Anne Villaume skrifaði:
N'y a t'il pas une erreur au niveau des diagrammes des torsades ( torsades 4 mailles centrales ?
13.11.2017 - 22:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Villaume, le diagramme A.3 semble correct, que pensez-vous avoir vu comme erreur, pouvez-vous nous en dire plus? Merci d'avance.
14.11.2017 - 09:14
Annely#annelyset |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðu eyrnabandi og handstúkum með köðlum úr DROPS Flora.
DROPS 182-12 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.2 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um eyrnaband): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 6 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 4. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur. ÚTAUKNING-1 (á við um op fyrir þumal á handstúkum): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Aukið síðan út hvoru megin við útauknar lykkjur þannig að það myndist op. ÚTAUKNING-2 (á við um handstúkur): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur), mínus lykkjur sem ekki á að auka út yfir (t.d. 22 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 2. Í þessu dæmi þá er aukið út á eftir annarri hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. EYRNABAND: Fitjið upp 42 lykkjur á prjón 2,5 með Flora. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 sléttar kantlykkjur, * 3 sléttar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 3 sléttum kantlykkjum = 54 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 3 sléttum kantlykkjum í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat). Prjónið síðan A.1 (= 54 lykkjur) þar til stykkið mælist ca 48-54 cm – endið eftir 6. umferð í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi eins. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið JAFNFRAMT um 12 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 42 lykkjur. Prjónið 5 umferðir slétt og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. BAND: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 14 lykkjur á prjón 2,5 með Flora. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 4 lykkjum), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 10 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá, setjið bandið saman í hring og saumið affellingarkantinn saman við uppfitjunarkantinn með einu spori í hverja lykkju. Dragið eyrnabandið sjálft í gegnum hringinn. Saumið eyrnabandið saman við miðju að framan – saumið affellingarkantinn við uppfitjunarkantinn með einu spori í hverja lykkju. Staðsetjið bandið við miðju að framan þannig að saumurinn sjáist ekki. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 67-72 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 16-18 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar stykkið mælist 5-6 cm eru lykkjurnar í hverjum kaðli prjónaðar slétt saman 2 og 2 umferðina hringinn (aðrar lykkjur eru prjónaðar brugðnar) = 48-54 lykkjur. Prjónið síðan sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 10-11 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: S/M: Prjónið 2 lykkjur slétt, 9 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt framan og aftan í hvora af næstu 2 lykkjum (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 9 lykkjur brugðið og 26 lykkjur slétt = 50 lykkjur. L/XL: Prjónið 3 lykkjur slétt, 9 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt framan og aftan í hvora af 2 næstu lykkjum (= 2 lykkjur fleiri), 9 lykkjur brugðið, prjónið 31 lykkju slétt og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir þessar 31 lykkjur = 54 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð í báðum stærðum þannig: 2-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (= 22 lykkjur) og prjónið 26-29 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 14-15 cm byrjar útaukning fyrir op fyrir þumal. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við síðustu lykkju í umferð (þ.e.a.s. innan í hönd) – lesið ÚTAUKNING-1. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í 3. hverri umferð alls 6-7 sinnum = 13-15 þumallykkjur og alls 62-68 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 19-21 cm eru 13-15 þumallykkjur + 1 lykkja hvoru megin við þær settar á þráð (= 15-17 lykkjur á þræði). Í næstu umferð eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 50-54 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.3 eins og áður þar til stykkið mælist 21-22 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 14 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum – lesið ÚTAUKNING-2 (ekki er aukið út um 22 lykkjur í A.3) = 64-68 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn – ATH: A.4 sýnir hvernig A.2 passar yfir A.3, það eiga að vera 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur kaðlar alla umferðina hringinn. Þegar prjónaðar hafa verið 10 umferðir með A.2 mælist öll handstúkan ca 24-25 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ÞUMALL: Setjið til baka 15-17 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 2,5 og prjónið að auki upp 9-7 lykkjur í kanti á bakhlið á þumallykkjum (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja af þeim 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp + 3-2 lykkjur hvoru megin við þessar 3 lykkjur) = 24-24 lykkjur. Prjónið 3-5 umferðir sléttprjón hringinn. Prjónið síðan 6 umferðir með A.2 áður en fellt er af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 64-72 lykkjur á sokkaprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 16-18 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar stykkið mælist 5-6 cm prjónið lykkjur í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 umferðina hringinn (aðrar lykkjur eru prjónaðar brugðið) = 48-54 lykkjur. Prjónið síðan sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 10-11 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: S/M: Prjónið 26 lykkjur slétt, 9 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt fram og til baka í hvora af 2 næstu lykkjum (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 9 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt = 50 lykkjur. L/XL: Prjónið 31 lykkju slétt og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir þessar 31 lykkjur, prjónið 9 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju framan og aftan í hvora af næstu 2 lykkjum (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 9 lykkjur brugðið og 3 lykkjur slétt = 54 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig í báðum stærðum: 26-29 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (= 22 lykkjur) og endið með 2-3 lykkjum sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 14-15 cm byrjar útaukning fyrir op fyrir þumal. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við aðra lykkju í umferð (þ.e.a.s. innan í hönd) – lesið ÚTAUKNING-1. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í 3. hverri umferð alls 6-7 sinnum = 13-15 þumallykkjur fyrir op og alls 62-68 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 19-21 cm eru settar 13-15 þumallykkjur + lykkja hvoru megin við þær á þræði (= 15-17 lykkjur á þræði. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 50-54 lykkjur. Haldið svona áfram í sléttprjón og A.3 eins og áður þar til stykkið mælist 21-22 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 14 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum – lesið ÚTAUKNING-2 (ekki er aukið út yfir 22 lykkjur í A.3) = 64-68 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn – ATH: A.4. sýnir hvernig A.2 passar yfir A.3, það eiga að vera 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur kaðlar umferðina hringinn. Þegar prjónaðar hafa verið 10 umferðir með A.2 mælist öll handstúkan ca 24-25 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið þumal á sama hátt og á vinstri handstúku. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #annelyset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.