Susanne skrifaði:
Hej, hvor starter omgangen, efter jeg har sat ærmerne ind på pinden sammen med ryg og forstykke?
03.10.2017 - 22:29DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, du har sikkert tråden i en raglan overgang (altså mellem et ærme og enten ryg eller forstykke) her kan du også starte omgangen. God fornøjelse!
05.10.2017 - 09:03
YM skrifaði:
Bonjour, Je suis rendue à l'empiècement dans cet ouvrage. Avant de commencer les diminutions, j'ai une question. À un moment donné, après les 9 1ère diminutions, la 10e va empiéter sur les A1 de chaque côté, comment continuer ces motifs, est-ce que je les arrête et je tricote à leur place du jersey endroit, ou bien je continue le motif, si oui, comment?
01.09.2017 - 01:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme YM, tricotez en jersey les mailles de A.1 qui ne peuvent plus se tricoter en point fantaisie pendant les diminutions du raglan - une correction a été apportée, merci. Bon tricot!
01.09.2017 - 14:53
YM skrifaði:
Il me semble que les mots »mailles endroit» manque dans la citation plus bas où j'ai mis des XXX à la place »17-21-20-25-25-31 mailles endroit, 3 mailles envers, *A.1 (= 18-18-22-22-26-26 mailles), 6 mailles envers*, répéter de *-* 2 fois au total, A.1, 3 mailles envers, 34-42-40-50-50-62 XXX, 3 mailles envers, » Est-ce que j'ai raison?
19.08.2017 - 03:51DROPS Design svaraði:
Bonjour. Oui, vous avez raison, les mots mailles endroit manquent. Le texte sera corrigé dès que possible. Merci et bon tricot!
20.08.2017 - 09:50
Joan Orsi skrifaði:
Never mind the previous comment, I missed the in the round part of the instructions.
03.08.2017 - 19:13Joan Orsi skrifaði:
In the directions you have: RIDGE/GARTER STITCH (worked in the round): 1 ridge = 2 rounds. Knit 1 round and purl 1 round. Isn't a garter stitch knitted every row whereas a knit 1 row then purl the next would be stockinette?
03.08.2017 - 19:12DROPS Design svaraði:
Dear Joan, the instructions refer to garter stitch (ridges) knitted in the ROUND. If you knit garter stitch that way you need to knit a round of knit stitch followed by a round of purl to get the same ridged effect you get by knitting every row back and forth. I hope this helps. Happy Knitting!
06.08.2017 - 10:26
Francine Laplante skrifaði:
Il est magnifique et sûr que je me le ferai quand il sera disponible. Merci pour vos beaux modèle. Le choix est formidable.
05.07.2017 - 03:32
Gabriela skrifaði:
Pullis mit Ajourmuster sind immer stylisch!
01.07.2017 - 05:32
Odile Bastien skrifaði:
Superbe modèle hâte de le réaliser
30.06.2017 - 17:25
Anne skrifaði:
Lovely
30.06.2017 - 17:12
Sonja Buhr skrifaði:
Prachtige trui voor nazomer en herfst !
05.06.2017 - 22:10
Lemon Parfait#lemonparfaitsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með blaðamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Cotton Merino.
DROPS 180-1 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. ÚRTAKA (á við um í hlið): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki í hlið: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING: Aukið út undir ermi – byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkað er um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna út með því að prjóna 1 auka umferð án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtöku. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 212-228-248-268-292-316 lykkjur á hringprjón 4 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig: 17-21-20-25-25-31 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, *A.1 (= 18-18-22-22-26-26 lykkjur), 6 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.1, 3 lykkjur brugðið, 34-42-40-50-50-62 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, *A.1, 6 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.1, 3 lykkjur brugðið, 17-21-20-25-25-31 lykkjur slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 106-114-124-134-146-158 lykkjur = í hliðum. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hlið (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum með 4½ cm millibili alls 7 sinnum í öllum stærðum = 184-200-220-240-264-288 lykkjur. Þegar stykkið mælist 39-39-39-39-39-39 cm fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Nú eru 84-92-100-110-120-130 lykkjur á bakstykki og á framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stutta hringprjóna þegar aukið hefur verið nægilega út með lykkjum. Fitjið upp 48-52-56-56-60-64 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 4-6-8-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 10-7-7-10-7-7 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-45-43-42-40-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi = 60-68-74-78-80-82 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem felldar voru af lykkjur fyrir handveg = 288-320-348-376-400-424 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð 5-5-6-6-6-7 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 14-16-18-21-23-24 sinnum = alls 19-21-24-27-29-31 sinnum – þær lykkjur í A.1 sem ekki ganga upp í mynsturteikningu í úrtöku, eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir allar úrtöku eru 136-152-156-160-168-176 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjóni yfir allar lykkjur, en í fyrstu umferð eru prjónaðar 22-26-26-24-22-20 lykkjur yfir hvorri ermi slétt saman 2 og 2, að auki er fækkað um 18-28-26-28-34-40 lykkjur jafnt yfir = 96-98-104-108-112-116 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lemonparfaitsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.