højden med 1 tråd Polaris eller 4 tråde Air. God Fornøyelse!
20.01.2020 - 11:35
Eliina Härkönen skrifaði:
Erittäin hyvät ohjeet jopa minä onnistuin saamaan hyvän tuloksen Kaunis pusero
17.12.2019 - 17:51
Claudia Carolina skrifaði:
È giusto diminuire maglie dopo il collo se si usa lo stesso ferro quindi non di misura inferiore per il collo come di solito consigliate alla fine delle coste collo diminuire maglie quando si passa a ferro misura maggiore?
22.08.2019 - 20:35DROPS Design svaraði:
Buonasera Claudia, non ci sono errori nelle spiegazioni: le maglie vengono comunque diminuite perchè la lavorazione a coste tende a "tirare" il lavoro, che risulterebbe troppo molle se non si diminuissero le maglie. Buon lavoro!
22.08.2019 - 21:27
Olga skrifaði:
Hvor mange nøster trengs til Str M?
26.03.2019 - 10:46DROPS Design svaraði:
Hei Olga, For størrelse M trenger du 1300 g DROPS Polaris eller 650 g DROPS Air. Hver nøste er 50 g, så det blir 26 nøster Polaris eller 13 nøster Air. God fornøyelse!
27.03.2019 - 06:54
Ragnhild skrifaði:
Egner dette mønsteret seg for nybegynnere?
02.12.2018 - 10:44
Eloïse skrifaði:
Bonjour! Pourquoi faire des diminutions après le col pour augmenter exactement le même nombre de mailles le tour suivant? Est-ce pour ajuster le col et resserrer un peu le travail après les côtes 2/2? Un commentaire précédent en anglais (que je parle parfaitement) évoque ce réajustement, mais je n'en saisis pas bien l\'intérêt. Merci de m'éclairer.
30.10.2018 - 12:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Éloïse, on diminue à la fin du col pour ajuster à la bonne taille (circonférence), puis on augmente pour le raglan, de chaque côté de chacun des 4 marqueurs. Bon tricot!
30.10.2018 - 14:39
Eloïse_de_Bdp skrifaði:
Bonjour! \r\nPourquoi faire des diminutions après le col pour augmenter exactement le même nombre de mailles le tour suivant? Est-ce pour ajuster le col et resserrer un peu le travail après les côtes 2/2? Un commentaire précédent en anglais (que je parle parfaitement) évoque ce réajustement, mais je n\'en saisis pas bien l\'intérêt. Merci de m\'éclairer.
30.10.2018 - 12:39
åshild Hodne skrifaði:
Hei. Kan dere hjelpe meg å finne et mønster på en enkel damegenser, må bruke tykke pinner, raglanfelling, starte nede, ikke hårete garn.... Åshild
05.09.2018 - 14:00DROPS Design svaraði:
Hej Åshild, hvad med denne DROPS 164-12 med eller uden fletter i DROPS Eskimo eller 2 tråde fra garngruppe C DROPS Garngrupper God fornøjelse! :)
11.09.2018 - 09:35
Amy skrifaði:
What do decrease in the yoke do? In particular the instruction says to decrease 1 stitch on each side of each marker thread. Can I omit this step?
25.04.2018 - 08:03DROPS Design svaraði:
Dear Amy, these dec will get the measurements getting right, you first dec after ribbing (ribbing will tighten piece more than stocking will) then start to increase for raglan. Happy knitting!
25.04.2018 - 08:45
Amy skrifaði:
Could you give me some tips on how I could turn it into a turtleneck? 40 stitches would be a bit too much
23.04.2018 - 10:54DROPS Design svaraði:
Dear Amy, most of the time a turtleneck is worked over the same number of sts as a crew neck but just over more rows. For any assistance adjusting the pattern to your own taste please feel free to contact the store where you bought your yarn, even per mail telephone or social media. Happy knitting!
23.04.2018 - 11:23
Elise#elisesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu, háum kraga og klauf í hliðum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað með 1 þræði DROPS Polaris eða 4 þráðum Air.
