DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Telemark

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS 179-9
DROPS Design: Mynstur me-108
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-500-550 g litur 04, milligrár
100-150-150-150-150-150 g litur 16, ljós bleikur
50-100-100-100-100-100 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-100 g litur 03, dökk grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 11. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 11. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Prjónuð er upphækkun frá miðju að aftan (= byrjun á umferð). Byrjið frá réttu og prjónið 12-13-14-14-15-15 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-28-30-30 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-42-45-45 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-56-60-60 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-70-75-75 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið að byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 (Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð – á við um A.1 og A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Allar umferðir í mynsturteikningu sýna mynstur séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

ÚRTAKA-1 (á við miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 9. og 10. hver lykkja saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Umferðin byrjar við miðju að aftan. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 88-96-100-104-108-112 lykkjur á stutta hringprjóna 3,5 með litnum milligrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur PERLUPRJÓN - sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 8-6-8-10-12-14 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 96-102-108-114-120-126 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð smá UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Haldið síðan áfram með 2-2-4-4-6-6 umferðir í sléttprjóni.
Prjónið nú MYNSTUR og útaukningu – lesið LEIÐBEININGAR!
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 16-17-18-19-20-21 mynstureining 6 lykkjur í fyrstu umferð í mynsturteikningu). Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í mynsturteikningu er aukið út jafnt yfir þannig – munið eftir ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Ör-1: Aukið út 30-36-42-42-48-48 lykkjur jafnt yfir = 126-138-150-156-168-174 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 30-36-42-42-48-48 lykkjur jafnt yfir = 156-174-192-198-216-222 lykkjur.
Ör-3: Aukið út 30-36-36-42-42-48 lykkjur jafnt yfir = 186-210-228-240-258-270 lykkjur.
Ör-4: Aukið út 30-36-36-42-42-48 lykkjur jafnt yfir = 216-246-264-282-300-318 lykkjur.
Ör-5: Aukið út 24-34-36-38-40-42 lykkjur jafnt yfir = 240-280-300-320-340-360 lykkjur.
Ör-6: Aukið út 30 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 270-310-330-350-370-390 lykkjur.
Ör-7: Aukið út 20-20-20-30-30-40 lykkjur jafnt yfir = 290-330-350-380-400-430 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 27-29-30-32-33-34 cm frá uppfitjunarkanti skiptast lykkjur upp fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig (A.1 er ekki lokið og heldur áfram eins og áður): Prjónið 41-48-50-55-59-65 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 63-68-75-80-82-84 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið 82-97-100-110-118-131 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-68-75-80-82-84 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), og prjónið 41-49-50-55-59-66 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 180-210-220-240-260-290 lykkjur. Haldið síðan áfram með A.1 eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.2 yfir A.1, EN í 1. umferð í A.2 er aukið út um 0-0-2-0-4-4 lykkjur jafnt yfir = 180-210-222-240-264-294 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Setjið fyrra prjónamerkið eftir 45-52-55-60-66-73 lykkjur og seinna prjónamerkið eftir 90-106-112-120-132-148 nýjar lykkjur, nú eru 45-52-55-60-66-73 lykkjur eftir í umferð á eftir seinna prjónamerkinu. Prjónið nú með milligrár til loka og prjónið sléttprjón. Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki). Aukið svona út með ca 4-5-5-5-5-5 cm millibili alls 5-4-4-4-4-3 sinnum = 200-226-238-256-280-306 lykkjur. Þegar stykkið mælist 23-23-24-24-25-26 cm er aukið út um 32-34-38-40-40-42 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 232-260-276-296-320-348 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (allur uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur perluprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Öll peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 63-68-75-80-82-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi (prjónið upp lykkjur með grunnlit í næstu umferð í mynstri) = 71-76-85-90-94-98 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.1 hringinn á ermi (mynstrið á ermi á að passa við mynstur frá berustykki) – ATH: í stærð S, M, L, XXL og XXXL kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp í lykkjufjölda mitt undir ermi, en til að koma í veg fyrir löng hopp eru prjónaðar eins margar lykkjur af mynstri A.1 eins og hægt er í umferð.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað A.2 yfir A.1 hringinn í umferð, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 72-78-84-90-96-96 lykkjur (þetta er gert til að mynstur A.1 geti gengið jafnt upp í lykkjufjölda): Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er sett eitt prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-14 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan með litnum milligrár. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í ca 6.-3.-3.-2.-2.-2. hverri umferð alls 6-9-9-12-12-12 sinnum = 60-60-66-66-72-72 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-12-12-10-10-9 cm prjónið mynstur A.3 (= 6 lykkjur) hringinn í umferð, JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í mynsturteikningu er lykkjum fækkað jafnt yfir þannig – lesið ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
ÖR-1: Fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 54-54-60-60-66-66 lykkjur.
ÖR-2: Fækkið um 6-6-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-48-54-54 lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið cm 33-31-31-29-29-28 cm frá skiptingu. Prjónið síðan með milligrár. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 4-4-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-62-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 3 lykkjur perluprjón) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 39-37-37-35-35-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.12.2018
Leiðrétting á ERMI: Prjónað er eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3, ekki A.1A og A.2A

