DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Catch Me If You Can

Settið samanstendur af: Prjónuðu eyrnabandi, hálsskjóli og handstúkum með hálfu klukkuprjóns - afbrigði og köðlum úr DROPS Karisma.

DROPS 182-19
DROPS Design: Mynstur u-832
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca 300 g DROPS Karisma.

EYRNABAND:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 54/58 cm.
Mál:
Ummál: ca 49-51 cm.
Breidd: ca 9 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tillheyrir garfnlokki B)
50 g litur 69, ljós grágrænn

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Mál:
Ummál: ca 65 cm.
Hæð: ca 35 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200 g litur 69, ljós grágrænn

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M - M/L
Mál:
Ummál: ca 18-20 cm.
Lengd: ca 21-23 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 69, ljós grágrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5 (60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3.
Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.4 til A.7.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 21 lykkja), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 3,5.
Í þessu dæmi er aukið út til skiptis á eftir 3. og 4. hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum er prjónað til skiptis 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja saman.

ÚTAUKNING (á við op fyrir þumal):
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Í næsta skipti sem aukið er út er prjónað þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu í 6. hverri umferð þannig, þ.e.a.s. aukið út allan tímann að utan verðu við útauknu lykkjurnar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman við miðju að aftan.

EYRNABAND:
Fitjið upp 21 lykkjur á prjón 4 með Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt (= ranga).
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 27 lykkjur. Prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu með 2 lykkjur slétt í hvorri hlið. Prjónið síðan A.1 fram og til baka þar til stykkið mælist ca 49-51 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Mátið e.t.v. eyrnabandið og endið þegar prjónaðar hafa verið 1 eða 3 umferðir eftir umferð með köðlum. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 21 lykkja. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman uppfitjunarkant við affellingarkant með lykkjuspori.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 135 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2 (= 3 mynstureiningar með 45 lykkjum). Þegar A.2 er hefur verið prjónað til loka eru 147 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 3 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið A.3 (= 3 mynstureiningar með 49 lykkjum).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist ca 33 cm – endið þegar prjónaðar hafa verið ca 2 umferðir eftir umferð með köðlum. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð eins og áður, en á eftir hverjum kaðli er fækkað um 2 lykkjur með því að prjóna tvær fyrstu og tvær síðustu lykkjurnar í hverjum kaðli slétt saman (= 12 lykkjur færri) = 135 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn (= 3 mynstureiningar með 45 lykkjum). Þegar A.2B hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Hálsskjólið mælist ca 35 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

VINSTRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 51-54 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 4 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 2-1 lykkju jafnt yfir þessar 4 lykkjur, prjónið A.4 (= 17 lykkjur sem fækkaðar eru til 16 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir þær 30-33 lykkjur sem eftir eru og fækkið jafnframt um 8-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 40-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: 2-3 lykkjur sléttprjón, A.5 (= 16 lykkjur), 22-25 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12 cm er sett 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út fyrir op fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 4 sinnum (allan tímann er aukið út utan verðu við útauknar lykkjur þannig að það verður op fyrir þumal) = 48-52 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-19 cm. Haldið áfram með mynstur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir síðustu útaukningu eru 9 þumallykkjur settar á þráð, að auki eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 41-45 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.5 þar til stykkið mælist ca 18-20 cm (nú eru eftir 3 cm til loka – mátið e.t.v. handstúkuna, prjónið að óskuðu máli og endið þegar prjónaðar hafa verið ca 2 umferðir á eftir umferð með köðlum). Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 2-3 fyrstu lykkjur og aukið jafnframt út 2-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 16 lykkjur í A.5 og aukið jafnframt út um 1 lykkju yfir A.5, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 22-25 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 51-54 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll handstúkan mælist ca 21-23 cm.

ÞUMALL:
Setjið til baka 9 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 6 nýjar lykkjur á bakhlið á þumli (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp + 2 lykkjur hvoru megin við þessar 2 lykkjur) = 15 lykkjur. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (passið uppá að þumallinn verði ekki prjónaður of fast).
Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 51-54 lykkjur á sokkaprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 30-33 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.6 (= 17 lykkjur sem fækkaðar eru til 16 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 4 lykkjur og fækkið jafnframt um 2-1 lykkjur jafnt yfir þessar 4 lykkjur = 40-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: 2-3 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12 cm er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út fyrir op fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 4 sinnum (allan tímann er aukið út utan verðu við útauknar lykkjur þannig að það verður op fyrir þumal) = 48-52 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-19 cm. Haldið áfram með mynstur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir síðustu útaukningu eru 9 þumallykkjur settar á þráð, að auki eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 41-45 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.7 þar til stykkið mælist ca 18-20 cm (stillið af eftir vinstri handstúku). Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 22-25 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 16 lykkjur í A.7 og aukið jafnframt út um 1 lykkju yfir A.7 og prjónið sléttar lykkjur yfir 2-3 síðustu lykkjur og aukið jafnframt út um 2-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 51-54 lykkjur í umferð. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) í 3 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll handstúkan mælist ca 21-23 cm.

Prjónið þumal á sama hátt og á vinstri handstúku.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = Prjónið 1 lykkju slétt í lykkju frá fyrri umferð, þ.e.a.s. stingið hægri prjón í gegnum lykkju frá fyrri umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna og sleppið síðan lykkjunni niður og fyrsta lykkjan sem er á prjóni situr á vinstri prjóni
symbols = Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = Prjónið 1 lykkju framan í og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Svenja wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zum Diagramm A1 Wenn in diesem Diagramm Hin- und Rückreihen dargestellt sind und linke Maschen in Rückreihen rechts gestrickt werden sollen, warum sind dann z.B. die 4. und 5. Maschen immer links eingezeichnet? Müßten diese in Rückreihen nicht rechts gestrickt werden?

