Madeleine skrifaði:
Jag instämmer med ovanstående. För att mönstret ska stämma måste man sticka A5 först och A2 sist på varvet. Dessutom är det 9 rätstickade maskor mitt på hälen i storlek 38/40, inte 8.
28.01.2023 - 09:37
Anja Jooren skrifaði:
Goedemiddag, ik zou dit patroon graag breien maar dan in garen wat slijtvaster is zoals sokkengaren. Is 2 draden Fabel een optie? mvg Anja
25.08.2021 - 13:53DROPS Design svaraði:
Dag Anja,
Ja, Fabel is een uitstekend sokkengaren en een prima alternatief. Je hebt dan inderdaad 2 draden nodig om op dezelfde stekenverhouding te komen. Maak altijd even een proeflapje om de stekenverhouding te controleren en pas eventueel de naalddikte aan. Onderaan de materialenlijst vind je een link naar de garenvervanger, waarmee je uit kunt rekenen hoeveel gram je nodig hebt.
27.08.2021 - 10:39
Sigrid skrifaði:
Jag stickar strl 41/43. När A6a påbörjas ska man ha 60 maskor. Första raden på A6a löper över 9 maskor vilket innebär att det inte går jämnt ut på varvet. Ska det verkligen vara så?
14.07.2017 - 00:25DROPS Design svaraði:
Hej. Om du menar att du precis har bytt till strumpst 5 så stickas nästa varv så här: "Sticka A.6a (se diag för rätt stl = 5-7-9 m), A.2 (= 7 m), A.3 (= 6 m), A.1 (= 16 m), A.4 (= 6 m), A.5 (= 7 m), avsluta med A.7a (se diag för rätt stl = 5-7-9 m)." = 60 m i din storlek. Lycka till!
14.07.2017 - 11:29
Susanne skrifaði:
Når det står 2 m felt i forbindelse med fortsettelsen av A6a og A7a - betyr det at man skal legge på to masker eller strikke m utgangspunkt i seks i stedet for sju masker? Jeg forstår ikke helt hva som menes...
04.11.2016 - 19:04DROPS Design svaraði:
Hej Susanne. Naar du strikker A.6a og A.7a startede du med 7 m men der tages 1 maske ind i diagrammet i p 11, saa du mindsker automatisk i og med du strikker diagrammerne.
08.11.2016 - 11:55
Christine skrifaði:
Rett før hælfellingen er det oppgitt følgende: "Arb strikkes nå frem og tilbake. På neste p økes det 1 m i hver side av arb ved å strikke 2 m i første og siste m = 22-24-26 m. Strikk slik fra retten: 1 m vr, A.2, glstrikk over de neste 6-8-10 m, A.5 og avslutt med 1 m vr". For å få mønsteret likt som ovenfor på min sokk måtte jeg strikke 1 m vr, A.5, glattstrikk, A.2, 1m vr. M.a.o. motsatt rekkefølge på mønstrene av det som er oppgitt.
12.08.2016 - 09:47
White Cables#whitecablessocks |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með köðlum úr DROPS Nepal. Stærð 35–43.