Mynstur

symbols = natur
symbols = ljós bleikur
symbols = milligrár
symbols = dökk grár
symbols = útaukningsumferð - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Rosita wrote:

Buonasera, non mi è chiaro il passaggio sulla manica, Quando il lavoro misura 14-12-12-10-10-9 cm, lavorare il diagramma A.3 (= 6 maglie), ALLO STESSO TEMPO, sul giro indicato dalla freccia nel diagramma, 9cm eseguire lo schema a3, ma non è troppo presto a 9 cm? E poi le frecce x le diminuzioni sono quasi a metà del diagramma, giusto? Grazie 👋

28.02.2024 - 20:47

DROPS Design answered:

Buongiorno Rosita, le misure per l'inizio del diagramma A.3 sono corrette: le diminuzioni iniziano sui primi giri del diagramma. Buon lavoro!

02.03.2024 - 11:45

country flag Azza wrote:

Dans le modèle drops 179-9 Mon me demande de monté COL: Monter 88-96-100-104-108-112 mailles avec la petite aiguille circulaire 3,5 en gris moyen. Tricoter 1 tour endroit puis en côtes ainsi: *1 maille endroit, 3 mailles POINT DE RIZ – voir ci-dessus *, tricoter de *-* jusqu’à la fin du tour. Continuer en côtes ainsi pendant 4 cm. Mais je ne comprends pas je monte en côte ou au point de riz ?

12.02.2024 - 09:15

DROPS Design answered:

Bonjour Aza, les côtes sont formées par le point (1 maille endroit, 3 mailles point de riz), tricotez ainsi, de (à) pendant 4 cm. Bon tricot!

13.02.2024 - 08:00

country flag Azza wrote:

Dans le modèle drops 179-9 Mon me demande de monté COL: Monter 88-96-100-104-108-112 mailles avec la petite aiguille circulaire 3,5 en gris moyen. Tricoter 1 tour endroit puis en côtes ainsi: *1 maille endroit, 3 mailles POINT DE RIZ – voir ci-dessus *, tricoter de *-* jusqu’à la fin du tour. Continuer en côtes ainsi pendant 4 cm. Mais je ne comprends pas je monte en côte ou au point de riz ?

11.02.2024 - 23:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Azza, ce point fantaisie (1 m endroit, 3 mailles point de riz) va former des côtes, autrement dit, continuez ainsi. Bon tricot!

12.02.2024 - 09:31

country flag Kristel Rõõm wrote:

Juhendis: Kui töö kõrgus on 23-23-24-24-25-26 cm silmusemärkijast, kahanda 32-34-38-40-40-42 silmust ühtlaste vahedega ringil = 232-260-276-296-320-348 silmust. Koo 1 ring parempidi (koo kõik õhksilmused keerdsilmustena, et ei jääks auke). Kas siin peab kahandama või kasvatama? Silmade arvu järgi kasvatama, aga tegelikult?

25.11.2022 - 09:59

DROPS Design answered:

Tere Kristel! Viga parandatud. Tänan teatamast!

