Celestine skrifaði:
I found the chart very hard to follow, mainly because it is printed in black and white and on such small scale (narrow band). I had to refer to the colour photograph all the time. Unfortunately the best one (closeup) was done in a different colourway.
26.02.2025 - 20:07
Françoise Roget skrifaði:
Bonkour Je ne trouve pas les coloris indiqués dans la version violette??? Merci de vos explications Cordialement
21.08.2024 - 17:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Roget, les coloris du nuancier DROPS Alpaca ont été actualisés depuis la publication de ce modèle, votre magasin DROPS saura vous conseiller, même par mail ou téléphone les couleurs idéales correspondant à vos envies. Bon tricot!
22.08.2024 - 08:09
Debbie Anderson skrifaði:
Hello, I just wanted to check if you don’t mind, I can’t seem to find measurements for the sizes we can knit the jacket in. Not really sure which size I would need to knit. Thank you for your help.
17.07.2021 - 11:21DROPS Design svaraði:
Dear Debbie, you can always find the measurements of the finished piece on the scematic drawing at the pottom of the page. We always suggest that you tale a sweater that fits and compare the numbers. Happy Stitching!
17.07.2021 - 12:01
Kaarel Kalatraaler skrifaði:
Hello, I think that there is a little mistake in description of making elevation. Knitting of te elevation begins on the right side, is in total 8 rows and is finished on wrong side. The description says to continue with purl till the end of the row. But on this way the left front part will have 2 extra rows. Should it not be correct to turn after the last short row and knit till the end of the row to make it equal?
19.04.2021 - 10:51
Marie Provencher skrifaði:
Je veux tricoter Drops Blueberry Fizz Jacquet et je ne vois pas les coordonnées pour l’échantillon pouvez-vous me le faire parvenir.Merci
23.03.2021 - 23:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Provencher, vous trouverez toutes les infos sur l'échantillon sous la liste des fournitures nécessaires, avec la taille des aiguilles proposées. Bon tricot!
24.03.2021 - 08:51
Mary skrifaði:
Thanks for helping.I’ve one more question .from wrong side should i follow as A.1B=1 stitch,then 6 stitches,then 1 stitch and then 6 sts and repeat it?
21.01.2019 - 22:11DROPS Design svaraði:
Dear Mary, yes that's correct, from WS work 5 sts in garter st, A.1B = 1 st, repeat the sts in A.1A (reading from the left towards the right), and finish with 5 sts in garter st. Happy knitting!
22.01.2019 - 08:33
Mary skrifaði:
Hi,i’m working on M size,inc 5 row although numb of stitches are correct but design dont come correct. i follow design from right side to left and purl design from left side to right.what im doing wrong dont know 😩
20.01.2019 - 19:42DROPS Design svaraði:
Dear Mary, on 5th increase row repeat is now worked over 6 sts, you have now 299 sts and work as follows: 5 front band sts, repeat A.1A a total of times, work A.1B and 5 front band sts = 5+ (6 sts x 48) + 1 +5 = 299 sts. Happy knitting!
21.01.2019 - 12:16Maryyam skrifaði:
Hello,i am very much intressted to know about the diagram A.1Afor M size.After elivation should i repeat from left side of diagram with A.1B (1 stitch)and continue with 4 stitched of A.1,mean total 5 stitches on this round? and on next line continue with 4 stitches A.1A from right side of the diagram?
15.12.2018 - 23:10DROPS Design svaraði:
Dear Maryyam, you will work A.1 from RS like this: 5 front band sts, repeat A.1A a total of 26 times, then work A.1B (= 1 st) and finish with 5 front band sts. From WS, work then A.1B and A.1A reading diagram from the left towards theh right. Happy knitting!
17.12.2018 - 09:58
Pata Corine skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas comment relever les 8 mailles sous la manche.
20.11.2018 - 09:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pata, quand vous reprenez les mailles de la manche, relevez 1 maille dans chacune des 8 mailles que vous avez monté lors de la division de l'ouvrage pour séparer le dos/les devants et les manches. Cette vidéo montre (à partir du time code 9:37) comment procéder. Bon tricot!
20.11.2018 - 11:30
DROPS Design skrifaði:
Colour combinations shown are: A) DROPS Alpaca 607, 618, 2020, 7139, 2915, 2925, 6309, 2923
06.02.2018 - 10:25
Blueberry Fizz Jacket#blueberryfizzjacket |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL.
DROPS 180-8 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 7,1. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur svo að ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki við miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum bleikvínrauður og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 8-8-8-9-9-10 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-16-18-18-20 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-27-27-30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-32-36-36-40 lykkjur brugðið. Haldið áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 8-8-8-9-9-10 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við (munið eftir að herða á þræði í hvert skipti sem snúið er við) þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir alls 64-64-64-72-72-80 lykkjur og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður slétt). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum á berustykki, prjónið grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÁLSMÁL: Fitjið upp 132-136-140-148-152-160 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 115-119-123-131-135-143 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR-1 og 2! Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 sléttum kantlykkjum að framan í hvorri hlið. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 26-27-28-30-31-33 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1A eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING (alltaf er aukið út í umferð frá réttu) og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Ör-1: aukið út 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 151-159-167-179-187-199 lykkjur. Ör-2: aukið út 36-38-40-44-48-50 lykkjur jafnt yfir = 187-197-207-223-235-249 lykkjur. Ör-3: aukið út 28-34-36-40-48-50 lykkjur jafnt yfir = 215-231-243-263-283-299 lykkjur. Ör-4: aukið út 28-34-40-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 243-265-283-303-327-347 lykkjur. Ör-5: aukið út 26-34-34-38-44-48 lykkjur jafnt yfir = 269-299-317-341-371-295 lykkjur. Ör-6: aukið út 26-32-34-38-40-40 lykkjur jafnt yfir = 295-331-351-379-411-435 lykkjur. Ör-7: aukið út 24-28-32-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 319-359-383-415-451-475 lykkjur. Ör-8: aukið út 20-20-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 33-379-411-443-483-507 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 24-24-24-28-28-28 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan sléttprjón með litnum blár/fjólublár og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar till stykkið mælist 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (ef prjónfestan passar á hæðina þá hefur þetta mál náð S og XL þegar A.1 hefur verið prjónað til loka). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 54-59-63-69-76-82 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 67-77-85-89-95-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 97-107-115-127-141-153 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 67-77-85-89-95-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 54-59-63-69-76-82 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 221-241-261-285-317-345 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 58-63-68-74-82-89 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 105-115-125-137-153-167 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka með blár/fjólublár og 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 1-1-2-2-2-2 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8. hverri umferð (með ca 2½ cm millibili) til loka (ef prjónfestan passar á hæðina er aukið út 13 sinnum í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 32-33-34-34-34-34 cm frá skiptingu eru ca 273-293-313-337-369-397 lykkjur í umferð. Prjónið 8 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 67-77-85-89-95-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum blár/fjólublár = 75-85-95-99-107-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferðina hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi- lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 12-16-19-20-23-23 sinnum = 51-53-57-59-61-63 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 34-34-33-32-30-28 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-19-19-21-19-21 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm (eða að óskaðri lengd) er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-42-41-40-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueberryfizzjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.