Netty Schoenmakers skrifaði:
Ik mis het stukje patroon A4 wat na de A1 komt ? Jullie beginnen weer gewoon met A3 .Wat nu ?
12.07.2016 - 11:35DROPS Design svaraði:
Hoi Netty. Nee, je breit alleen A.4 bij het breien van PATROON-1 (1 herhaling van A.4 na de eerste herhalingen van A.1) = Lees bovenaan het patroon. Pas daarna ga je weer A.3 breien.
13.07.2016 - 15:56Amel Mana skrifaði:
Très jolie model
03.04.2016 - 21:41
Solveig Hansson skrifaði:
Förstår inte beskrivningen på bakstycket efter att Mönster 1 är klart. "Sticka A.3 tills det återstår ......, sticka de första ....... av A.3". Solan
02.03.2016 - 11:17DROPS Design svaraði:
Hej Solveig, jo du stickar enligt A.3 och avslutar med 1:a m i diagrammet så mönstret bliver likt i båda siderna.
02.03.2016 - 13:47
Bellion Beatrice skrifaði:
Correction de mon message " en prenant" désolé :) :)
21.02.2016 - 12:11
Beatrice Bellion skrifaði:
Bonjour, peut -on tricoter ce joli pull avec la laine Baby alpage silk que je viens d'acheter chez 1001 laines on prenons deux fils merci
21.02.2016 - 11:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bellion, effectivement, 2 fils groupe A (Baby Alpaca Silk) = 1 fil groupe C (Alaska), cliquez ici pour calculer la quantité, pensez aussi à bien vérifier votre échantillon. Bon tricot!
22.02.2016 - 10:24
Look At Me |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska með áferðamynstri og kögri. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1235 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. MYNSTUR-1: Prjónið A.1 alls 2-2-2-3-3-4 sinnum á hæðina. Prjónið A.4 alls 1 sinni á hæðina. Prjónið A.5 alls 1 sinni á hæðina. Prjónið A.1 alls 1 sinni á hæðina. Prjónið A.5 alls 1 sinni á hæðina. Prjónið A.6 alls 1 sinni á hæðina JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er aukið út um 1 l. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið alltaf út frá réttu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 83-91-99-107-115-123 l á hringprjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið A.1 með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Endurtakið A.1 alls 3 sinnum á hæðina. Prjónið A.2 þannig (fyrsta umf = ranga): 1 l garðaprjón, A.2 þar til 2 l eru eftir (= 10-11-12-13-14-15 sinnum), prjónið fyrstu l í A.2 (svo að það verði alveg eins í báðum hliðum á stykki), endið á 1 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.3 yfir A.2 þannig (fyrsta umf = rétta): 1 l garðaprjón, A.3 þar til 2 l eru eftir, prjónið fyrstu l í A.3, endið á 1 l garðaprjón. Lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.3 þar til stykkið mælist 20-21-22-22-23-23 cm, passið uppá að síðasta umf sé frá réttu. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki í 7 cm, passið síðan að síðasta umf sé frá réttu. Prjónið 1 umf br frá röngu, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l = 82-90-98-106-114-122 l. Prjónið A.7 með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Prjónið síðan MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm fellið af 3-3-5-5-7-7 l fyrir handveg í hvorri hlið á stykki í byrjun á 2 næstu umf. Þegar fellt hefur verið af fyrir handveg og mynstur-1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 77-85-89-97-101-109 l á prjóni. Prjónið A.3 þar til eftir eru 5-5-1-1-5-5 l, prjónið fyrstu 5-5-1-1-5-5 l af A.3. Haldið áfram með mynstur til loka. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, passið uppá að næsta umf sé frá réttu, setjið miðju 25-25-27-27-29-29 l á þráð fyrir hálsmáli (= 26-30-31-35-36-40 l eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsimáli = 25-29-30-34-35-39 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 51-53-53-55-57-59 cm, passið uppá að næsta umf sé frá réttu, setjið miðju 11-11-13-13-15-15 l á þráð fyrir hálsmáli (= 33-37-38-42-43-47 l eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 2 l í hverri umf frá hálsi 3 sinnum, síðan er felld af 1 l í hverri umf frá hálsmáli 2 sinnum = 25-29-30-34-35-39 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 42-42-42-50-50-50 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið A.1 alls 3 sinnum á hæðina. Kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni til loka. Prjónið A.2 (fyrsta umf = ranga) alls 5-5-5-6-6-6 sinnum á breiddina með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.3 til loka. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið útum 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. Endurtakið útaukningu með 5-4-3½-4-3½-3 cm millibili 8-10-11-9-11-12 sinnum til viðbótar = 60-64-66-70-74-76 l. Fellið af þegar stykkið mælist 51-50-50-49-48-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið vinstri axlasaum. HÁLSMÁL: Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp frá réttu ca 70-85 l (meðtaldar l af þræði) meðfram hálsmáli á hringprjóna nr 5. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið hægri axlasauma (meðtalinn kant í hálsmáli). Saumið ermar í. Saumið hliðar- og ermasauma innan við 1 kantlykkju. KÖGUR: Klippið 3 þræði ca 34 cm, þræðið þá í gegnum götin (í A.7), hnýtið einn LAUSAN hnút, þ.e.a.s. hnúturinn hangir ca 1 cm niður frá gati. Setjið 1 kögur á milli 2 gata. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1235
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.