Inger skrifaði:
Hej ! Jeg vil gerne strikke modellen i "Nord" 1tråd ,kan jeg det ?
12.08.2018 - 09:39DROPS Design svaraði:
Hej Inger, For at få samme strikkefasthed som vi bruger i opskriften skal du bruge 2 tråde DROPS Nord eller 1 tråd DROPS Nord + 1 tråd DROPS Kid Silk (garngruppe A). Eller 1 tråd fra garngruppe C God fornøjelse!
14.08.2018 - 13:27
Bellion Béatrice skrifaði:
Bonjour, Puis-je utiliser la laine " DROPS Brushed Alpaca Silk " pour ce pull et combien de pelote me faudra t-il ? cordialement
01.03.2018 - 10:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bellion, vous pouvez remplacer 1 fil Alpaca et 1 fil Kid-Silk (= 2 fils groupe A) par 1 fil Brushed Alpaca Silk (= 1 fil groupe C), notez que le résultat sera différent car la composition n'est pas la même. Retrouvez ici toutes les informations nécessaires sur les alternatives et comment calculer la quantité nécessaire. Bon tricot!
01.03.2018 - 11:37Yvonne skrifaði:
Nadat je de steken voor armsgaten heb gedaan staat er ( ik maak grote xxl) dat als iedereen klaar is met verschuiven er 24 patroon steken volgens A3 maar dat zijn er toch 36 , en dan zou er 26 naast de 3 kant steken maar ik tel er maar 17 zo hoe zit dat nu .
06.10.2017 - 23:51DROPS Design svaraði:
Hoi Yvonne,' Ik heb alles nagerekend met het meerderen en minderen en verschuiven in jouw maat en kom toch op 26 steken naast de 3 kantsteken uit. Aan de kant van het armsgat komen er 6 tricotsteken bij door het verschuiven, dan bij het meerderen voor het armsgat meerder je 10 keer 1 steek en zet je nog eens 7 steken op. In totaal is dat 23 steken plus de 3 steken tricotsteek naast A3/A2 kom je op 26 steken in totaal. Klopt het totaal aantal steken op je naald wel?
04.11.2017 - 15:13Belinda James skrifaði:
Hi, what are the finished measurements in cm/" please? Thanks!
16.08.2017 - 16:42DROPS Design svaraði:
Dear Belinda, the finished measurements are at the bottom of the pattern. Please see the lesson How to read a schematic drawing. Happy knitting!
17.08.2017 - 16:56
Robin Wheeler skrifaði:
Hi, I have a question about the displacement. I have 6 stitches on the neck side, how do I decrease 7 times on that side? I know I'll be increasing after the pattern so the stitch count will remain even. This is a beautiful pattern. Thank you so much.
16.08.2017 - 00:43DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Wheeler, you will dec 1 st before A.2 (see DECREASE-TIP 1) and increase 1 st after A.2 (see INCREASE TIP) on left shoulder. Happy knitting!
28.08.2017 - 11:36
Margit skrifaði:
Liebes Drops-Team, es geht um die linke Schulter (Gr. L). Mir reichen die Maschen nicht aus, um in jeder 6. Reihe 7 Abnahmen zu machen (Zunahmen sind klar). Es werden ja auf der rechten Seite, also vor A.2, , in der die Abnahmen sein sollen, nur insgesamt 4 M neu angeschlagen (in den Rückreihen). Was mach ich falsch? Ich freue mich auf Eure Hilfe! Danke! LG
11.06.2017 - 17:05DROPS Design svaraði:
Liebe Margit, Sie werden für den Halsrand am Ende jeder Rück-R 1 m 2 x und 2 M 1 x und gleichzeitig die Verschiebung stricken, dh Sie haben genügend M um A.2 in jeder 6. Reihe zu verschieben. Viel Spaß beim stricken!
12.06.2017 - 09:56Nadia skrifaði:
Merci beaucoup de m' avoir répondu.bonne continuation.
30.01.2017 - 14:28Nadia skrifaði:
Bonjour.en premier je vous remercie pour ce magnifique site.s il vous plait j ai une question...vous dites pour tricoter le cote epaule gauche: ..., 2 m end, 2 m env, 1-2-2-3-3-4 m jersey et 3 m point mousse ...... s il vous plait je n ai pas compris les signes : 1-2-2-3-3-4 m jersey et 3 m point mousse.....puisque il me reste 5 mailles. merci de me repondre.
