Save Annie skrifaði:
Bonjour, Je pense qu'il doit y avoir un problème concernant les manches. La photo représente des ajourés sur toute la largeur. Par contre suivant les explications, il n'y a qu'une bande d'ajouré au centre. est bien normal ? Merci et joyeuses fêtes de fin d'année Annie
24.12.2016 - 13:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Save, les augmentations du raglan sur les manches se tricotent en A.1 et A.2 comme indiqué dans les explications, c'est-à-dire en point ajouré. Bon tricot!
02.01.2017 - 09:29
Afra Avanzi skrifaði:
Molto carino Afra
19.06.2016 - 10:27
Lene Engelhardt skrifaði:
Meget smuk og feminin model med fint romantisk hulmønster. Let og enkel i sit udtryk, kan bruges både sommer og vinter.
15.06.2016 - 23:23
FANI skrifaði:
ΓΟΗΤΕΥΤΙΚΟ!
08.06.2016 - 12:54
Touch of Heather Cardigan#touchofheathercardigan |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk með laskalínu og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-31 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf) þannig: Aukið út um 4 l á bakstykki, 2 l á hvoru framstykki og 4 l á hvorri ermi (= alls 16 l fleiri). Aukið út á undan prjónamerki þannig – byrjið 2 l á undan prjónamerki: Prjónið 2 l í 1 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki. Uppslátturinn er prjónaður brugðið í næstu umf svo það myndist gat. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l í næstu l. Uppslátturinn er prjónaður brugðið í næstu umf svo það myndist gat. Aukið út um 16 l svona 1-1-2-2-1-1 sinnum til viðbótar (= 2-2-3-3-2-2 sinnum alls, fyrsta útaukning er útskýrð i texta). Aukið síðan út í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf þannig: Aukið út um 2 l á bakstykki, 1 l á hvoru framstykki og 2 l á hvorri ermi (= alls 8 l fleiri). Aukið út á undan prjónamerki þannig – byrjið 1 l á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður brugðið í næstu umf svo það myndist gat. Aukið út um 8 l svona alls 20-22-22-24-28-30 sinnum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti): STÆRÐ S-M-L: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: 2, 9, 16, 23, 30, 37 og 44 cm. ÚTAUKNING (á við um útaukningu í hliðum á fram- og bakstykki): Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. PEYSA: Fitjið upp 116-120-128-132-136-140 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á stutta hringprjóna nr 3,5 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, prjónið 2 l sl og 5 l garðaprjón (= kantur að framan). Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið stroff í 3 cm. Prjónið 4 umf garðaprjón, í síðustu umf í garðaprjóni er aukið út um 4-12-12-24-40-56 l jafnt yfir = 120-132-140-156-176-196 l. Takið frá annan þráðinn, prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk. Prjónið svona og aukið út fyrir LASKALÍNA – frá miðju að framan og frá réttu – sjá útskýringu að ofan: 5 l garðaprjón, A.1 (= 3 l), A.2 yfir næstu 12-12-12-15-18-21 l, prjónið 1-4-6-7-9-11 l sléttprjón, 2 l í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l í næstu l, A.1, A.2 yfir næstu 12 l, 2 l í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l í næstu l, 32-38-42-50-60-70 l sléttprjón, 2 l í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l í næstu l, A.1, A.2 yfir næstu 12 l, 2 l í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l í næstu l, 1-4-6-7-9-11 l sléttprjón, A.1, A.2 yfir næstu 12-12-12-15-18-21 l, endið með 5 l garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er frá að ofan, fyrsta útaukningin er nú lokið. Nýjar l á ermum eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 og A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir laskalínu eru 312-340-364-396-432-468 l í umf. Stykkið mælist 23-24-25-26-28-30 cm frá öxl (19-20-21-22-24-26 cm frá uppfitjunarkanti). Næsta umf er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið 47-52-56-62-69-76 l (= hægra framstykki), setjið næstu 67-71-75-79-83-87 l á band (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi, prjónið næstu 84-94-102-114-128-142 l (= bakstykki), setjið næstu 67-71-75-79-83-87 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið síðustu 47-52-56-62-69-76 l (= vinstra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 194-214-230-254-282-310 l á fram- og bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri og garðaprjóni eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8 nýjar l sem fitjaðar voru upp. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING, aukið út með 3 cm millibili alls 9 sinnum = 230-250-266-290-318-346 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-39-39 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af, stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá uppfitjunarkanti. ERMI: Ermin er prjónuð í hring. Setjið til baka l frá ermi á stutta hringprjóna/sokkaprjóna nr 3,5, prjónið upp 1 l í hverja af 8 l undir ermi = 75-79-83-87-91-95 l. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi = umf byrjar hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.1 og A.2, þær l í hvorri hlið sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Fækkið l með 3-2½-2-2-2-2 cm millibili alls 10-11-12-12-13-14 sinnum = 55-57-59-63-65-67 l. Þegar stykkið mælist 40-40-39-39-37-36 cm prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af. ATH! Vegna gatamynsturs þá kemur ermin til með að teygjast aðeins á lengdina. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið ermina að óskaðri lengd. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #touchofheathercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.