Deb skrifaði:
Hi im working on this sweather and im at the point where i need to cast on the 8 stitches under the sleeve, is there a video that shows this, Ive put the 64 stitches on the thread for the sleeve, but where do i take the 8 stiches from, this is a new technique for me, Thanks so much for your help
28.03.2019 - 03:28DROPS Design svaraði:
Hi Deb, You cast on the 8 stitches from the last stitch on the body (before the stitches you have put on a thread for the sleeve) and then continue working the stitches on the other side of the sleeve. I hope this helps and happy knitting!
28.03.2019 - 07:07
Deb skrifaði:
Hi I am making this project, which I love, but im having a problem with the pattern , the beginning and end rows do not line up evenly, Im one row off , this is on the yoke where all the colours are, |:( any suggestions, I wish i could email u a pic of it
28.03.2019 - 03:23
Petra skrifaði:
Hoe doe ik dit? In het bij het patroon is toegevoegde filmpje gaat het anders dan hier staat. "MOUW: en neem daarnaast 1 steek op in elk van de 8-8-10-10-10-14 opgezette steken onder de mouw, met lichtgrijs = 60-72-78-84-84-90 steken op de naald." Deze 8-8-10-10-10-14 zijn toch al gebreid in het lijf? (zie LIJF)
24.03.2019 - 11:04DROPS Design svaraði:
Dag Petra,
Er wordt bedoeld dat je steken opneemt in de opgezette steken onder de mouw bij het lijf, zodat je de mouw en het lijf met elkaar verbind en er geen gat ontstaat in de oksel.
25.03.2019 - 09:05
Petra skrifaði:
In het patroon staat: " en brei de overgebleven 41-44-49-52-58-62 steken recht (= ½ achterpand). Knip de draad af. LIJF: = 180-192-216-228-252-276 steken. Voeg 1 markeerdraad in het midden van de 8-8-10-10-10-14 steken welke opgezet zijn onder de mouw aan elke kant. Begin de naald bij een van de markeerdraden." Wat doe ik dan met die 41-44-49-52-58-62 steken die nog op de naald staan? Moet ik die overhalen op de naald? Breien kan niet omdat de draad is afgeknipt.
24.03.2019 - 10:57DROPS Design svaraði:
Dag Petra,
Je kan inderdaad de steken overzetten op de naald, zodat de naald op de juiste plek begint.
25.03.2019 - 09:01
Jacqueline skrifaði:
Hoe kan ik de hals van deze trui verhogen tot bijvoorbeeld de hoogte van de trui Night shades (DROPS design: Patroon u-874)?
04.01.2019 - 16:11DROPS Design svaraði:
Dag Jacqueline,
Helaas is het voor ons niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen. Je kan de patronen naast elkaar leggen en kijken of je het aantal steken op kan zetten van het patroon uit Night Shades en dan kijken of je op een aantal steken voor de hals komt, zodat je op een gegeven moment verder kunt breien met dit patroon.
05.01.2019 - 13:01Renee Farquhar skrifaði:
Would it be possible to knit a rib for the cuffs and collars?
25.12.2018 - 03:10DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Farquhar, you may work rib on collar and cuffs, but make sure to adjust the number of sts so that the width will not be tighten because of the ribs. Happy knitting!
02.01.2019 - 09:33
Britta skrifaði:
Pullover: Nach der letzten Zuhnahme -Pfeil 9- muss ich den MustersatzA1 doch erst zu Ende Stricken um dann mit Hellgrau und entsprechenden Maschen für die Größe fortzufahren?
28.11.2018 - 19:02DROPS Design svaraði:
Liebe Britta, eine Korrektur wird hier bald gemacht, A.1 soll bis zur Ende gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!
29.11.2018 - 13:06
Paola Bigatti skrifaði:
Eseguendo il corpo del maglione (che è bellissimo) ho notato alcuni errori. Di uno sono certa, degli altri ve lo segnalo come domanda. 1) Nella spiegazione dello sprone alla riga "sul ferro con la freccia 9" i conti non tornano...c'è scritto aumentare 6-10-14 ecc., INVECE , per ottenere il n. di maglie indicate dopo l'ultimo aumento bisogna aumentare SUL FERRO CON LA FRECCIA 9 AUMENTARE 12,16,20,20,20,16 maglie. Questo era l'errore di cui sono sicura.
07.01.2018 - 10:17DROPS Design svaraði:
Buongiorno Paola, abbiamo corretto il testo, grazie per la segnalazione. Buon lavoro!
07.01.2018 - 12:35
Marie Roters skrifaði:
Wie nehme ich gleichmäßig zu, wenn die Anzahl der zuzunehmenden Maschen nicht durch die Anzahl der vorhandenen Mädchen teilbar ist? Oder kann dort ein Fehler sein? Z.B. Bei der Zunahme mit dem Pfeil 2 in Größe s: 138 Maschen vorhanden 24 sollen zugenommen werden (5,75). Durch 23 wäre diese Zahl sehr schön teilbar (6). Ich habe jetzt versucht möglichst gleichmäßig abwechselnd alle 5 oder 6 Maschen zuzunehmen, aber das ist doch sehr umständlich und sieht nicht sehr gleichmäßig aus.
