DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Telemark Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS 179-10
DROPS Design: Mynstur me-109
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-500-550 g litur 04, milligrár
100-150-150-150-150-150 g litur 16, ljós bleikur
50-100-100-100-100-100 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-100 g litur 03, dökk grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS STÁLTALA, NR 534: 7 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 11,1. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 11. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð, þ.e.a.s. í 54.-57.-60.-63.-66.-69. lykkju (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-14-15-15 lykkjur fram hjá lykkjur með prjónamerki í, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-28-30-30 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-42-45-45 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-56-60-60 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-70-75-75 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantur að framan er prjónaður eins og áður).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 (Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð – á við um A.1 og A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Allar umferðir í mynsturteikningu sýna mynstur séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.
Í umferð með mynsturbekk er prjónað með grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

ÚRTAKA-1 (á við miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 9. og 10. hver lykkja saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½-2 cm, fellið síðan af fyrir hnappagötum í mismunandi stærðum þegar stykkið mælist:
S: 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm
M: 10, 18, 26, 34, 43 og 52 cm
L: 10, 18, 27, 36, 45 og 54 cm
XL: 10, 20, 29, 38, 47 og 56 cm
XXL: 10, 20, 30, 40, 50 og 60 cm
XXXL: 12, 22, 32, 42, 52 og 62 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka hringprjón, ofan frá og niður.
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 99-107-111-115-119-123 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með litnum milligrár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur perluprjón *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum í perluprjóni.
Haldið áfram með stroff í 4 cm, en eftir 1½ - 2 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þær 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar í perluprjóni til loka. Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-6-8-10-12-14 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 107-113-119-125-131-137 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat). Til að flíkin passi betur er prjónuð smá UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Haldið síðan áfram með 2-2-4-4-6-6 umferðir í sléttprjóni.
Prjónið nú MYNSTUR og útaukningu – lesið LEIÐBEININGAR!
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig- frá réttu: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 (= 16-17-18-19-20-21 mynstureining 6 lykkjur í fyrstu umferð í mynsturteikningu) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð frá réttu merktri með ör í mynsturteikningu er aukið út jafnt yfir þannig – munið eftir ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Ör-1: Aukið út 30-36-42-42-48-48 lykkjur jafnt yfir = 137-149-161-167-179-185 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 30-36-42-42-48-48 lykkjur jafnt yfir = 167-185-203-209-227-233 lykkjur.
Ör-3: Aukið út 30-36-36-42-42-48 lykkjur jafnt yfir = 197-221-239-251-269-281 lykkjur.
Ör-4: Aukið út 30-36-36-42-42-48 lykkjur jafnt yfir = 227-257-275-293-311-329 lykkjur.
Ör-5: Aukið út 24-34-36-38-40-42 lykkjur jafnt yfir = 251-291-311-331-351-371 lykkjur.
Ör-6: Aukið út 30 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 281-321-341-361-381-401 lykkjur.
Ör-7: Aukið út 20-20-20-30-30-40 lykkjur jafnt yfir = 301-341-361-391-411-441 lykkjur.
Prjónið 46-54-55-60-64-71 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-68-75-80-82-84 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið 83-97-101-111-119-131 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 63-68-75-80-82-84 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), og prjónið 46-54-55-60-64-71 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 191-221-231-251-271-301 lykkjur. Haldið síðan áfram með A.1A og A.1B eins og áður með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni í hvorri hlið. Þegar A.1A og A.1B hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.2A yfir A.1A og A.2B yfir A.1B, EN í 1. umferð í A.2A og A.2B er aukið út um 0-0-2-0-4-4 lykkjur jafnt yfir = 191-221-233-251-275-305 lykkjur. Þegar A.2A/A.2B hefur verið prjónað til loka á hæðina er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Setjið 1 prjónamerki í 55-57-60-65-71-78 lykkjur inn frá hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið síðan með litnum milligrár til loka og prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni eins og áður. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki). Aukið svona út með ca 4-5-5-5-5-5 cm millibili 5-4-4-4-4-3 sinnum = 211-237-249-267-291-317 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 23-23-24-24-25-26 cm er aukið út um 32-34-38-40-40-42 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu = 243-271-287-307-331-359 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu (allur uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur eins og áður, * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur perluprjón *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Öll peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 63-68-75-80-82-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi (prjónið upp lykkjur með grunnlit í næstu umferð í mynstri) = 71-76-85-90-94-98 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.1A hringinn á ermi (mynstrið á ermi á að passa við mynstur frá berustykki) – ATH: í stærð S, M, L, XXL og XXXL kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp í lykkjufjölda mitt undir ermi, en til að koma í veg fyrir löng hopp eru prjónaðar eins margar lykkjur af mynstri A.1A eins og hægt er í umferð.
Þegar A.1A hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað A.2A yfir A.1A hringinn í umferð, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 72-78-84-90-96-96 lykkjur (þetta er gert til að mynstur A.1A geti gengið jafnt upp í lykkjufjölda): Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka á hæðina er sett eitt prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-14 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan með milligrár. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í ca 6.-3.-3.-2.-2.-2. hverri umferð alls 6-9-9-12-12-12 sinnum = 60-60-66-66-72-72 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-12-12-10-10-9 cm prjónið mynstur A.3 (= 6 lykkjur) hringinn í umferð, JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í mynsturteikningu er lykkjum fækkað jafnt yfir þannig – lesið ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
ÖR-1: Fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 54-54-60-60-66-66 lykkjur.
ÖR-2: Fækkið um 6-6-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-48-54-54 lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið cm 33-31-31-29-29-28 cm frá skiptingu. Prjónið síðan með milligrár. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 4-4-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-62-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 3 lykkjur perluprjón) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 39-37-37-35-35-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = natur
symbols = ljós bleikur
symbols = milligrár
symbols = dökk grár
symbols = útaukning - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Brigitte wrote:

Bonjour, la réhausse correspond à des rangs raccourcis en aller-retour, pourquoi ne pas faire des "wrap and turn" ? Et je pense qu'il manque un retour puisque cela devrait être symétrique par rapport à la maille centrale ? et cette maille centrale n'est pas comptée : par exemple taille M, tricoter 13 mailles au delà de la maille centrale et au retour 26 ! Cela devrait être plutôt 13+1+13=27.

18.01.2022 - 17:13

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, vous pouvez tout à fait tricoter les rangs raccourcis en "wrap and turn" si vous le souhaitez. Les rangs raccourcis se terminent bien par un rang sur l'envers jusqu'aux mailles de la bordure devant, au rang suivant sur l'endroit, vous tricoterez comme indiqué et toutes les mailles. Votre réflexion sur le nombre de mailles va être transmis à nos stylistes, merci. Bon tricot!

19.01.2022 - 08:21

country flag May-Liv wrote:

Hvorfor har der ikke denne i oppskrift hvor vi kan begynne nedenifra?

02.01.2021 - 16:35

DROPS Design answered:

Hej May-Liv, svaret på dit spørgsmål er at vi har rigtig mange strikkere som foretrækker at strikke oppefra og ned. Men du kan helt sikkert finde en jakke som strikkes nedefra og op hvor du kan bruge disse diagrammer :)

08.01.2021 - 10:14

country flag Selma Olsson wrote:

I have two questions: 1. What is women's bust sizes for this pattern in sizes medium and large? 2. The photo in this pattern looks like the rib stitch and the pattern is calling for the seed stitch?

04.02.2020 - 15:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Olsson, please find here how to read a measurement chart. The ribbed edges on this pattern are worked with K1, 3 sts in seed stitch - the K1 of this rib should be always P from WS and the 3 sts in seed stitch should be worked with P over K and K over P. Happy knitting!

04.02.2020 - 15:50

country flag Bente Gaarden wrote:

Kjøpt mæ garnpakke te denne kofta, fulgte oppskrifta til punkt å prikke, ble for kort i armene å for vid i livet. Veldi fint mønster hadde gleda meg til å bli ferdi med den. Men no er jeg bare veldi skuffa. Den ble jo ikke bra.

17.01.2020 - 00:06

Heidi Laine wrote:

Jag har problem med att förstå mönstret A.1A & A.1B, när det inte går jämt ut på varvet. Ska man läsa mönstret från vänster-höger när man stickar avigvarvet? Eller ska jag läsa varje varv från hög-vän? Nu när jag kommit till delen med mellangrå med natur-färg inslag och stickat avigvarvet med två grå-tre natur-en grå, hur ska jag fortsätta följande rätvarv när det inte passar in med mönstret? Från rätsidan sett så har jag 5 kantmaskor, 1 grå, 2 natur, 3 grå.

03.04.2018 - 19:27

DROPS Design answered:

Hei Heidi, Diagrammet viser alltid mønsteret som det ser ut fra rettsiden. Det vil si at du starter fra rettsiden i nederste høyre hjørne på diagrammet og strikker mot venstre. Neste pinne strikker du fra vrangen, du starter da på pinn nr 2 (nedenfra i diagrammet) i venstre side og strikker mot høyre Slik strikker du hver pinne hele veien oppover, innenfor de 5 kantmaskene. Her er en video av hvordan å strikke mønster med 2 farger. God fornøyelse

18.04.2018 - 13:42

country flag Gabriele Bicen wrote:

Einfach toll eure Anleitungen...wunderschöne Jacke. Die wird mein nächstes Projekt von euch

10.03.2018 - 04:01

country flag Ulla wrote:

Ich auch!!!!!!!

23.06.2017 - 11:08

country flag Conny wrote:

Freue mich auf die Anleitung....aufs stricken....und aufs anziehen

07.06.2017 - 14:41