Asencio skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas bien les réductions sur le biais des épaules et l'encolure. Pourriez-vous m'expliquer plus clairement s'il vous plaît
04.10.2017 - 18:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Asencio, vous rabattez d'abord 1 x 8-9-10-11 m (cf taille) en début de rang sur l'endroit, et, en même temps rabattez les 26-28-30 m centrales, vous terminez le rang et vous continuez maintenant chaque épaule séparément. Au rang suivant sur l'envers, rabattez 8-9-10-11 m, terminez le rang, tournez et rabattez 1 m pour l'encolure, terminez ce rang. Continuez à rabattre pour l'épaule encore 3 x 8-9-10-11 m puis les 10-9-11-14 m restantes. Reprenez les mailles de la 1ère épaule et procédez de la même façon en rabattant les mailles pour l'épaule + 1 m côté encolure. Bon tricot!
05.10.2017 - 08:55LaShyla Moore skrifaði:
When using 123 sts I had 8 sts remaining instead of 9 sts.
05.09.2017 - 15:26DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Moore, work the 123 sts as follows: 5 sts in garter st, *K5, 5 sts in seed st*, repeat from *-* a total of 11 times (= over the next 110 sts), finish with K5 and 4 sts in garter st = 5 + (5+5)x11= 110 + 5 + 4 = 123 sts. Happy knitting!
05.09.2017 - 15:40
Dea skrifaði:
"550-600-650-700-750-850 g colore n° 0501, grey 250-300-300-350-350-400 g colour no 8907, fog" Sistemate la frase alcune parole sono ancora in inglese.
07.08.2017 - 20:56DROPS Design svaraði:
Buonasera Dea. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
07.08.2017 - 22:10
Ellen skrifaði:
Flott fasong. Trange ermer med vidde rundt overkroppen. Virker slankende for oss med litt ekstra kurver.😉
22.07.2017 - 09:05
Karin skrifaði:
I'm loving the return to looser fitting and oversize sweaters... after all some of us are built that way. ;-) And it doesn't hurt that these patterns will sell more yarn! Win-win.
16.06.2017 - 19:42
Tina Laib skrifaði:
Super schöner Pulli! Genau das richtige für relaxte Tage....
06.06.2017 - 09:14
Marzia skrifaði:
Belissimo oversize, vorrei saperlo fare!
02.06.2017 - 07:35
On the Horizon#onthehorizonsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-5 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. RENDUR: * Prjóið 10 cm með litnum þoka, prjónið 10 cm með litnum grár *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið 10 cm með litnum þoka, prjónið síðan til loka með litnum grár. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 123-123-133-143-153-163 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnumgrár. Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 5 lykkjur sléttprjón, 5 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 5 lykkjur sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 9 cm og endið eftir eina umferð frá röngu – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 11-5-9-11-13-15 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir ystu 4 lykkjur) = 112-118-124-132-140-148 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið með 4 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir í litinn þoka og prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og sléttprjón með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 30 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið (prjónamerki merkir klauf). Fitjið upp 1 kantlykkju í lok 2 næstu umferða = 114-120-126-134-142-150 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (prjónamerkin merkja handveg). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Fellið nú af fyrir öxl, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, prjónið þannig: ÖXL: Fellið af í annarri hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 8-9-9-10-10-11 lykkjur 4 sinnum, fellið af 11-10-12-12-15-15 lykkjur sem eftir eru (= alls 43-46-48-52-53-57 lykkjur felldar af fyrir öxl í hvorri hlið). HÁLSMÁL: Fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi. FRAMSTYKKI: Framstykki er prjónað alveg eins og bakstykki, nema affelling fyrir hálsmáli byrjar áður en byrjað er á öxl, prjónið þannig: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-71-73 cm fellið af fyrir hálsmáli, JAFNFRAMT er fellt af fyrir öxl þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, prjónið þannig: HÁLSMÁL: Fellið af miðju 20-20-22-22-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum. ÖXL: Fellið af eins og á bakstykki. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-40-40-40-48-48 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með litnum grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið * 5-5-5-5-4-4 lykkjur perluprjón, 5-5-5-5-4-4 sléttar lykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt og fækkið 6-4-4-2-8-6 lykkjur jafnt yfir = 34-36-36-38-40-42 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-8-6-8-5-6 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 9-9-11-11-12-13 sinnum = 52-54-58-60-64-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-39-38-37-35-34 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma frá prjónamerki við handveg og niður að prjónamerki fyrir klauf – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið ermar í. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 70-80 lykkjur í kringum háls á stuttan hringprjón 4,5 með litnum grár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 70-70-70-80-80-80 lykkjur. Prjónið * 5 lykkjur slétt, 5 lykkjur perluprjón *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram þar til kantur í hálsi mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #onthehorizonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.