15.12.2022 - 23:00

country flag Mette wrote:

Hej, jag har ytterligare en fråga angående mönstret. Jag stickar storlek L och funderar över fram och bakdelen där det står att man ska öka med 38 maskor då arbetet mäter 24cm. Varifrån ska det mätas 24cm? Hela mitt arbete är ju betydligt längre (för tillfället nästan 50cm). Är det från mönstrets slut, från ärmens hål eller var? Och är det alltså hela arbetet som i slutet ska vara 60cm eller 60cm från ärmen (och hela arbetet då längre)?

29.09.2022 - 08:58

DROPS Design answered:

Hej Mette, när du har delt till fram & bakstycke skriver vi härifrån mäts arbetet :)

29.09.2022 - 09:38

country flag Mette wrote:

Hej, Jag stickar storlek L och funderar om jag verkligen ska sticka tills arbetet är 30cm innan jag tar av maskor för ärmarna. Om jag räknat rätt har jag nästan stickat hela mönstret då arbetet är så långt, och på bilden ser det ut som att ärmen börjar ungefär mitt i mönstret. Är orolig över att jag gör fel och kommer dricka för långt och inte få mönster på ärmarna…

09.09.2022 - 20:13

DROPS Design answered:

Hei Mette. Så lenge strikkefastheten din stemmer i høyden, så er du nesten ferdig med diagram A.1 når du skal dele til bol og ermer. Bildet viser en modell i str S (den skal måle 27 cm) og da blir det mer av diagram A.1 igjen etter delingen. mvh DROPS Design

12.09.2022 - 09:19

country flag Rosaria Pittano wrote:

Non capisco come devo iniziare e cosa è un alzata? Grazie.

02.12.2020 - 07:25

DROPS Design answered:

Buongiorno Rosaria, deve iniziare come indicato dal collo. L'alzata consiste semplicemente di lavorare qualche ferro a ferri accorciati sul collo, in modo che sia un po' più alto rispetto al davanti, per una vestibilità migliore. Buon lavoro!

02.12.2020 - 08:43

country flag Anette Ericson wrote:

Frågar igen då jag nu ser att i delningen på tex storlek L så är det 100 maskor vardera på fram och bak men sedan står det att jag har 220 maskor när jag ska sticka kroppen. Var kom de 20 maskorna ifrån? De 10 som läggs upp vid delningen nämns ju bara i samband med när ärmen ska stickas. Fattar ingenting.

22.02.2020 - 16:47

DROPS Design answered:

Hei Anette. Du skal legge opp 10+10 masker under hver arm (tilhører bolen, ikke erme )= 220 masker til sammen. Ta en titt på denne videon, kanskje er det lettere å skjønne, selv om videoen viser raglan, se mellom tiden 07:00-09:25. Hur man stickar en tröja uppifrån och ner: God Fornøyelse.

24.02.2020 - 10:47

country flag Anette Ericson wrote:

Hur monterar jag ärmen mot kroppen? Det läggs ju bara upp maskor på ärmen? Det måste ju bli ett stort hål? I andra jag stickat motsvaras upplägg eller avmaskningar på både ärm och kropp och sys sedan mot varandra. Frågar precis innan jag kommit till delning.

22.02.2020 - 15:54

DROPS Design answered:

Hei Anette. Denne genseren strikkes ovenifra og ned, altså først strikkes halsen, så bærestykket, så settes maskene til ermene på en tråd og bolen strikkes så ferdig. Deretter strikkes ermene. Når du strikker første omgang på ermene, strikkes det opp 1 ny maske i hver av de maskene det ble lagt opp under erme når du strikket bolen (da slipper du å sy det "lille" hullet under ermene og genseren er ferdig montert). God Fornøyelse!

24.02.2020 - 10:14

country flag Simonne Van Frachem wrote:

Is dit patroon ook te verkrijgen om te breien op de breimachine ? En welke wol voor naalden nr 2 raad u mij aan voor dit werk ? Alvast bedankt voor het antwoord. groetjes, Simonne

23.05.2019 - 21:03

DROPS Design answered:

Simone,

Helaas is dit patroon er alleen voor breien met de hand. Wij maken geen patronen voor de breimachine. Als je met naald 2 wilt breien, zou je een garen uit groep A kunnen kiezen, bijvoorbeeld DROPS Alpaca of DROPS Nord. Let er wel op of de stekenverhouding klopt, want dit patroon is met garen uit garengroep B.

23.05.2019 - 21:32