DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 156-55
DROPS Design: Mynstur nr ne-162
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37-38/40-41/43
Lengd fótar: 22-24-27 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
150-150-150 gr litur nr 4311, grár/fjólublár

DROPS PRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l snúnar slétt saman.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið umf 2.

MÆLING:
Mælt er fyrir miðju í kaðli A.1/A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan.

TÁTILJA:
Fitjið upp 33-33-35 l á prjóna nr 5 með Nepal (látið endann vera ca 20 cm langan, hann er notaður fyrir frágang). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 4 l jafnt yfir = 37-37-39 l. Prjónið nú frá réttu þannig: 4 l br, A.3 (= 8 l), 13-13-15 l PERLUPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, A.1 (= 8 l), endið á 4 l br. Haldið svona áfram með mynstur, br er prjónað sl frá röngu. A.1 og A.3 er endurtekið til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10½-11½-13 cm – lesið MÆLING að ofan, prjónið nú frá réttu þannig: 4 l br, A.3, 13-13-15 l perluprjón, A.1, 4 l br, fitjið upp 4 nýjar l, prjónið yfir 4 fyrstu l, umf byrjar hér = 41-41-43 l. Stykkið er nú prjónað áfram í hring á sokkaprjóna. Prjónið mynstur eins og áður, en nú er prjónað A.2 (= 12 l) yfir 4 l br í hvorri hlið á stykki og 4 nýjar l. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.a prjónað þar til stykkið mælist 17-19-22 cm. Prjónið nú sléttprjón yfir l í A.a, jafnvel er hægt að prjónað sléttprjón aðeins fyrr. A.1 og A.3 heldur áfram til loka. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið A.3, en setjið 1. prjónamerki á milli 1. og 2. l og 2. prjónamerki á milli 7. og 8. l í A.3, prjónið perluprjón eins og áður, prjónið A.1 en setjið 3. prjónamerki á milli 1. og 2. l og 4. prjónamerki á milli 7. og 8. l í A.1, prjónið sl yfir þær l sem eftir eru (= 14 l ofan á fæti, 15-15-17 l undir fæti og 6 l í hvorri hlið á stykki).

Fækkið nú lykkjum fyrir tá í næstu umf þannig: Fækkið um 1 l á eftir 2. prjónamerki og 1 l á undan 3. prjónamerki undir fæti alls 0-0-1 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA að ofan, prjónið yfir þær l sem efir eru = 14 l ofan á fæti og 15 l undir fæti (= 41 l alls). Í næstu umf er lykkjum fækkað þannig: Fækkið um 1 l á undan 1. og 3. prjónamerki og 1 l á eftir 2. og 4. prjónamerki (= alls 4 úrtökur). Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 6 sinnum JAFNFRAMT í síðustu úrtöku er prjónuð kaðlalykkja í A.1 og A.3 þannig: Prjónið 2 l snúnar saman, 2 l slétt saman. Eftir alla úrtöku eru 13 l á prjóni. Stykkið mælist nú ca 20-22-25 cm.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppfitjunarkant saman tvöfaldan (= miðja að aftan), notið enda brá byrjun til að sauma saman fallega við miðju að aftan.

KANTUR:
Kanturinn er prjónaður í hring á sokkaprjóna, í kringum op á tátiljunni. Prjónið upp 50-50-54 l á sokkaprjóna nr 4 með Nepal. Prjónið 1 umf br. Prjónið síðan 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir = 60-60-64 l. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist 12-13-14 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Brjótið kantinn saman tvöfaldan.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 2 l sl, 1 l br/sl af hjálpaprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, prjónið 1 l br/sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 2 l sl, prjónið 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, prjónið 2 l sl, prjónið 2 l sl af hjálparprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-55

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (166)

country flag Teresa Matheson wrote:

I was just checking back through the comments as I'm confused. After 22 cm for the last 3 cm to 25cm do you work Aa as stocking stitch? One answer said yes, as you are decreasing and it's too hard to work the pattern while decreasing, but an earlier answer said continue to work the pattern (as in the photo) while decreasing. I did stocking stitch but it looks odd with hardly any of the second pattern.

21.04.2024 - 22:00

DROPS Design answered:

Dear Teresa, you need to continue working the pattern as you decrease. This means that the stitches in A.a are worked in stocking stitch from 22 cm onwards, while you continue working the pattern for A.1 and A.3. Then you decrease for the foot at one side of each marker which should correspond to A.a stitches or the sides of the A.1/A.3 charts, so the decreases shouldn't interrupt the rest of the pattern. Happy knitting!

22.04.2024 - 00:44

country flag Teresa Matheson wrote:

Do you cast the 4 new stitches on the end of the row you have just finished and then knit them off onto a new needle having a split row? Or do you need to cast them onto a new needle and knit them back onto the full needle thus having the whole row on one needle. I did the latter as the first meant you started the row on stitch 5 of A2. But it meant that I knitted the rest of the slipper inside out.

