Alida Drijkoningen skrifaði:
Wow uitzonderlijk mooi...elegant....super. Kan niet wachten om hier aan te beginnen. Wow exceptional ... elegant. ... super. Can't wait to here to get started.
15.06.2016 - 08:39
Angela Richter skrifaði:
Super modell, macht Lust zum Nacharbeiten
13.06.2016 - 07:39
Ann Hansen skrifaði:
Spændende mønster
08.06.2016 - 15:12
Karin skrifaði:
Wow! Etwas ganz Besonderes!
06.06.2016 - 08:46
Karin skrifaði:
Attempt #9: Flattering... new... less cape than elegant pullover. Are these words allowed?
03.06.2016 - 18:18
Karin skrifaði:
7 times, forbidden words, what forbidden words!
03.06.2016 - 18:15
Franca skrifaði:
Davvero molto originale, credo sarà il mio prossimo progetto.
03.06.2016 - 15:54
Sand Tracks#sandtrackssweater |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð hringpeysa úr DROPS Puna með köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-7 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning A.1a hefur 12 umf kaðla- og gatamynstur og 10 umf sléttprjón með útaukningu sem er endurtekin á hæðina. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l í hverri br mynstureiningu þannig: Prjónið 3 l sl, aukið út um 1 l með því að taka upp þráðinn á milli 2 l og prjónið snúið brugðið (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) þetta er gert til að koma í veg fyrir göt. Í næsta skipti sem aukið er út í hverri br mynstureiningu þá er það gert nákvæmlega á undan 3 l sl til að útaukningin sé gerð til skiptis hægra og vinstra megin við hverra brugðna mynstureiningu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í næst síðustu br mynstureiningu í hvorri hlið á stykki í kanti á framstykki þegar kanturinn mælist ca 3 cm. Prjónið br mynstureininguna frá réttu þannig: Prjónið 1 l br, 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring í hring frá miðju að aftan. BAKSTYKKI: Fitjið upp 6 l með Puna og skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtaakið frá *-* umf hringinn = 12 l. Prjónið A.1 (= 2 l) alls 6 sinnum á breiddina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 (meðtalið A.1a) hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 300 l í umf. Endurtakið mynstrið og útaukningu í A.1a. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 56-60-64-66-68-70 cm að þvermáli (= ca 420-444-468-480-492-504 l í umf). Passið að næsta umf sé 1 umf með uppslætti. Klippið frá. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú stykkið áfram fram og til baka með byrjun frá réttu þannig: Færið umf til þannig að byrjað er á milli 2 kaðla (= þ.e.a.s. á eftir 1. kaðli og 2 l br), prjónið mynstur, sléttprjón og aukið út eins og áður yfir alls 6 kaðla = 3 einingar í sléttprjóni (= ca 208-220-232-238-244-250 l), snúið við og prjónið til baka þegar prjónað er yfir síðasta kaðalinn (þ.e.a.s. umf byrjar með 1 kaðli og endar á 1 kaðli, það er engin kantlykkja). Setjið þær l sem eftir eru á þráð (= ca 212-224-236-242-248-254 l = kantur neðan á peysu), það á síðar að prjóna stroff yfir þessar l. Haldið áfram yfir 6 kaðlana og 3 einingarnar í sléttprjóni þannig: Setjið 1 prjónamerki mitt í 2. sléttprjónuðu eininguna (þ.e.a.s. það eru 3 kaðlar hvoru megin við prjónamerki = miðja í umf). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og áður (þ.e.a.s. aukið er út um 6 l í hverri útaukningsumferð). Þegar stykkið mælist 11-11-12-12-13-13 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf sé frá réttu, fellið af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig þannig: Prjónið eins og áður þar til eftir eru 17-17-18-18-19-19 l á undan prjónamerki (miðja í 2. sléttprjónuðu einingunni), setjið næstu 34-34-36-36-38-38 l (prjónamerkið er staðsett í miðju á þessum l) á þráð fyrir hálsmáli, snúið við og prjónið til baka. Nú eru eftir 10 umf til loka. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og útaukningu. Þegar 10 umf eru prjónaðar mælist stykkið ca 15-15-16-16-17-17 cm frá prjónamerki. Setjið næstu l á þráð. Prjónið hina öxlina á sama hátt, nema spegilmynd. Stykkið mælist ca 86-90-96-98-102-104 cm að þvermáli þar sem stykkið er lengst, frá hlið að hlið (= alls 36-36-38-38-40-40 l settar á þráð/felldar af fyrir hálsmáli). KANTUR: Prjónið stroff yfir l sem settar eru á þráð neðst niðri á stykki. Setjið l á hringprjóna nr 3,5 (= ca 212-224-236-242-248-254 l). Kanturinn er prjónaður fram og til baka. Prjónið 1 umf br frá röngu og aukið út um ca 91 l (jafnið lykkjufjöldann út þannig að hann verði deilanlegur með 6 l + 3 l) = ca 303-315-327-333-339-345 l. Prjónið stroff (= 3 l sl, 3 l br), með byrjun frá réttu, þar til 3 l eru eftir, endið með 3 l sl. Þegar stroffið mælist ca 1½ cm er aukið út um 1 l br í hverri br mynstureiningu séð frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING - (= ca 50-52-54-55-56-57 l fleiri) = ca 353-367-381-388-395-402 l. Stoffið er þá prjónað 2 l sl, 4 l br séð frá réttu. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 3½.cm (= ca 50-52-54-55-56-57 l fleiri) = ca 403-419-435-443-451-459 l. Stroffið er þá prjónað 3 l sl, 5 l br séð frá réttu. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 5 cm. Stykkið mælist ca 76-80-85-88-91-93 cm að þvermáli á hæðina. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til eftir eru 22-22-24-24-26-26 umf (= ca 8-8-9-9-10-10 cm) þar sem axlalykkjurnar eru settar á þráð. (Þetta er mikilvægt svo að það verði jafn margar axlalykkjur á fram- og bakstykki = jafn margar útaukningar). Næsta umf frá réttu á stykkinu. Nú er fellt af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið eins og áður þar til 8 l eru eftir á undan prjónamerki (miðja í 2. sléttprjónuðu einingunni), setjið næstu 16 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l) á þráð fyrir hálsmáli, snúið við og prjónið til baka. Í næstu umf frá hálsmáli er fækkað um 1 l. Fækkið lykkjum svona í hverri umf frá hálsmáli alls 10-10-11-11-12-12 sinnum (= alls 26-26-27-27-28-28 l settar á þráð/felldar af fyrir hálsmáli). Prjónið síðan yfir axlalykkjurnar jafn langt og á bakstykki. Setjið l á þráð. Prjónið hina öxlina á sama hátt (= alls 36-36-38-38-40-40 l settar á þráð/felldar af fyrir hálsmáli). KANTUR: Prjónið á sama hátt og á bakstykki, nema fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið tölur í kant á bakstykki. HÁLSMÁL: Stykkið er prjónað í hring, byrjið við miðju að aftan. Prjónið upp 119-119-126-126-133-133 l á sokkaprjóna nr 3,5 (meðtaldar l af þráðum). Prjónið stroff (= 4 l br, 3 l sl). Þegar kanturinn í hálsmáli mælist 2 cm er fækkað um 1 l í hverri br einingu með því að prjóna fyrstu 2 l br saman = 102-102-108-108-114-114 l. Stroffið er þá prjónað 3 l br, 3 l sl. Þegar kanturinn í hálsmáli mælist 5 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandtrackssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.