DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12870.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blueberry Fizz

Prjónuð peysa og húfa úr DROPS Alpaca. Peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Húfa með marglitu norrænu mynstri.

DROPS 180-7
DROPS Design: Mynstur z-794
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca:
300-300-350-350-400-450 g litur 6736, blár/fjólublár
50-50-100-100-100-100 g litur 3800, bleikfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 2020, ljós camel
50-50-50-50-50-50 g litur 6309, turkos/grár
50-50-50-50-50-50 g litur 7233, gulgrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 7238, dökk ólífa
50-50-50-50-50-50 g litur 7240, bensínblár
50-50-50-50-50-50 g litur 7323, sjávarþoka

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 6736, blár/fjólublár
50-50-50-100-100-100 g litur 3800, bleikfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 2020, ljós camel
50-50-50-50-50-50 g litur 6309, turkos/grár
50-50-50-50-50-50 g litur 7233, gulgrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 7238, dökk ólífa
50-50-50-50-50-50 g litur 7240, bensínblár
50-50-50-50-50-50 g litur 7323, sjávarþoka

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 2020, ljós camel
50-50 g litur 3800, bleikfjólublár
50-50 g litur 6309, turkos/grár
50-50 g litur 6736 blár/fjólublár
50-50 g litur 7233, gulgrænn
50-50 g litur 7238, dökk ólífa
50-50 g litur 7240, bensínblár
50-50 g litur 7323, sjávarþoka

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Alpaca 607, 618, 2020, 7139, 2915, 2925, 6309, 2923

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12870.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 7,5.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 6. og 7. hverja lykkju og 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN (á við aftan í hnakka á peysu):
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með bleikvínrauður og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 8-8-8-9-9-10 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-16-18-18-20 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-27-27-30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-32-36-36-40 lykkjur brugðið. Haldið áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 8-8-8-9-9-10 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við (munið eftir að herða á þræði í hvert skipti sem snúið er) þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir alls 64-64-64-72-72-80 lykkjur og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.2.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

KANTUR Í HÁLSIMÁLI:
Fitjið upp 120-124-128-136-140-148 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 104-108-112-120-124-132 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR!
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er A.1 prjónað hringinn (= 26-27-28-30-31-33 mynstureiningar 4 lykkjur).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1 eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Ör-1: aukið út 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 140-148-156-168-176-188 lykkjur.
Ör-2: aukið út 36-38-40-44-48-50 lykkjur jafnt yfir = 176-186-196-212-224-238 lykkjur.
Ör-3: aukið út 28-34-36-40-48-50 lykkjur jafnt yfir = 204-220-232-252-272-288 lykkjur.
Ör-4: aukið út 28-34-40-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 232-254-272-292-316-336 lykkjur.
Ör-5: aukið út 26-34-34-38-44-48 lykkjur jafnt yfir = 258-288-306-330-360-384 lykkjur.
Ör-6: aukið út 26-32-34-38-40-40 lykkjur jafnt yfir = 284-320-340-368-400-424 lykkjur.
Ör-7: aukið út 24-28-32-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 308-348-372-404-440-464 lykkjur.
Ör-8: aukið út 20-20-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 328-368-400-432-472-496 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 24-24-24-28-28-28 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan sléttprjón með litnum blár/fjólublár þar til stykkið mælist 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (ef prjónfestan passar á hæðina þá hefur þetta mál náð S og XL þegar A.1 hefur verið prjónað til loka).
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 49-54-58-64-71-77 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 67-77-85-89-95-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 97-107-115-127-141-153 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 67-77-85-89-95-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 48-53-57-63-70-76 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá.
Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 210-230-250-274-306-334 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og prjónið sléttprjón í hring með litnum blár/fjólublár. Þegar stykkið mælist 1-1-2-2-2-2 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8. hverri umferð (með ca 2½ cm millibili) til loka (ef prjónfestan passar á hæðina eru aukið út 13 sinnum í hvorri hlið).
Þegar stykkið mælist 32-33-34-34-34-34 cm frá skiptingu eru ca 262-282-302-326-358-386 lykkjur í umferð. Prjónið 8 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 67-77-85-89-95-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með blár/fjólublár = 75-85-95-99-107-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferðina hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi- lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 12-16-19-20-23-23 sinnum = 51-53-57-59-61-63 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 34-34-33-32-30-28 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-19-19-21-19-21 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm (eða að óskaðri lengd) er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-42-41-40-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 128-136 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið 2-4 umferðir sléttprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 2-4 lykkjur jafnt yfir = 130-140 lykkjur. Prjónið síðan A.2 (= 13-14 mynstureiningar 10 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir í A.2 eru 156-168 lykkjur í umferð. Í umferð merktri með ör-9 í A.2 er fækkað um 12-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 144-152 lykkjur. Haldið áfram með A.2 (= 18-19 mynstureiningar 8 lykkjur). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 36-38 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð með litnum blár/fjólublár þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 18-19 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 24-25 cm ofan frá og niður.

