DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4023.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Rays of Spring

Prjónuð peysa í garðaprjóni, stuttum umferðum og röndum úr DROPS Fabel. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-26
DROPS Design: Mynstur fa-373
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 623, bleik þoka
150-200-200-200-250-250 g litur 100, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 45 umferðir með garðaprjóni eða 23 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 3 st í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4023.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Garðaprjón er mjög teygjanlegt og flíkin kemur til með að teygjast við notkun, bæði á breidd og lengd og verður stærri en mynsturteikningin með máli segir til um. Veldu því minni stærð en þú notar venjulega.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MÆLING:
Mælt er frá uppfitjunarkanti. Mál undir op fyrir handveg, þar sem stykkið er minnst.

STUTTAR UMFERÐIR:
Stuttar umferðir eru alltaf prjónaðir með litnum natur og í garðaprjóni.
1 mynstureining með stuttum umferðum eru 2 umferðir í garðaprjóni yfir allar lykkjur í stykkinu, 18 umferðir garðaprjón með stuttum umferðum, 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, 18 umferðir garðaprjón með stuttum umferðum og 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur.

Setjið 1 prjónamerki í 86. lykkju frá réttu.
Skiptið yfir í litinn natur, prjónið síðan stuttar umferðir þannig (1. umferð = frá réttu):
UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt = 143-148-152-157-161-166 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið allar lykkjur slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið 86 lykkjur slétt.
UMFERÐ 4: Snúið og prjónið 85 lykkjur slétt til baka, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju.
UMFERÐ 5: Prjónið 77 lykkjur slétt.
UMFERÐ 6: Snúið og prjónið 76 lykkjur slétt til baka, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju.
Haldið áfram með stuttar umferðir og garðaprjón, snúið 10 lykkjum fyrr í hverri umferð frá réttu og aukið út um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá röngu.
Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 14 lykkjur áður en snúið er við, snúið og prjónið 2 lykkju í síðustu lykkju. Nú hafa verið prjónaðar 18 umferðir garðaprjón með stuttum umferðum. Prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur á prjóni.

Prjónið síðan frá réttu – þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 13 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2: Snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 22 lykkjur slétt.
UMFERÐ 4: Snúið við og prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 31 lykkju slétt.
UMFERÐ 6: Snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið áfram með stuttar umferðir og garðaprjón, snúið 10 lykkjum nær lykkju með prjónamerki í hvert skipti sem snúið er við og prjónið 2 lykkjur slétt saman í byrjun hverrar umferðar frá réttu.
Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 86 lykkjur áður en snúið er við, snúið og prjónið út umferðina. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu = 143-148-152-157-161-166 lykkjur í umferð.
Á vinstri hlið á stykki/á öxl á peysu: 1 mynstureining með stuttum umferðum = 6 umferðir garðaprjón með natur.

RENDUR:
* Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum bleik þoka, prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum natur *, endurtakið frá *-*. Rendurnar eru prjónaðar á milli mynstureininga með stuttum umferðum á bakstykki og á framstykki. Hliðarnar og kantar eru prjónað með litnum bleik þoka.

RENDUR ERMI:
* Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum natur, 2 umferðir með garðaprjón með litnum bleik þoka *, endurtakið frá *-* í 8 cm. Afgangur á ermi er prjónaður í sléttprjóni með rönguna út með litnum bleik þoka (= brugðnar lykkjur frá réttu og sléttar lykkjur frá röngu).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Prjónið GARÐAPRJÓN = allar umferðir slétt. Fitjið upp og prjónið frá vinstri hlið, sjá örvar í mynsturteikningu fyrir prjónstefnu.
LESIÐ LEIÐBEININGAR.

