Daphne skrifaði:
Autocorrectie😒, Ik bedoelde natuurlijk dat ik geen GATEN bekom.
18.11.2018 - 20:42
Daphne skrifaði:
Voor de hiel wordt 5 cm gebreid. Ik heb ongeveer 30 rijen. (15R/15A). Nadien moetcik 13 steken opnemen? Hoe verdeel ik dit mooi zodat ik geen garen bekom??
18.11.2018 - 20:40DROPS Design svaraði:
Dag Daphne
Ik begrijp je vraag niet. Wat bedoel je met rijen? Bedoel je niet 30 steken? En wat bedoel je met verdelen? Je zet 13 steken op een hulpdraad en dan brei je met de overige steken de hiel zoals beschreven in het patroon.
19.11.2018 - 07:39
Pam skrifaði:
I’m a bit confused with how to work the beginning and end of the rounds when working A2a, it says on the increase row between A1 and A2 to stop 2 stitches early, does this mean I’m starting A2a two stitches early, if so do I always start the row two stitches early?
05.07.2018 - 14:13DROPS Design svaraði:
Dear Pam, round starts mid back on leg, first work A.2 (= 5 sts) then repeat A.2B (start 1st repeat in A.2B at the appropriate arrow for your size, then work diagram to the end - reading from the right towards the left - then start A.2B from the beg to work an entire repeat, and repeat A.2B from the beg again over the remaining sts, but you may have not enough sts to work the last repeat, because of the number of sts. Happy knitting!
05.07.2018 - 16:06
Régine PHILIPPE-VIANDIER skrifaði:
Existe-t-il des modèles chaussettes que l'on peut tricoter avec seulement 2 aiguilles droites ? Merci de votre aide
22.01.2018 - 03:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Philippe-Viandier, tout à fait, vous pourrez les trouver parmi nos modèles de chaussettes, nous n'avons pas encore de filtre pour ce type de chaussettes, mais vous les reconnaîtrez au sens du tricot. Bon tricot!
23.01.2018 - 08:46Murielle skrifaði:
Bonjour, je voudrais savoir pour chaque paire de bas il faut que j'achète DROPS NORD de Garnstudio (appartient au groupe de fil A) 100-100-100 g couleur 05, gris soit 1 balle pour la grandeur 41/43 de la couleur gris no.05 et 1 balle pour chacune des autres couleurs es-ce bien ça? 50 g pour les deux tailles des couleurs suivantes: couleur no 06, couleur gris foncé no 01, éteint Couleur blanche n ° 12, couleur poussiéreuse Les
24.08.2017 - 02:26DROPS Design svaraði:
Chere Murielle! Pour la grandeur 41/43 tu dois acheter 100 g couleur 05 (2 balles) et 1 balle pour chacune des autres couleurs (n° 06, gris foncé, n° 01, naturel, n° 12, rose poudré). 1 balle de la laine Nord = 50 g. Bon tricot!
24.08.2017 - 09:39
Telemark Socks#telemarksocks |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með marglitu norrænu mynstri og röndum úr DROPS Nord. Stærð 35-43.
DROPS 179-11 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef að það herpist saman. LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um tá): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Byrjun umferðar = miðja að aftan. SOKKUR: Fitjið upp 60-63-69 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-3-3 lykkjur jafnt yfir = 54-60-66 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 9-10-11 mynstureiningar 6 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt með litnum daufbleikur – aukið jafnframt út um 1-2-0 lykkjur jafnt yfir í umferð og endið umferð þegar 2 lykkjur eru eftir við miðju að aftan = 55-62-66 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: prjónið A.2A (= 5 lykkjur við miðju aftan á sokk), prjónið A.2B yfir næstu 50-57-61 lykkjur (byrjið A.2B við ör í þinni stærð og endurtakið mynstrið eins langt og það nær fram að A.2A). Haldið svona áfram með mynstrið. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1-2-0 lykkjur jafnt yfir = 54-60-66 lykkjur (= 9-10-11 mynstureiningar 6 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 endurtekið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-2-4 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 22-24-24 cm klippið þráðinn frá (endið eftir heila rönd með litnum dökk grár). Haldið eftir fyrstu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28-30-32 lykkjur á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón með litnum grár fram og til baka yfir 26-28-30 hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið í síðustu umferð. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýring að ofan! Eftir hælúrtöku er haldið áfram með A.4. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð með litnum grár þannig: Prjónið lykkjur frá hæl, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið lykkjur af þræði mitt ofan á fæti og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram annarri hlið á hæl = 68-72-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur ofan á fæti. Fækkið síðan lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 4-5-6 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Prjónið með litnum grár til loka og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-8-10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-2-1 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #telemarksocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.