Mynstur

symbols = gulgrænn
symbols = dökk ólífa
symbols = ljós camel
symbols = sjávarþoka
symbols = turkos/grár
symbols = blár/fjólublár
symbols = bensínblár
symbols = bleikfjólublár
symbols = útaukning/úrtaka
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman með blár/fjólublár
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Blueberry Fizz

Meizepol, France

Blueberry Fizz

Marion, Germany

Blueberry Fizz

StickPiri, Sweden

Blueberry Fizz

Raphaelle, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Susan wrote:

Someone is selling this and others of your patterns on Etsy as heritage patterns

01.03.2024 - 11:53

country flag Bernike Pasveer wrote:

De ikoontjes in het telpatroon komen niet helemaal overeen met de uitleg ervan, in het bijzonder vind ik het tekentje in o.a. de eerste twee naalden van A1 (maten s.m.l) niet terug in de uitleg. Het lijkt op het sterretje (dat geel-groen moet zijn), maar het is niet hetzelfde. Groet, Bernike

11.12.2023 - 16:06

DROPS Design answered:

Dag Bernike,

Het is geel/groen, maar het lijkt inderdaad een beetje anders doordat de symbooltjes in het telpatroon tegen elkaar aan zitten.

13.12.2023 - 21:19

country flag Jackie Harmer wrote:

I’m disappointed to see that most of the colours stated in the pattern are no longer available and am considering using Baby Merino wool. I have a problem with some wools causing itching to my skin. I know that Merino is usually ok. Is Alpaca as kind to the skin as Merino or might it be slightly more itchy?

01.10.2023 - 12:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Harmer, please feel free to contact your DROPS store to check with them all colours - they will be able also to provide you any assistance for choosing the best matching yarn. Happy knitting!

02.10.2023 - 10:29

country flag Neil Chris wrote:

J'aimerais faire le pull avec les couleurs orangées/bleu de l'échantillon que vous montrez à la fin des modèles. Pouvez vous me donnez les couleurs que vous avez employées, je trouves ce là très joli

24.02.2023 - 18:53

DROPS Design answered:

Bonjour Chris, tout à fait, ce sont les couleurs DROPS Alpaca 607, 618, 2020, 7139, 2915, 2925, 6309, 2923. Bon tricot!

27.02.2023 - 09:12

country flag Tara wrote:

Het lijkt wel een heel ander model als op de foto...ander patroon

19.02.2023 - 17:40

country flag Margot Robartes wrote:

Why does this pattern Black Berry Fizz pattern no z - 794, when neck Ribbing is completed, you then need to DECREASE stitches before starting the Yoke. Whilst the pattern Heim, pattern no z - 869, when the ribbing is completed you have to increase stitches before starting the Yoke???

21.05.2022 - 02:21

DROPS Design answered:

Dear Margot, this is due to the height of the rib. Pattern 180-7 has a low neck edge, so we cast on more stitches so that it doesn't tighten and we need to decrease these stitches to work a normal yoke. In the other pattern, the yoke is higher, so we cast on less stitches, so that it's more easily adjusted around the neck. Then you need to increase stitches to obtain the necessary ones for the yoke. Happy knitting!

22.05.2022 - 22:47

country flag Anja wrote:

Ich habe das Model Blueberry Fizz in XL exakt nach Strickanleitung gestrickt. Als unterer Abschluss des Rumpfteils sind 4 Krausrippen über die gesamte Maschenzahl vorgesehen. Leider klappt dieser Abschluss um 180 Grad um und steht hoch, statt nach unten zu hängen. Was kann ich da anders machen? Vielen Dank für einen Tipp!

14.09.2021 - 15:44

DROPS Design answered:

Liebe Anja, Sie können den Pullover mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß!

14.09.2021 - 16:15

country flag Brigitte wrote:

Bonjour, mon échantillon de jersey fait 23x31 , mais je suis entre la taille M’et L , mon tour de poitrine est de 100 cm . Que faire ? prendre une aiguille de 2,5 ou garder le 3 ? Merci !

18.02.2021 - 10:36

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, gardez les aiguilles no 3. Bon tricot!

18.02.2021 - 18:03

country flag Brigitte wrote:

Bonjour, ce pull me plaît beaucoup pour son motif jacquard mais je n’aime pas trop la forme du bas en trapèze . Comment faire pour le tricoter plus droit ?

20.11.2020 - 12:22

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, le pull se tricote de haut en bas, si vous ne souhaitez pas la forme trapèze, il vous suffira de ne pas faire les augmentations sur les côtés, les mesures du bas seraient dans ce cas identiques à celles du haut = 44-48-52-57-64-70 cm au lieu de 55-59-63-68-75-80 cm. Bon tricot!

20.11.2020 - 14:33

country flag Clare D wrote:

I'd like to make this but without the fair isle pattern - perhaps in a multicolour yarn? What is the total weight of (single or multi-colour) yarn I'd need?

10.12.2019 - 15:30

DROPS Design answered:

Dear Clare D, since we have worked this pattern with a fair isle pattern, we unfortunately don't have the amount of yarn of a single colour - you can add every colour, you would probably require less - check here jumper pattern with round yoke to inspire you. Happy knitting!

10.12.2019 - 16:08