PEYSA:
Fitjið laust upp 102-104-106-109-111-113 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum bleik þoka. Prjónið 5-11-13-15-19-21 umferð (1. umferð = frá röngu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í lok næstu umferðar (= frá réttu) eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg. Fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok 6. hverrar umferðar: 0-0-1-2-4-5 sinnum = 105-107-112-118-126-131 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 38-41-40-39-35-35 nýjar lykkjur = 143-148-152-157-161-166 lykkjur. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 9-10-11-12-14-16 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu).

Prjónið síðan 1 mynstureiningu með STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan – með litnum natur. Prjónið síðan RENDUR – útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-19-21-23-26-28 cm – LESIÐ MÆLING. Fellið nú af 5 lykkjur í byrjun næstu umferð frá röngu í hnakka = 138-143-147-152-156-161 lykkjur. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 20-22-24-26-30-32 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur.

Haldið síðan áfram með rendur og garðaprjón þar til stykkið mælist 25-27-29-31-36-38 cm. Fitjið nú upp 5 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 143-148-152-157-161-166 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 32-35-38-41-47-49 cm (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Prjónið til loka í garðaprjóni og litnum bleik þoka.

Prjónið þar til stykkið mælist ca 40-43-45-47-52-54 cm. Fellið nú af 38-41-40-39-35-35 lykkjur í byrjun næstu umferðar frá röngu fyrir handveg = 105-107-112-118-126-131 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af 3 lykkjur í byrjun umferðar. Fellið síðan af í byrjun 6. hverrar umferðar: 3 lykkjur 0-0-1-2-4-5 sinnum = 102-104-106-109-111-113 lykkjur. Prjónið fram og til baka þar til stykkið mælist 42-46-50-54-62-66 cm. Fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið frá hlið að miðju að framan. Sjá ör í mynsturteikningu fyrir prjónstefnu. Fitjið laust upp 102-104-106-109-111-113 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum bleik þoka. Prjónið síðan og aukið út fyrir handveg eins og á bakstykki = 143-148-152-157-161-166 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-12-14 cm (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu) prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Prjónið síðan áfram í garðaprjóni og röndum yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 13-15-17-17-19-21 cm – LESIÐ MÆLING- (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu) prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Prjónið síðan garðaprjón með litnum bleik þoka. Prjónið þar til stykkið mælist 3-3-3-5-6-6 cm á eftir síðasta snúning (stykkið mælist nú alls ca 17-19-21-23-26-28 cm).
Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá röngu: 9-9-11-9-11-8 lykkjur 1 sinni, 5 lykkjur 7 sinnum og 2 lykkjur 1-1-1-2-2-4 sinnum = 97-102-104-109-111-115 lykkjur.
Prjónið 5 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum bleik þoka. Fellið nú af fyrir hnappagati, prjónið frá réttu þannig: Prjónið 56-61-63-68-70-74 lykkjur, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 3 lykkjurnar = 3 hnappagöt. Prjónið 5 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum bleik þoka. Fellið laust af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið frá miðju að framan í hlið. Fitjið laust upp 97-102-104-109-111-115 lykkjur á hringprjóna 3,5 með litnum bleik þoka. Prjónið 11 umferðir (1. umferð = frá réttu) fram og til baka yfir allar lykkjur. Aukið síðan út fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðir frá réttu: 2 lykkjur 1-1-1-2-2-4 sinnum, 5 lykkjur 7 sinnum og 9-9-11-9-11-8 lykkjur 1 sinni = 143-148-152-157-161-166 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 10-10-10-12-13-14 cm (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Prjónið síðan áfram í garðaprjóni og röndum. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 17-18-19-20-20-21 cm (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Prjónið síðan í garðaprjóni og litnum bleik þoka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-3-2-2-2 cm á eftir síðastu stuttu umferðum eru fellar af fyrstu 38-41-40-39-35-35 lykkjur frá röngu fyrir handveg. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af 3 lykkjur í byrjun umferðar. Fellið síðan af í byrjun 6. hverrar umferðar: 3 lykkjur 0-0-1-2-4-5 sinnum = 102-104-106-109-111-113 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 6-7-8-9-12-14 cm á eftir síðasta snúning. Fellið laust af.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón. Fitjið laust upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3,5, með litnum bleik þoka. Prjónið GARÐAPRJÓN og RENDUR ERMI - sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-5-8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Haldið áfram með útaukningu með 3-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 12-14-16-19-20-22 sinnum = 72-78-84-92-96-102 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er prjónað með litnum bleik þoka og sléttprjóni með rönguna út. Þegar stykkið mælist 41-41-40-40-38-37 cm fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir ermakúpu. ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla. Fellið síðan af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2-2-2-2-1-0 sinnum og 1 lykkja 10-12-14-15-24-28 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 47-48-48-49-49-50 cm. Fellið nú af 3 lykkjur í hvorri hlið 1 sinni. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist nú ca 48-49-49-50-50-51 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.05.2017
HÆGRA FRAMSTYKKI...Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá röngu: 9-9-11-9-11-8 lykkjur 1 sinni, 5 lykkjur 7 sinnum og 2 lykkjur 1-1-1-2-2-4 sinnum = 97-102-104-109-111-115 lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Jos wrote:

Bonjour je ne métrise pas votre modèle. Est-ce que je commence à lire le patron à partir du devant droit, ensuite ce serait le dos pour terminer par le devant gauche. Est-ce que j’ai bien compris? Sinon expliquer moi comment faire. Mer Merci

31.10.2023 - 18:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jos, vous tricotez chaque pièce dans le sens de la longueur en commençant par le dos, à partir du côté gauche vers le côté droit (le côté gauche, vu sur l'endroit est le bas de la veste), puis vous tricotez le devant droit en commençant par le côté vers la bordure devant et vous tricotez ensuite le devant gauche en commençant à partir de la bordure devant vers le côté (cf flèches dans le schéma); Bon tricot!

01.11.2023 - 14:56

country flag Sophie LACAILLE wrote:

Bonjour, j'ai un souci dans la maîtrise des rangs raccourcis. Après chaque rang tourné, faut-il faire un rang ou deux sur toutes les mailles et quelle maille faut-il tricoter deux fois ? Merci pour votre lumière. Cordialement

09.05.2023 - 12:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lacaille, après le rang 6, tournez et tricotez les 68 premières mailles, tournez et tricotez ces 68 m en augmentant 1 m, puis tricotez 10 m en moins au rang suivant = 58 m; puis augmentez 1 m à la fin du rang suivant = 59 m, continuez ainsi, (sur l'endroit, vous tricotez 10 m en moins en remontant vers le haut de la veste; sur l'envers, vous augmentez 1 maille pour former la pointe en bas) jusqu'à ce que vous ayez tricoté 14 m sur l'envers + 1 augmentation = 15 m. Bon tricot!

09.05.2023 - 16:33

country flag Jeanett Wenche Müllertz wrote:

Jeg er simpelthen gået i stå allerede lige efter der er slået masker op i ærmegabet. Her står at man skal fortsætte til arbejdet måler (mener det er 14 cm til den str jeg arbejder med) men umiddelbart giver det altså ikke mening når jeg kigger på trøjen... Skal de 14 cm ikke være efter der er slået de nye masker op? Ellers får jeg kun nogle få cm skulder før jeg skal til at starte på kilen...

05.04.2023 - 13:56

DROPS Design answered:

Hej Jeanette, jeg kan ikke finde hvor du er i opskriften. Skriv hvor du er, og hvilken størrelse og hvad du ikke forstår, så skal vi se på det?

13.04.2023 - 12:25

country flag Mette Malmstrøm wrote:

Jeg skal lukke af for 3 masker i hver side af pinden. Jeg ved godt hvordan jeg gør det i begyndelsen af pinden, men hvordan gør jeg det sidst på pinden?