21.04.2024 - 21:49

DROPS Design answered:

Dear Teresa, you work: P 4, A.3, 13-13-15 sts moss st, A.1, P 4, cast on 4 new sts, work the next 4 sts. Here you will start working the round; you have displaced the beginning of the round. The cast on stitches are worked as normal stitches and don't split the row. Happy knitting!

22.04.2024 - 00:47

country flag Teresa Matheson wrote:

I'm stuck moving from straight needles to in the round. I managed to cast the extra 4 stitches onto the empty needle and then knit them onto the full needle (43 stitches). But then I'm on row 2 (wrong side). Do I start A2 on row 1 or row 2? When I'm knitting in the round do I alternate knit and pearl or do I just keep knitting as for the Wrong side as that's the side that is now in the middle of the circle with the Right side facing out. I'm confused 😳

18.04.2024 - 09:02

DROPS Design answered:

Dear Teresa, after you cast on the 4 stitches, the pattern tells you to continue knitting on the round, and you should do that from teh right side, no wrong side rows. A.2 should be started with its first row. The diagrams always show you the patterns as you would see it from the RIGHT SIDE, so for example stocking stitch is always knit stitch, garter stitch is one round knit and one round purl. I hope this helps. Happy Knitting!

18.04.2024 - 11:31

country flag Tania wrote:

Vou tentar fazer! Amo tudo da Garnstudio.

31.03.2024 - 18:29

country flag Letourneau Catherine wrote:

Bonjour, Je suis satisfaite de mes petits chaussons, ma petite fille de 13 ans les a tout de suite adopté. je les ai fait de 2 couleurs, ils sont confortables et idéales pour vivre sur du plancher. Tout mes petits enfants, en veulent. Je commence donc un autre model. MERCI

05.01.2024 - 19:37

country flag Chloé wrote:

Bonsoir à vous, je viens de terminer ma première chaussette - pour laquelle je me suis déjà reprise à trois fois -. Cependant, je n'obtiens pas du tout la même chose avec A2, une fois le motif achevé. En effet, j'obtiens deux motifs torsadés positionnés sur les côtés, et non un seul central. Est-ce normal ? En vous remerciant par avance

30.12.2023 - 21:14

DROPS Design answered:

Bonjour Chloé, le diagramme A.2 doit vous donner la même torsade que sur la photo: vous commencez par une torsade de 4 mailles que vous allez diviser en 2 au milieu et ainsi continuer avec 2 torsades de 3 mailles; elles vont s'écarter sur les bords, les mailles du milieu vont être tricotées au point de riz; puis vous allez tricoter les torsades de 3 mailles de sorte qu'elles se rapprochent pour n'obtenir qu'une torsade de 4 mailles. Essayez de vous entrainer sur un échantillon si besoin. Bon tricot!

02.01.2024 - 10:53

country flag Emilie wrote:

Bonsoir, c'est la 1ere fois que je tricote des chaussettes et je bloque sur le passage ou je dois prendre mes aiguilles doubles pointe et commencer a tricoter A.2,. Si j'ai bien compris je dois tricoter 12m A.2 puis 13 mailles points de riz et de nouveau 12m A.2 mais au total ça fait 37 mailles et non 41 comme indiqué. Pouvez-vous m'aider SVP? Merci

12.12.2023 - 22:50

DROPS Design answered:

Bonjour Emilie, les tours commencent maintenant par les 8 mailles de A.3, vous tricotez ensuite les 13 mailles jersey, les 8 mailles de A.1 puis les 12 mailles de A.2 = 8+13+8+12= 41 mailles. Bon tricot!

13.12.2023 - 08:13

country flag Annie Fedel wrote:

Is there an available video to show the blocking of these socks/booties? Thanks

27.11.2023 - 06:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fedel, not sure what you mean here, you don't need to block the slippers when they are done, just can just wash them if desired and then just wear them. Happy knitting!

27.11.2023 - 10:14

country flag Letourneau Catherine wrote:

Bonjour, Lorsque Aa se tricote en jersey et que je commence les diminution ,A1 et A3 se continue en torsade. Donc,je vais diminuer sur les torsades de A1 er A 3 ?

20.11.2023 - 00:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Letourneau, les diminutions de la pointe du chausson se font de chaque côté de A.1 et de A.3, pas de A.a, autrement dit, les mailles du diagramme A.2/A.a se tricotent en jersey et vous diminuez avant/après la torsade A.1 et A.3 de chaque côté. Bon tricot!

20.11.2023 - 11:30

country flag Anna Fedel wrote:

In the Diagram explanations , slip 1 st on cable needle , got it , behind piece , got it , K2 , got it , (P/K1 from cable needle) whaaat? lost me on that one. Help . Thanks Anna!

12.11.2023 - 04:10

DROPS Design answered:

Dear Anna, you will either knit or purl the stitch in the cable needle depending on the moss stitch pattern. Since you purl over knitted stitch or knit over purled stitches, if the stitch below was a knit stitch you will purl the stitch; if it was a purl stitch you will knit this stitch. Happy knitting!

12.11.2023 - 20:56