DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Touch of Heather

Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk með laskalínu og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-32
DROPS Design: Mynstur nr ks-114
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Garn:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-125-150-150-175-175 g nr 05, bleikfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LASKALÍNA:
Aukið út í annarri hverri umf þannig: Aukið út um 4 l á bakstykki, 4 l framstykki og 4 l á hvorri ermi (= alls 16 l fleiri).

Aukið út á undan prjónamerki þannig – byrjið 2 l á undan prjónamerki:
Prjónið 2 l í 1 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf svo að það myndist gat.

Aukið út á eftir prjónamerki þannig:
Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l í næstu l. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf svo það myndist gat.
Aukið út um 16 l svona 1-1-2-2-1-1 sinnum til viðbótar (= 2-2-3-3-2-2 sinnum alls, fyrsta útaukningin er útskýrð i texta).

Aukið síðan út í annarri hverri umf þannig: Aukið út um 2 l á bakstykki, 2 l á framstykki og 2 l á hvorri ermi (= alls 8 l fleiri).
Aukið út á undan prjónamerki þannig – byrjið 1 l á undan prjónamerki:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki.

Aukið út á eftir prjónamerki þannig:
Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf svo það myndist gat. Aukið út um 8 l svona alls 20-22-22-24-28-30 sinnum.

ÚTAUKNING (á við um útaukningu í hliðum á fram- og bakstykki):
Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjóna / sokkaprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 108-112-120-124-128-132 l á stutta hringprjóna nr 3,5 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br í 3 cm. Prjónið 4 umf garðaprjón, í síðustu umf í garðaprjóni er aukið út um 2-10-10-22-38-54 l jafnt yfir = 110-122-130-146-166-186 l. Takið frá annan þráðinn, prjónið síðan áfram með 1 þræði Kid-Silk. Prjónið frá miðju að aftan og aukið út fyrir LASKALÍNA þannig – sjá útskýringu að ofan: 16-19-21-25-30-35 l sléttprjón, 2 l í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l í næstu l, A.1 (= 3 l), A.2 yfir næstu 12 l, 2 l í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l í næstu l, 32-38-42-50-60-70 l sléttprjón, 2 l í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l í næstu l, A.1, A.2 yfir næstu 12 l, 2 l í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l í næstu l, 16-19-21-25-30-35 l sléttprjón (= 126-138-146-162-182-202 l). Fyrsta útaukning hefur nú verið gerð. Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er frá að ofan. Nýjar l á ermum eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 og A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allar útaukningar fyrir laskalínu hafa verið gerðar eru 302-330-354-386-422-458 l í umf. Stykkið mælist 23-24-25-26-28-30 cm frá öxl (19-20-21-22-24-26 cm frá uppfitjunarkanti). Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 42-47-51-57-64-71 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 67-71-75-79-83-87 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi, prjónið næstu 84-94-102-114-128-142 l (= framstykki), setjið næstu 67-71-75-79-83-87 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið síðustu 42-47-51-57-64-71 l (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 184-204-220-244-272-300 l á fram- og bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8 nýjar l sem fitjaðar voru upp. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING, aukið út með 3 cm millibili alls 9 sinnum = 220-240-256-280-308-336 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-39-39 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af, stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá uppfitjunarkanti.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring. Setjið til baka l frá ermi á stutta hringprjóna/sokkaprjóna nr 3,5, prjónið upp 1 l í hverja af 8 l undir ermi = 75-79-83-87-91-95 l. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi = umf byrjar hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.1 og A.2, þær l í hvorri hlið sem ekki ganga jafnt upp í mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Fækkið l með 3-2½-2-2-2-2 cm millibili alls 10-11-12-12-13-14 sinnum = 55-57-59-63-65-67 l. Þegar stykkið mælist 40-40-39-39-37-36 cm prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af. ATH! Vegna gatamynsturs þá kemur ermin til með að teygjast aðeins á lengdina. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið ermina að óskaðri lengd. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Touch of Heather

AnnaLisa, Italy

Touch of Heather

Sofylo, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (84)

country flag Tove Henningsen wrote:

Er det rigtig forstået, at det kun er halskanten, der strikkes med dobbelt tråd. Resten af trøjen strikkes med enkelt tråd?

22.02.2023 - 22:11

DROPS Design answered:

Hej Tove, ja det stemmer :)

24.02.2023 - 15:24

country flag Lena Råberg wrote:

Jag undrar om jag alltid ska sticka A2 över 12 maskor som det står i beskrivningen av första varvet? Alltså A1 =3maskor och A2=12 maskor? Vänliga hälsningar Lena

22.08.2022 - 10:57

DROPS Design answered:

Hej Lena. Du kommer få fler maskor som ska stickas in i mönstret allt eftersom du ökar maskor till raglan. De nya m på ärmarna stickas fortlöpande in i A.1 och A.2. Mvh DROPS Design

24.08.2022 - 13:52

country flag Elisabeth Christiansen wrote:

Hvordan kan raglanstykket bli langt nok? Det skal være totalt 25 økninger i min størrelse. Det blir 50 pinner. 30 pinner skal være 10 cm. 50 pinner blir da 16,67 cm, men iflg. oppskriften skal da stykket måle 21 cm. Hvordan løse dette?

06.07.2022 - 12:22

DROPS Design answered:

Hej Elisabeth, raglanlinjen vil blive længere end når du måler 50 pinde lige ned i strikkeretningen. Tager du ud ifølge opskriften og holder du strikkefastheden får du målene som står i opskriften :)

06.07.2022 - 13:27

country flag Helena wrote:

Hello, I have finished increasing for raglan in size M, and mysteriously missing 12 stitches on each of the sleeves. Cannot possibly figure out how, it looks evenly increased everywhere... Would you have any ideas?