DROPS 184-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SKIPT UM ÞRÁÐ (á við um þegar prjónað er með Polaris): Þegar skipt er um dokku með Polaris er þræðinum sem endað er með skipt í tvennt, síðustu 15 cm – klippið frá annan hlutann, þettar er einnig gert á nýja endanum. Leggið fyrri og síðustu 15 cm yfir hvorn annan þannig að þykktin verði sú sama og á garninu og prjónið síðan áfram – með þessu þá verða ekki sýnileg skil í skiptingunni. ÚRTAKA-1: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, (prjónamerki er staðsett hér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ÚRTAKA-2: ATH: Til þess að úrtökurnar komi til skiptis í hægri og vinstri hlið í stykki er lykkjum fækkað þannig: Í stærð S, M og L er lykkjum fækkað til skiptis í byrjun og lok úrtöku umferðar. Í stærð XL, XXL og XXXL er lykkjum fækkað í byrjun á hverri úrtöku umferð (til skiptis frá réttu og frá röngu). Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. GALDRALYKKJA: Ef prjónað er í hring á hringprjón sem er of langur fyrir lykkjufjöldann er hægt að gera þannig: Hringprjóninn á að vera langur og hafa sveigjanlega snúru. Færið lykkjurnar að miðju á snúrunni. Deilið lykkjunum eftir miðju og dragið snúruna út á milli lykkja. Færið lykkjurnar að prjónaendanum í hvorri hlið, passið uppá að lykkjurnar verði ekki snúnar. Endinn sem á að prjóna með er á aftari prjóni og þú byrjar á að prjóna með fremri prjóninum. Dragið út aftari prjóninn til að prjóna lykkjurnar á þeim fremri. Þegar lykkjurnar á fremri prjóni hafa verið prjónaðar, snúið við og færið lykkjurnar til baka á auða prjóninn og prjónið hina hliðina alveg eins. Haldið svona áfram hringinn, passið uppá að draga alltaf út prjóninn í þeirri hlið þar sem þú hefur þráðinn. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ (á við um þegar prjónað er með Polaris)! BERUSTYKKI: Fitjið upp 40-40-44-44-48-52 lykkjur á hringprjón 15 með 1 þræði Polaris eða 4 þráðum Air. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: 1. prjónamerkið í byrjun umferðar, 2. prjónamerki eftir 14-14-16-16-18-20 lykkjur (= bakstykki), 3. prjónamerki eftir 6 nýjar lykkjur (= ermi), 4. prjónamerki eftir 14-14-16-16-18-20 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru 6 lykkjur fram að 1. prjónamerki (= ermi). Prjónið 1 umferð slétt, þar sem fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið ÚRTAKA-1 = 32-32-36-36-40-44 lykkjur. ATH: Í vöruúrvalinu okkar höfum við ekki styttri hringprjóna en 60 eða 80 cm í prjónastærð 15. Nú þegar lykkjum hefur fækkað þannig að ummálið á stykkinu er minna en 60 cm í stærð S-XXL. Prjónið þess vegna áfram með GALDRALYKKJA – sjá útskýringu að ofan, þar til aukið hefur verið nægilega út til þess að geta notað hringprjón 60 cm. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT í 2. umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð 8-10-10-11-12-14 sinnum = 96-112-116-124-136-156 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Útaukning fyrir laskalínu í stærð M, L, XXL og XXXL er nú lokið. Í stærð S og XL er prjónuð 1 umferð þar sem aukið er út um 1 lykkju á fram- og bakstykki alveg eins (ekki er aukið út á ermum) = 4 lykkjur fleiri. Nú eru 100-112-116-128-136-156 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-25-25-29-30-35 cm frá stroffi og niður. Haldið síðan áfram án þess að auka út lykkjur í 3-0-2-1-0-0 umferðir til viðbótar. Stykkið mælist ca 25-25-28-30-30-35 cm frá stroffi og niður. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð (= ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 lykkjur undir ermi, prjónið 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð (= ermi), fitjiið upp 4-4-4-4-6-6 lykkjur undir ermi. Setjið eitt prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 68-72-76-84-92-104 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) og 34-36-38-42-46-52 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki og framstykki. Aukið nú út í hliðum þannig – lesið ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki. Nú eru 76-80-84-92-100-112 lykkjur í umferð. Prjónið nú áfram eftir mismunandi stærðum þannig: Stærð S, L, XL och XXL: Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 17-18-18-20 cm. Stærð M og XXXL: Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 19-17 cm og aukið jafnframt út þannig: Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 16 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki. ALLAR STÆRÐIR: Nú eru 76-84-84-92-100-116 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 17-19-18-18-20-17 cm setjið 38-42-42-46-50-58 lykkjur á bakstykki á þráð. Prjónið síðan stroff fram og til baka yfir 38-42-42-46-50-58 lykkjur á framstykki. Byrjið frá réttu og prjónið þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm og stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið til baka lykkjur á bakstykki á prjóninn og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið í 6 cm. Prjónið síðan stroff fram og til baka alveg eins og á framstykki þar til stroffið mælist 6 cm. Klauf á framstykki er 6 cm löng, klauf á bakstykki er 12 cm löng. Alls mælist stykkið ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður á bakstykki. ERMI: Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin. Setjið til baka 20-24-24-26-28-32 lykkjur af þræði á hringprjón 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 24-28-28-30-34-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-4-2-4-4-2 cm fækkið um 1 lykkju í hægri hlið á stykkið – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið til skiptis lykkjum í vinstri hlið og hægri hlið á stykki í 2.-2.-2.-1.-1.-1. hverri umferð 8-12-12-14-14-18 sinnum (= 4-6-6-7-7-9 sinnum í hvorri hlið) = 16-16-16-16-20-20 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-34-32-30-29-24 cm prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #elisesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.