DROPS 173-44 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 10-12-12 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman. Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið fyrstu 2 l á eftir prjónamerki snúnar slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 60-64-68 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist 4 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið * 1 umf br, 1 umf sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 8 l jafnt yfir = 52-56-60 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið þannig: Prjónið A.6a (sjá mynstur fyrir rétta stærð = 5-7-9 l), A.2 (= 7 l), A.3 (= 6 l), A.1 (= 16 l), A.4 (= 6 l), A.5 (= 7 l), endið með A.7a (sjá mynstur fyrir rétta stærð = 5-7-9 l). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 til A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.2a endurtekið til A.5a til loka. Mynstur A.6 og A.7 er síðan prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ 35/37: Endurtakið A.6a/A.7a alls 4 sinnum, A.6b/A.7b alls 1 sinni (= 2 l færri), A.6c/A.7c alls 4 sinnum, A.6d/A.7d alls 1 sinni (= 2 l færri), endurtakið A.6e/A.7e þar til stykkið mælist 26 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af mynstri á hæðina. STÆRÐ 38/40: Endurtakið A.6a/A.7a alls 1 sinni (= 2 l færri), A.6b/A.7b alls 2 sinnum, A.6c/A.7c alls 1 sinni (= 2 l færri), A.6d/A.7d alls 2 sinnum, A.6e/A.7e alls 1 sinni (= 2 l færri), endurtakið A.6f/A.7f þar til stykkið mælist 27 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina. STÆRÐ 41/43: Endurtakið A.6a/A.7a alls 1 sinni (= 4 l færri), A.6b/A.7b alls 2 sinnum, A.6c/A.7c alls 1 sinni (= 4 l færri), endurtakið A.6d/A.7d þar til stykkið mælist 28 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af mynstri á hæðina. ATH. Fækkið um 4 l í mynstri A.1 – sjá mynsturteikningu. Þegar stykkið mælist 26-27-28 cm eru 44-46-48 l. Haldið nú eftir fyrstu 10-11-12 l á prjóni (þ.e.a.s. A.6 og A.2), setjið næstu 24 l á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 10-11-12 l á prjóni (þ.e.a.s. A.5 og A.7) = 20-22-24 l fyrir hæl. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Í næstu umf er aukið út um 1 l á hvorri hlið á stykki með því að prjóna 2 l í fyrstu og síðustu l = 22-24-26 l. Prjónið frá réttu þannig: 1 l br, A.2, sléttprjón yfir næstu 6-8-10 l, A.5 og endið með 1 l br. Haldið svona áfram fram og til baka yfir hæl-l í 5½ cm. Setjið 1 prjónamerki, stykkið er nú mælt héðan. Stillið af að mynstrið endi fallega. Prjónið nú sléttprjón yfir allar l og fækkið lykkjum fyrir hæl – lesið HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-10-11 l hvoru megin við hæl og 24 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 54-56-58 l. Prjónið 5-6-6 l sl (= miðja undir fæti) = byrjun á umf. Setjið síðan 2 prjónamerki í stykkið og prjónið síðan þannig: Prjónið 14-15-16 l sl, setjið 1. prjónamerki, 1 l br, haldið áfram með mynstur A.3, A.1, A.4, (þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1a endurtekið til loka), 1 l br, setjið 2. prjónamerki, 14-15-16 l sl. Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er fækkað um 1 l á undan 1. prjónamerki og 1 l á eftir 2. prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, í hverri umf alls 9 sinnum = 36-38-40 m (= 10-12-14 l sléttprjón undir fæti). Prjónið þar til stykkið mælist 19-21-23 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 3 cm). Prjónið nú sléttprjón yfir l í A.1a, stillið af að endað sé á einni mynstureiningu af A.1a á hæðina, e.t.v. er hægt að prjóna sléttprjón aðeins fyrr. Mynstur A.3 og A.4 halda áfram til loka. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 5-6-7 l sl, setjið 1. prjónamerki, 1 l br, prjónið A.3 og setjið 2. prjónamerki á milli 5. og 6. l, prjónið sl yfir fótinn (= 12 l), A.4 og setjið 3. prjónamerki á milli 1. og 2. l, 1 l br, setjið 4. prjónamerki, endið með 5-6-7 l sl (= 14 l ofan á fæti, 10-12-14 l undir fæti og 6 l í hvorri hlið). Fækkið síðan lykkjum fyrir tá í næstu umf þannig: Fækkið um 1 l á eftir 2. prjónamerki ofan á fæti og 1 l á undan 3. prjónamerki ofan á fæti (= alls 2 l færri), endurtakið úrtöku í hverri umf alls 2-1-0 sinnum – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 10-12-14 l ofan á fæti og 10-12-14 l undir fæti (= 32-36-40 l alls). Í næstu umf er l fækkað þannig: Fækkið um 1 l á undan 1. og 3. prjónamerki og 1 l á eftir 2. og 4. prjónamerki (= alls 4 l færri). Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 4-5-6 sinnum JAFNFRAMT í síðustu umf er prjónaðar kaðlalykkjur í A.3 og A.4 þannig: Prjónið 2 l snúnar slétt saman, 2 l slétt saman. Eftir alla úrtöku eru 12 l á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitecablessocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.