Helen skrifaði:
Just finished this Kid Silk #11 and Alpaca mix #4434 which results in a lovely pastel mauve. I love the softness! My only disappointment is the sleeve length ... the model illustration implies longer than just elbow length. (She's a very slim model so the sweater is big on her!) I recommend you knit the sleeves a little longer.
02.03.2017 - 01:27
Jacky Ranger skrifaði:
In diagrams A1, A2 and A3 give an instruction that reads "Slip 1 stitch as if to knit, knit 1, pass the slipped stitch over the knitted stitch" this will result in there being half the number of stitches on the needle at the end of the row. This can't be right can it?
20.02.2017 - 23:00DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ranger, in all these patterns, you dec 1 st and this dec will be compensate by 1 YO, ex in 3rd row in A.1 you will work across: slip 1, k1, psso, YO = number of sts will be the same at the end of row, on next row, work the YO K from RS or P from WS. Happy knitting!
21.02.2017 - 09:43
Zabeth skrifaði:
J'aime sa coupe évasée, le délicat point fantaisie autour de l'encolure posé comme une frise. Sa longueur tunique et ses manches longues le classent dans mes préférés de la saison prochaine.
11.01.2017 - 15:40
Kappeler Loredana skrifaði:
Sehr schöner femininer Pullover
05.01.2017 - 21:45
Fruit Rouge skrifaði:
Très joli modèle!! Je l'appellerai "Danseuse"
31.12.2016 - 13:37
Jette Berg skrifaði:
Virkelig sød - håber den kommer i det næste blad
20.12.2016 - 14:53
Madeleine GUYAUX skrifaði:
Très joli et féminin, j'aime beaucoup
20.12.2016 - 05:47
Betina skrifaði:
Super Modell
16.12.2016 - 21:54
Marge Ojastu skrifaði:
Sonja
16.12.2016 - 17:52
Karin skrifaði:
Elegant und leger!
15.12.2016 - 11:28
Pastel Elegance#pastelelegancesweater |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Peysa með gatamynstri og laskalínu, prjónuð neðan frá og upp úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 158 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 8,7. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig. Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi þær slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 218-230-242-262-282-302 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Byrjun á umferð er við miðju aftan á peysu, setjið eitt prjónamerki hér. Prjónið mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjóna 5. Prjónið mynstur þannig: Prjónið 28-31-34-39-44-49 lykkjur slétt, prjónið A.2 (= 53 lykkjur), prjónið 56-62-68-78-88-98 lykkjur slétt, prjónið A.2, prjónið 28-31-34-39-44-49 lykkjur slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka eru 150-162-174-194-214-234 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 44-44-44-45-45-45 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 34-37-39-44-48-53 lykkjur (= hálft bakstykki), fellið af næstu 7-7-9-9-11-11 lykkjur (= undir ermum), prjónið næstu 68-74-78-88-96-106 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 7-7-9-9-11-11 lykkjur (= undir ermum), prjónið þær 34-37-39-44-48-53 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMAR Fitjið upp 40-42-48-48-50-54 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið mynstur þannig: Prjónið A.3 (= 19 lykkjur), 21-23-29-29-31-35 lykkjur slétt. (A.3 er endurtekið á hæðina til loka) JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-9-6-5-5-4 cm frá uppfitjunarkanti er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.3 – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út í 7.-6.-5.-5.-4.-4. hverri umferð 11-12-15-15-18-18 sinnum alls = 62-66-78-78-86-90 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-43-42-41-40-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 7-7-9-9-11-11 lykkjurnar yfir A.3 (= mitt undir ermi) = 55-59-69-69-75-79 lykkjur á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón 5 og fram- og bakstykki þar sem felldar voru af lykkjur fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 246-266-294-314-342-370 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið sléttar lykkjur hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 11-13-14-15-16-18 sinnum = 158-162-182-194-214-226 lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 18-12-22-24-34-36 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA (jafnt yfir) = 140-150-160-170-180-190 lykkjur. Prjónið A.4 (= 10 lykkjur) 14-15-16-17-18-19 sinnum í umferð. Þegar allt A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 112-120-128-136-144-152 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað hefur verið um 24-28-30-34-36-44 lykkjur jafnt yfir = 88-92-98-102-108-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið A.1 hringinn. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð 1 umferð slétt. Fellið af með brugðnum lykkjum og passið uppá að affellingarkanturinn verði stífur! Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pastelelegancesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.