12.11.2021 - 14:00

DROPS Design answered:

Dear Helena, make sure you increase the correct number of times for raglan, ie you were supposed to increase 16 sts a total of 2 times + 8 sts a total of 22 times - this means: 122 sts + 16x2 + 8x22 = 330 sts in total. Hope this will help. Happy knitting!

12.11.2021 - 14:23

country flag Marie wrote:

Bonjour, je me retrouve face à un problème sur votre site. Je ne réussis pas à voir toutes les données pour faire plusieurs modèles. Pour celui ci, je ne vois pas le diagramme montrant les mesures du patron.ces données sont manquantes. J\'ai ce même problème pour beaucoup de modèles.. est-ce que vous avez un problème avec votre site? Parce que c\'est la première fois que je vie cette situation.Merci beaucoup

06.10.2021 - 04:39

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, nous avons eu effectivement quelques soucis d'affichage, mais tout est rentré dans l'ordre maintenant, merci pour votre patience. Bon tricot!

06.10.2021 - 07:41

country flag Lyn wrote:

I am unfamiliar with knitting diagrams. I am making Drops Pattern ‘A Touch of Heather’ #172/32. Do you have written instructions for the lace pattern please?

13.08.2021 - 11:39

DROPS Design answered:

Dear Lynn, unfortunately we do not have written out instructions for the lace pattern, not only because our patternsare available in several languages, but also, because we believe, that with diagram you not only see the very next step (as with written out instructions) but also the bigger picture, as how stitches and rows relate to each other " en large". However, we do have a lesson about how to READ DIAGRAMS HERE. Happy Stitching!

15.08.2021 - 23:23

country flag Manon wrote:

Bonjour, comment fonctionne le point de fantaisie A1 et A2. Est-ce toujours 1 fois A1 sur 3 mailles et 2 fois A2 sur 12 mailles? Est-ce qu'après les mailles requises pour faire les augmentations au début de la manche, je dois attendre qu'il y ait 15 mailles de disponible pour faire A1 et 2 fois A2? Et est-ce la même chose, soit attendre qu'il y ait 15 mailles de disponibles avant les mailles servant à faire les augmentations à la fin de la manche pour faire A1 et 2xA2? Merci!

31.07.2021 - 00:29

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, lorsque vous allez augmenter les mailles des manches, vous allez intégrer les augmentations au point fantaisie lorsque vous aurez suffisamment de mailles (= il faut 3 mailles pour faire le point ajouré); autrement dit, vous devez alterner toujours 3 m jersey et 3 m point ajouré puis 3 m point ajouré et 3 m jersey. Bon tricot!

02.08.2021 - 07:04

country flag Claudine KROPFELD wrote:

Lorsque je fais le compte des mailles pour la taille S avant les augmentations raglan selon les explications je compte 104 mailles 16 pour 1/2 dos , 12 pour la manche, 32 pour le devant, 12 pour l'autre manche, 16 pour l'autre demi dos et 16 pour les raglans (4X4) alors que nous devons commencer avec 110 mailles (108 + 2 aug). je n'ai peut-être pas tout compris. Pourriez-vous m'éclairer. Merci

01.06.2021 - 10:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kropfeld, vous avez également 2 m jersey pour le raglan entre chaque pièce et les augmentations (= quand on tricote la même maille 2 fois) : 17 m pour le 1/2 dos, 2 m raglan, 17 m au total pour la manche (1 augm, 3 m de A.1, 12 m de A.2, 1 augm), 2 m pour le raglan, 34 m pour le devant (1 augm, 32 m, 1 augm), 2m pour le raglan, 17 m pour la manche, 2 m pour le raglan, 17 m pour le dos = 17+2+17+2+34+2+17+2+17=110 m. Bon tricot!

01.06.2021 - 16:32

country flag Manon wrote:

Bonjour, sous la section PULL à la 5ieme ligne, on mentionne de retirer un fil. Quelles parties de ce chandail se tricote à 2 fils et quelles parties à un fil? Merci

23.05.2021 - 16:40

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, à la 2ème ligne ce même paragraphe, on indique que l'on doit monter les mailles avec 2 fils (cf vidéo), vous tricotez ensuite 2 côtes mousse (avec 2 fils) et continuez ensuite avec 1 seul fil Kid-Silk. Bon tricot!

25.05.2021 - 07:56

country flag Manon St-Jean wrote:

Bonjour, le modèle 172-32 montre que la poitrine est 80 cm pour un small, 88 cm pour un médium et 96 cm pour un large. Ma mesure est 92 cm. Je ne porte jamais du large. Est-ce que je choisis médium et je l’agrandis seulement au niveau de la poitrine? Par contre le modèle 194-29 montre 88 cm pour un S, 96 cm pour un M et 104 cm pour un L. Comment est-ce que les mesures pour la même taille peuvent être aussi différentes d’un modèle à l’autre? Merci

23.05.2021 - 04:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme St Jean, chaque modèle est différent, mesurez un pull similaire que vous avez et dont vous aimez la taille pour les comparer aux mesures du modèle que vous souhaitez et ainsi choisir la taille adaptée. Retrouvez plus d'infos sur les tailles ici - et rappelez-vous de bien tricoter votre échantillon pour obtenir les bonnes mesures (voir ici). Bon tricot!

25.05.2021 - 07:53