02.04.2023 - 21:16

DROPS Design answered:

Hej Mette, du lukker kun af i starten af hver pind :)

13.04.2023 - 11:34

country flag Kristin Wingender wrote:

Liebes Drops Team,\r\n\r\nganz lieben Dank für die schnelle Antwort, Problem gelöst, Brett vorm Kopf beseitigt! :) LG, Kristin Wingender

07.12.2022 - 11:54

country flag Kristin Wingender wrote:

Ich stricke aktuell an diesem wunderschönen Modell. Schön wäre es, wenn in der Anleitung bei den verkürzten Reihen direkt die Variante mit Umschlag hingewiesen würde, denn die Löcher, die sich ohne Umschlag bilden, entstehen erst mit den Rückreihen und man fragt sich so lange, ob man selbst was falsch macht und sich immer wieder mit Blick in die Anleitung versichert, dass das nicht der Fall ist und einem nurnoch bleibt, es vorn mit Umschlag zu versuchen und die hinten zu vernähen.

07.12.2022 - 07:35

country flag Kristin Wingender wrote:

Liebes Drops-Team, wenn ich der Anleitung für den rechten Ärmel folge (Rückenteil ist fertig), ergibt sich das Problem, dass ich bei Größe M nach sieben Zentimetern den ersten Rapport in Natur stricken soll. Da lande ich aber gleichzeitig bei der letzten Zunahme (+38 M) für den Armausschnitt. Das kann ich zwar machen, aber stimmen dann die restlichen Maßangaben, sodass in der Breite alles zusammen passt? LG, Kristin Wingender

07.12.2022 - 07:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wingender, ich misverstehe vielleicht Ihre Frage aber das rechte Vorderteil stricken Sie ab die Seite bis zur vorderen Mitte (Blende), so stricken Sie am Anfang genau wie beim Rückenteil : 11 Reihen dann für die Armausschnitt 3 neue Maschen 1 Mal und 38 Maschen 1 Mal anschlagen. Weiterstricken bis die Arbeit 7 cm misst dann die ersten verkürzten Reihen stricken. Viel Spaß beim stricken!

07.12.2022 - 08:30

country flag Fabienne wrote:

Bonjour, j'ai un souci avec les manches : en taille L on doit rabattre 3+(2*2)+(14*1)+2 = 23 mailles tous les 2 rangs, diminutions qui se font donc sur 2*(1+2+14+1) = 36 rangs. Or en jersey, 36 rangs correspondent à environ 12cm. Par conséquent comment peut on avoir un ouvrage de 40cm avant de commencer les diminutions, et de 48cm à la fin (mesures indiquées dans vos explications).? On a forcément au moins 12cm d'écart entre les 2, et pas 8... Ou est l'erreur ? Merci !

14.09.2022 - 19:08

country flag Magali wrote:

Bonjour, Merci pour vos beaux modèles. Je les découvre et c'est ma 1ère réalisation DROPS. Ma question porte sur l'emmanchure du dos en taille S. J'ai monté les 3 mailles en fin de rang 6, et je ne suis pas certaine de bien comprendre à quel rang monter les 38 mailles additionnelles suivantes. Est-ce au rang 8 ou serait-ce au rang 6+(5x6) = 36 ? Merci par avance de votre réponse !

18.08.2022 - 07:11

DROPS Design answered:

Bonjour Magali et merci, vous augmentez ici pour l'emmanchure, en fin de rang sur l'endroit à chaque fois: 1 x 3 m en fin de rang sur l'endroit puis, en taille S, 38 mailles à la fin du rang suivant sur l'endroit (vous n'augmentez pas tous les 6 rangs en taille S) (= 41 mailles pour l'emmanchure). Bon tricot!

18.08.2022 - 09:23

country flag Stine Kristiansen wrote:

Lurer på hvor mange cm det skal være med striper på bakstykke, står bare gjenta fra * - * men ikke hvir langt

10.05.2022 - 21:19

DROPS Design answered:

Hej Stine, antal cm står nede i selve opskriften: Fortsett videre med striper og riller til arbeidet måler 25-27-29-31-36-38 cm. :)

11.05.2022 - 08:02