Andrea Lyn skrifaði:
I've tried to read your tiny charts--- it takes 100 times longer to fathom than written directions. Why on earth would anyone want to torture experienced or new knitters? I've been knitting over 50 years-- it's relaxing-- but not with tiny little squares! Sorry, but won't use these!!!! Why would anyone think charts are better???? They are maddening!!!
14.01.2020 - 16:08
Andrea Lyn skrifaði:
How can I get written instead of charged pattern directions? Please!!!
13.01.2020 - 17:48DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lynn, we only have diagram to this pattern, you'll find here how to read diagrams. Happy knitting!
14.01.2020 - 07:21
Freda Ramos skrifaði:
En la parte que indican los aumentos para las mangas no es claro, es en cada vez que se hace un diagrama?
13.08.2018 - 01:19
Silke skrifaði:
Ich hatte keine Probleme mit der Anleitung. Meiner Meinung nach, ist es jedoch vorteilhaft die Strickgrundlagen zu beherrschen und sich genau durchzulesen, was in der Anleitung steht. Dieser Schnitt ist gerade für Damen geeignet, die größere Kleidergrößen tragen. Ich habe das Revers übrigens komplett im Krausrippen-Muster gestrickt. Das sieht sehr edel aus. Liebes Drops-Team, Dankeschön! Diese Anleitung gehört ab jetzt zu meinen Favoriten!
31.05.2018 - 17:26
Dietlind-Kueppers skrifaði:
Eine ausgesprochen schwer zu verstehende Anleitung, gilt auch für das Diagramm. Bis zur Maschenaufnahme für die Ärmel ist alles ok, doch mit dem Rest quäle ich mich seit Tagen - schade um das schöne Bouclégarn.
28.04.2018 - 20:16
Miss Marina#missmarinacardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð ermalaus peysa með stroffi og kraga, prjónuð neðan frá og upp úr DROPS Alpaca Bouclé. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-28 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið laust upp 74-83-92-101-110-119 lykkjur á hringprjóna 5 með Alpaca Bouclé. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 9 lykkjur), endurtakið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fitjið nú upp nýjar lykkju í lok hverrar umferðar fyrir ermar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 2 sinnum og 31-28-25-22-19-16 lykkjur 1 sinni (= alls 35-32-29-26-23-20 nýjar lykkjur í hvorri hlið)= 144-147-150-153-156-159 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1 með 6 lykkjur garðaprjón yst í hvorri hlið (= kantur á ermum) – þ.e.a.s. þegar búið er að fitja upp allar lykkjur er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 lykkjur garðaprjón, byrjið á 7.-1.-4.-7.-1.-4. lykkju í mynsturteikningu A.1 og prjónið afgang af mynsturteikningu. Endurtakið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni og prjónið 6 lykkjur garðaprjón. Þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm fellið af miðju 16-17-18-19-20-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig = 64-65-66-67-68-69 lykkjur. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 63-64-65-66-67-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm fellið laust af – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Prjónið hina öxlina/ermina á sama hátt nema eins og spegilmynd. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 59-59-62-62-65-65 lykkjur á hringprjón 5 með Alpaca Bouclé. Prjónið 6 umferðir með garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur með garðaprjóni fyrir kant að framan. Byrjið á 1.-1.-7.-7.-4.-4. lykkju í mynstri A.2 (= 9 lykkjur) og prjónið afgang af mynsturteikningu. Endurtakið A.2 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 8 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 lykkju innan við 4 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út í 8.-6.-6.-6.-6.-6. hverri umferð alls 11-11-17-15-13-7 sinnum og í 10.-8.-8.-4.-4.-4. hverri umferð 4-8-4-12-17-28 sinnum = alls 15-19-21-27-30-35 lykkjur fleiri við miðju að framan. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 2 sinnum og 31-28-25-22-19-16 lykkjur 1 sinni (= alls 35-32-29-26-23-20 nýjar lykkjur fyrir ermi á hlið). Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur og 6 ystu lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni fyrir kant á ermum eins og á bakstykki. Þegar öll útaukning fyrir ermi og kraga er lokið eru 109-110-112-115-118-120 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 46-46-47-49-51-52 lykkjur áður en þær eru settar á þráð, fellið laust af þær 63-64-65-66-67-68 lykkjur sem eftir eru á prjóni fyrir hálsmáli. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! VINSTRA FRAMSTYKKI. Fitjið laust upp 59-59-62-62-65-65 lykkjur á hringprjóna 5 með Alpaca Bouclé. Prjónið 6 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 4-4-7-7-10-10 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 0-0-3-3-6-6 lykkjur í A.2 (í stærð S og M eru engar lykkjur prjónaðar), prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 8 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 lykkju innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni eins og á hægra framstykki. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu alveg eins og á hægra framstykki. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur og ystu 6 lykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni fyrir kant á ermum eins og á hægra framstykki og á bakstykki. Þegar öll útaukning fyrir ermum og kraga er lokið eru 109-110-112-115-118-120 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið laust af fyrstu 63-64-65-66-67-68 lykkjur í umferð, síðan eru prjónaðar 46-46-47-49-51-52 síðustu lykkjur áður en þær eru settar á þráð. FRÁGANGUR: Saumið axla/ermasauma. Saumið saman erma og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. KRAGI: Setjið til baka 46-46-47-49-51-52 lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið upp 18-19-20-21-22-23 lykkjur aftan í hnakka og setjið til baka 46-46-47-49-51-52 lykkjur frá vinstra framstykki á prjóninn = 110-111-114-119-124-127 lykkjur. Prjónið garðaprjón í 5 cm, fellið af með tvöföldum þræði og passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Klippið frá og festið enda. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #missmarinacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.