30.01.2017 - 11:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Nadia, le nbe de mailles se réfère à chaque taille, soit 1 m jersey en taille S, 2 m jersey en taille M et L, 3 m jersey en taille XL et XXL et 4 m jersey en taille XXXL. Bon tricot!
30.01.2017 - 12:09
Michele skrifaði:
The pattern says to work (20 sts) to 4cm then start displacement. The displacement states to Dec 1 st before marker and Inc 1 st after A2. Following row 1 Inc at neck edge. Pattern says to Inc 8 times for 24 sts. How do I start with 20 sts, Inc 8 times and end up with 24 sts? Shouldn't I have 28 plus the extra inc for a total of 29 sts.
26.12.2016 - 20:32DROPS Design svaraði:
Dear Michelle, A.2 is worked over 14 sts (from the 20 sts), and you insert 1 marker before A.2 + 1 marker after A.2 (= 15 sts between marker) - for displacement inc and dec 8 times (= no sts inc) + inc 4 sts for neck (= 1 st 2 times + 2 sts 1 time) = 24 sts. Happy knitting!
29.12.2016 - 14:27
Ina skrifaði:
Sehr schönes Modell! Es hat eine Weile gedauert, bis ich mich in die Umsetzung der Anleitung eingefunden hatte, aber wenn man das Prinzip verstanden hat und die Schultern hinter sich hat, strickt es sich gut ;)
15.12.2016 - 10:56
Bridget#bridgetsweater |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk, prjónuð ofan frá og niður með áferðamynstri og A-formi. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-4 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Öll útaukning er gerð á eftir/á undan prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-2: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). LEIÐBEININGAR: Vegna formsins á flíkinni þá kemur peysan til með að vera lengri í hliðum en fyrir miðju að framan/að aftan. Til að koma í veg fyrir þetta þá eru prjónaðar stuttar umferðir yfir miðju stykkið með jöfnu millibili þannig: * Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður fram að A.2, snúið við, herðið á þræði og prjónið frá röngu fram að A.1, snúið við, herðið á þræði og prjónið frá réttu eins og áður *, endurtakið frá *-* ca í 7. hverjum cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum. FRAMSTYKKI: Byrjið á vinstri öxl, prjónið síðan hægri öxl áður en fitjað er upp fyrir hálsmáli og prjónið síðan yfir allar l – LESIÐ LEIÐBEININGAR! VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-18-18-19-19-20 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að hálsmáli), 2 l br, aukið út um 1 l í hverja af 3 næstu l (prjónið 2 l í sömu l), 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg = 20-21-21-22-22-23 l í umf. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, br yfir br og sl yfir sl. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.2 yfir næstu 14 l, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 4 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki á undan A.2 (séð frá réttu) og 1 prjónamerki 1 l á eftir A.2 (= 15 l á milli prjónamerkja). Nú byrjar tilfærsla á kaðli að miðju að framan JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá röngu þannig: TILFÆRSLA AF A.2: Fækkið um 1 l á undan A.2 og aukið út um 1 l á eftir A.2 – LESIÐ ÚRTAKA-1 og ÚTAUKNING. Aukið út og fækkið l svona í 4.-6.-6.-8.-10.-10. hverri umf alls 8-7-7-6-6-6 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). HÁLSMÁL: Jafnframt í 1. umf frá röngu byrjar útaukning fyrir hálsmáli með því að fitja upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 1 l 2-2-2-2-3-3 sinnum og 2 l 1 sinni (útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 24-25-25-26-27-28 l. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl. HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-18-18-19-19-20 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjón við handveg, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, aukið út um 1 l í hverja af 3 næstu l (prjónið 2 l í sömu l), 2 l br og 2 kantlykkjur í garðaprjón við hálsmál = 20-21-21-22-22-23 l í umf. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, br yfir br og sl yfir sl. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir A.1 yfir næstu 14 l og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 4 cm. Setjið 1 prjónamerki á undan A.1 (séð frá réttu) og 1 prjónamerki á eftir A.1 (= 15 l á milli prjónamerkja). Nú byrjar tilfærsla á kaðli að miðju að framan JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá röngu þannig: TILFÆRSLA AF A.1: Aukið út um 1 l á undan A.1 og fækkið um 1 l á eftir A.1– LESIÐ ÚTAUKNING og ÚRTAKA-1. Aukið út og fækkið l svona í 4.-6.-6.-8.-10.-10. hverri umf alls 8-7-7-6-6-6 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar með sléttprjóni). HÁLSMÁL: Jafnframt í 1. umf frá réttu byrjar útaukning fyrir hálsmáli með því að fitja upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 1 l 2-2-2-2-3-3 sinnum og 2 l 1 sinni og að lokum 20-20-22-22-22-22 l 1 sinni (útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni) = 44-45-47-48-49-50 l. Prjónið nú hægri öxl og vinstri öxl saman við framstykki. FRAMSTYKKI: Haldið eftir l á hægri öxl á prjóni og haldið síðan áfram með mynstur frá réttu yfir l frá vinstri öxl = 68-70-72-74-76-78 l í umf. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið br fram að A.2, haldið áfram með A.2 (14 l), prjónið sl yfir l á milli A.2 og A.1, haldið áfram með A.1 (= 14 l), prjónið br þar til 3 l eru eftir á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig (tilfærsla á A.1/A.2 heldur áfram eins og áður): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón fram að A.1, haldið áfram með A.1, prjónið mynstur eftir A.3 yfir l á milli A.1 og A.2, haldið áfram með A.2, prjónið sléttprjón þar til 3 l eru eftir á prjóni og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og haldið áfram með tilfærsluna eins og útskýrt var frá að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-17-17-16-14-12 cm er aukið út fyrir handveg í hvorri hlið (frá réttu) þannig: Aukið út um 1 l innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. Aukið svona út í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hveri umf frá réttu) alls 2-3-5-7-10-13 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-5-6-7-8 nýjar l í lok 2 næstu umf fyrir handveg = 78-84-92-100-110-120 l í umf. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram með mynstur eins og áður, en prjónið 2 umf garðaprjón yfir síðustu 6-7-8-9-10-11 l á hvorri hlið (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). ATH: Í stærð XXL + XXXL halda tilfærslurnar áfram í A.1/A.2 eins og áður (í stærð S + M + L + XL er tilfærsla á lykkjum lokið ef prjónfestan hefur haldist á hæðina). Þegar prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón yfir síðustu 6-7-8-9-10-11 l í hvorri hlið heldur mynstrið áfram eins og áður, en með 2-2-2-3-3-3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið til loka. Þegar tilfærslurnar hafa verið gerðar í öllum stærðum eru 16-18-20-22-24-24 l mynstur eftir mynstur A.3 við miðju að framan og 15-17-20-22-26-31 l sléttprjón innan við 2-2-2-3-3-3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan án tilfærslna á lykkjum þar til stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm frá öxl (passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu). Nú byrjar útaukning í hliðum JAFNFRAMT þar sem kaðlarnir færast út að hliðum þannig: ÚTAUKNING Á HLIÐUM: Aukið út um 1 l innan við síðustu 5-5-5-6-6-6 l á hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. Aukið svona út í 8. hverri umf alls 10 sinnum (eða að óskuðu máli – ATH: Öll útaukning er gerð frá réttu). TILFÆRSLA AF A.1/A.2: Fækkið um 1 l á undan A.1 og aukið út um 1 l á eftir A.1, aukið út um 1 l á undan A.2 og fækkið um 1 l á eftir A.2 (útauknar lykkjur í hlið eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3 þannig að miðjueiningin með A.3 verður alltaf stærri og stærri). Fækkið l og aukið svona út í 8. hverri umf til loka. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður (passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu) = ca 98-104-112-120-130-140 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l – JAFNFRAMT í fyrstu umf er l fækkað yfir hvorn kaðal með því að prjóna l í báðum köðlunum slétt saman 2 og 2 (= 6 l færri) = ca 92-98-106-114-124-134 l í umf. Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 5 og fellið af (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). BAKSTYKKI: Byrjið með hægri öxl (þegar flíkin er mátuð), prjónið síðan vinstri öxl áður en fitjaðar eru upp l fyrir hálsmáli og prjónið síðan yfir allar l. HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp og prjónið eins og vinstri öxl á framstykki, en þegar stykkið mælist 2 cm byrjar útaukning fyrir hálsmáli og fitjuð er upp 1 ný l í lok fyrstu umf frá röngu (útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 21-22-22-23-23-24 l. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl. VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp og prjónið eins og hægri öxl á framstykki, nema þegar stykkið mælist 2 cm byrjar útaukning fyrir hálsmáli og fitjaðar eru upp nýjar l í hálsmáli í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 1 l 1 sinni og síðan 26-26-28-28-30-30 l 1 sinni (útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 47-48-50-51-53-54 l. Prjónið vinstri og hægri öxl saman við bakstykki. BAKSTYKKI: Haldið eftir l á vinstri öxl á prjóninum og haldið síðan áfram með mynstur frá réttu yfir l frá hægri öxl = 68-70-72-74-76-78 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið br fram að A.2, haldið áfram með A.2 (= 14 l), prjónið sl yfir næstu 32-32-34-34-36-36 l (þ.e.a.s. l á milli A.2 og A.1), haldið áfram með A.1 (= 14 l), prjónið br þar til eftir eru 3 l á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón fram að A.1, haldið áfram með A.1, prjónið A.3 yfir l á milli A.1 og A.2, haldið áfram með A.2, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 3 l á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 4 cm. Setjið 1 prjónamerki í 1 l á undan A.1 (séð frá réttu) og 1 prjónamerki á eftir A.1 (= 15 l á milli prjónamerkja), að auki er sett 1 prjónamerki á undan A.2 og 1 prjónamerki á eftir A.2 (= 15 l á milli prjónamerkja). Nú byrjar tilfærsla á köðlum að miðju að aftan frá réttu þannig: TILFÆRSLA Á A.1/A.2: Aukið út um 1 l á undan A.1 og fækkið um 1 l á eftir A.1 að auki er fækkað um 1 l á undan A.2 og aukið út um 1 l á eftir A.2 – LESIÐ ÚTAUKNING og ÚRTAKA-1. Aukið út og fækkið l svona í 4.-6.-6.-8.-10. hverri umf alls 8-7-7-6-6-6 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-17-17-16-14-12 cm byrjar útaukning út fyrir handveg í hvorri hlið og hvor hlið og afgangur af bakstykki er prjónað á sama hátt og framstykki. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á stutta hringprjóna, ofan frá og niður þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er ermin prjónuð í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna til loka. Fitjið upp 24-24-26-24-24-24 l á stutta hringprjóna nr 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermakúpu í lok hverrar umf frá hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 l 1 sinni í öllum stærðum, 2 l 2-3-3-3-3-3 sinnum, 1 l 3-3-3-3-5-7 sinnum, 2 l 2-2-3-3-3-3 sinnum og 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum = 58-62-68-72-76-80 l í umf (stykkið mælist nú ca 8-9-10-11-13-15 cm). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón í hring. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið l svona alls 12-13-15-17-18-19 sinnum í stærð S: Til skiptis í 5. og 6. hverri umf, í stærð M: Í 5. hverri umf, í stærð L: Í 4. hverri umf, í stærð XL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf, í stærð XXL: Í 3. hverri umf og í stærð XXXL: Til skiptis í 2. og 3. hverri umf= 34-36-38-38-40-42 l. Þegar stykkið mælist 31-30-30-29-28-26 cm frá prjónamerki (öll ermin mælist ca 39-39-40-40-41-41 cm og úrtöku á nú að vera lokið), prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 26-24-22-22-32-30 l jafnt yfir = 60-60-60-60-72-72 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.4 í 15 cm (= 5-5-5-5-6-6 mynstureiningar 12 l). Prjónið 1 umf slétt þar sem l í hverjum kaðli eru prjónaðar saman tvær og tvær (= 15-15-15-15-18-18 l færri) = 45-45-45-45-54-54 l. Fellið nú af með sl yfir sl og br yfir br. Ermin mælist ca 55-55-56-56-57-57 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkant. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Leggið aðra ermina undir kantinn í garðaprjóni í handveg og saumið niður með fínu spori (kantur í garðaprjóni á að liggja utan á ermi – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur). Saumið hina ermina í á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bridgetsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.