20.10.2017 - 09:24DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Roters, hier lesen Sie, wie man gleichmäßig verteilt ab- bzw zunimmt. Viel Spaß beim stricken!
20.10.2017 - 14:09
LISE Utengen skrifaði:
Navn på plagget:Trollheimen
30.07.2017 - 09:28
Winter Berries#winterberriessweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL. Prjónaðar handstúkur með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Karisma.
DROPS 181-16 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-12-13-14-15-16 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-24-26-28-30-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-36-39-42-45-48 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-48-52-56-60-64 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-60-65-70-75-80 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-72-78-84-90-96 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 5. Í þessu dæmi er aukið út á eftir 5. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist göt. Ef fækka á lykkjum þá eru prjónaðar 4. og 5. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR (á við um marglitt mynstur): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á böndum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-2 (á við um op fyrir þumal): Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Í næsta skipti sem aukið er út er prjónað þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukningu í 6. hverri umferð, þ.e.a.s. aukið er út allan tímann að utanverðu við útauknar lykkjur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-94-98-102-106-110 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós grár. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 18-20-22-30-32-34 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 108-114-120-132-138-144 lykkjur í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er prjónað A.1 hringinn (= 36-38-40-44-46-48 mynstureiningar 3 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1 eins og útskýrt er að neðan – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð með ör-1 er aukið út um 30-30-36-42-42-42 lykkjur jafnt yfir = 138-144-156-174-180-186 lykkjur. Í umferð með ör-2 er aukið út um 24-27-30-33-36-36 lykkjur jafnt yfir = 162-171-186-207-216-222 lykkjur. Í umferð með ör-3 er aukið út um 24-27-30-33-36-36 lykkjur jafnt yfir = 186-198-216-240-252-258 lykkjur. Í umferð með ör-4 er aukið út um 20-26-28-28-30-36 lykkjur jafnt yfir = 206-224-244-268-282-294 lykkjur. Í umferð með ör-5 er aukið út um 18-24-28-28-30-34 lykkjur jafnt yfir = 224-248-272-296-312-328 lykkjur. Í umferð með ör-6 er aukið út um 16-16-16-16-16-24 lykkjur jafnt yfir = 240-264-288-312-328-352 lykkjur. Í umferð með ör-7 er aukið út um 8-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 248-276-300-324-344-368 lykkjur. Í umferð með ör-8 er aukið út um 8-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 256-288-312-336-360-384 lykkjur. Í umferð með ör-9 er aukið út um 12-16-20-20-20-16 lykkjur jafnt yfir = 268-304-332-356-380-400 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað með litnum ljós grár þannig: 41-44-49-52-58-62 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 52-64-68-74-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 82-88-98-104-116-124 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 52-64-68-74-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 41-44-49-52-58-62 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-192-216-228-252-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og prjónið A.2 hringinn (= 15-16-18-19-21-23 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 8 sinnum í hvorri hlið = 212-224-248-260-284-308 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32-33-34-34-34-34 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 8 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af með hringprjónum 4,5. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 52-64-68-74-74-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-10-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með ljós grár = 60-72-78-84-84-90 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2A hringinn (= 5-6-6½-7-7-7½ mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir A.2A er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 9-14-16-18-18-20 sinnum í S: Í 11. hverri umferð, í M: Til skiptis í 6. og 7. hverri umferð, í L: Til skiptis í 5. og 6. hverri umferð, í XL og XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 42-44-46-48-48-50 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-37-37-35-34-32 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá skiptingu að ofan, í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af með sokkaprjónum 4,5. Ermin mælist ca 42-41-41-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-11 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 42-45 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.3 hringinn (= 14-15 mynstureiningar 3 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-10 í mynsturteikningu er aukið út um 0-3 lykkjur jafnt yfir = 42-48 lykkjur. Haldið áfram með A.3. Í umferð merktri með ör-11 er fækkað um 2-4 lykkjur jafnt yfir = 40-44 lykkjur. Haldið áfram með A.3. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 4 sinnum (þ.e.a.s. allan tímann er aukið út utanverðu við útauknar lykkjur svo að það myndist gat fyrir þumal) = 48-52 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-19 cm. Haldið áfram með mynstur. JAFNFRAMT í 1. umferð á eftir síðustu útaukningu eru 9 lykkjur fyrir op á þumli settar á þráð, að auki eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 42-46 lykkjur. Prjónið A.3 til loka. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 2 lykkjur jafnt yfir = 44-48 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 3,5. Öll handstúkan mælist ca 23 cm í báðum stærðum. ÞUMALL: Setjið til baka 9 lykkjur af þræði á sokkaprjóna 3,5 og prjónið upp 7 nýjar lykkjur aftan við þumal með litnum ljós grár (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja af 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp + 2 lykkjur hvoru megin við þessar 3 lykkjur) = 16 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón (passið uppá að prjóna þumalinn ekki of fast). Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI HANDSTÚKA: Prjónið eins og hægri handstúka, nema spegilmynd, þ.e.a.s. þegar aukið er út fyrir op fyrir þumal er aukið út hvoru megin við síðustu lykkju í umferð, í stað hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterberriessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.