16.11.2023 - 19:28

DROPS Design answered:

Liebe Svenja, die leere Kästchen werden rechts bei den Hinreihen gestrickt, aber die 2 ersten und letzten Maschen in A.1 werden Krausrechts gestrickt: rechts bei den Hinreihen und rechts bei den Rückreihen (2. Symbol). So beginnt A.1 mit 2 Krausrechte Maschen, 1 tiefgestochene Masche, 2 Maschen links und endet mit 2 Maschen links, k 1 tiefgestochene Masche und 2 Krausrechte Maschen. Viel Spaß beim stricken!

17.11.2023 - 08:27

country flag Jane wrote:

Ni kan ta bort min tidigare fråga. Jag hittade en viseo hur man gör en dubbelmaska. Om ni skriver i diagrammet att det gäller en dubbelmaska (vid den fyllda rutan) så hade det varit en självklarhet att koppla det till rätt video. Jag menar att ni skriver ju ut rät maska och avig maska så det vore en hjälp att också skriva ut dubbelmaska. Jag trodde att en dubbelmaska var när man stickar ihop två maskor till en.

21.11.2022 - 09:41

country flag Jane wrote:

HJÄLP! Jag förstår inte hur man gör den maska som är markerad med helsvart ruta i diagrammet. Jag har gjort det förut men när jag ska fortsätta på en gammal stickning så har jag GLÖMT hur man gör och jag hittar ingen info någonstans i form av tex en video. Snälla svara snabbt!

21.11.2022 - 09:29

DROPS Design answered:

Hei Jane. Så bra at du fant ut av det selv. Hjelpevideoene er som regel generelle videoer og skal være til mange forskjellige oppskrifter. Noen med og noen uten diagram, noen har med selve ordet dobbeltmaske, mens andre ikke bruker ordet. God fornøyelse videre med strikkingen. mvh DROPS Design

21.11.2022 - 13:12

country flag Irena wrote:

Witam. Robię mitenki i nie pasuje mi oczko nr 3 i nr 14 schematu A5. Jest przerabiane jako oczko lewe, a w kolejnym rzędzie jako oczko prawe z wbiciem drutu w poprzednie. Czy schemat jest poprawny? Czy oczko poprzedniego rzędu, w które wbijamy drut nie powinno być oczkiem prawym?

29.09.2022 - 21:44

DROPS Design answered:

Witaj Ireno, wszystko jest w porządku, przerabiaj zgodnie ze schematem. Na prawej robótki wbijasz drut pod oczkiem lewym - czyli de facto wbijasz drut, ale w oczko prawe (1 rząd poniżej). Pozdrawiamy!

30.09.2022 - 09:50

country flag Judith wrote:

I am knitting the left wrist warmer but I do not understand the instructions “Knit the first 4 stitches and decrease, at the same time, 2-1 stitches evenly over these 4 stitches”

11.02.2021 - 22:07

DROPS Design answered:

Hi Judith, This means that if you are working the smaller size, you decrease the 4 stitches to 2, if you are working the larger size you decrease the 4 stitches to 3. Hope this helps and happy knitting!

12.02.2021 - 07:49

country flag Birgitta wrote:

Enligt diagrammet ska man sticka maskan ovanför den svarta rät från avigsidan.... men det blir galet när man sen ska sticka dubbelmaskan. Bättre att göra den ovanför avig från avigsidan (eller rät från rätsidan)

31.01.2021 - 09:23

country flag Karen Harvey wrote:

Hi, would you please consider writing the stitch names in the key please? For example, the black square in the key is a "double stitch", people seem to have trouble figuring this out from the explanation. If you called it "double stitch" before the explanation they would know to look for the video.

04.12.2020 - 01:07

country flag Celine C wrote:

Bonjour,\r\nConcernant les mitaines comment savoir si on doit faire la taille S/M ou M/L ?\r\nAvez vous des tailles en rapport et qu\'elle partie de la main à mesurer?\r\nCordialement

25.09.2020 - 15:05

country flag Anna wrote:

Det var väldigt svårt att förstå utifrån beskrivningen hur man skulle sticka den helsvarta rutan. Hade det inte funnits en fråga (med en film som svar och som sa vad denna maska kallades) så hade jag inte kunnat förstå. Annars ett fint mönster!

27.11.2019 - 16:22

country flag Dagmar wrote:

Ich möchte das Stirnband stricken und finde die Anleitung zweideutig.Wenn ich die Anleitung von rechts nach links und in der nächsten Reihe von links nach rechts lesen soll, weshalb muss ich dann auch noch die Maschen umdenken?Habe ich nun am Rand auf der Außenseite später lauter rechte oder lauter linke Maschen oder kraus rechts, also abwechselnd eine Reihe rechts und eine Reihe links? Ich weiß nicht warum hier die Anweisung so kompliziert ist und auf dem Foto kann ich es nicht sehen.

01.10.2019 - 12:17

DROPS Design answered:

Liebe Dagmar, die Diagramme zeigen alle Reihen, dh Hin- sowie Rückreihen, wie sie von der Vorderseite aussehen. Wenn Sie dan A.1 stricken, werden alle leere Kästchen rechts bei den Hinreihen (in jeder 1., 3., 5., usw Reihe) und dann aber links bei den Rückreihen (selben Reihen), das - wird links bei den Hinreihen gestrickt und dann rechts bein den Rückreihen. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!

01.10.2019 - 13:26