Gerd Brodén skrifaði:
Garnåtgången stämmer inte. det går 1 extra nystan av nr 11 och 02
04.04.2016 - 10:23Hajduné Koba Ágnes skrifaði:
I think something is not correct in your pattern, in the row no. 4. and 6. After finishing the 6th row the squrare is curled. And on the photo of the square the 6th row is not visible. Please help me, because I love this poncho very much and would like to buy the same yarn.
04.03.2016 - 18:42DROPS Design svaraði:
Hi Hajdune, the pattern is correct. You have to complete all rows first and then the part you say curls will straighten out. Row 6 is not visible because it is covered in part by next row. Anyway we recomend to iron the garment slightly once finished.
09.03.2016 - 13:22
Hajduné Koba Ágnes skrifaði:
A 4. sor nagyon összehúzza a kört, a 6. sor pedig nem szerepel a lefotózott négyzeten. Nem lehet, hogy a 4. sor helyett a 6. sort kell horgolni és a 6. sort kihagyni. Köszönöm a választ.
04.03.2016 - 12:22
Lauren McRoberts skrifaði:
This is a beautiful poncho, especially in Bomull-Lin yarn! Thank you for the beautiful poncho designs this spring that are right on point with the fashion trends.
23.12.2015 - 17:32
Lauren McRoberts skrifaði:
I love this poncho and it will be fantastic in Bomull-Lin yarn! Thank you for the great selection of ponchos in crochet this spring! Right on point with current fashion trends!
23.12.2015 - 17:21
Midsummer Joy#midsummerjoyponcho |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað poncho með ferningum úr DROPS Bomull-Lin. Ein stærð.
DROPS 167-14 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITIR FERNINGUR: Uppfitjun + UMFERÐ 1: beige, UMFERÐ 2: ljós beige, UMFERÐ 3-6: beige, UMFERÐ 7: natur, UMFERÐ 8-10: ljós beige UMFERÐ 11-15: natur. LITIR KANTUR: UMFERÐ 1-3: ljós beige, UMFERÐ 4-5: natur. STUÐLAHÓPUR: Heklið 1 st í næstu ll/ll-boga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st um sömu ll/ll-boga, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LITASKIPTI: Til að fá fallega litaskiptingu er skipt um lit þegar bregða á þræðinum um heklunálina og draga á þráðinn í gegnum síðustu l í umferð, þá er dregið í gegn með nýja litnum í gegnum allar l á heklunálinni. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það eru heklaðir 4 stórir ferningar eins og útskýrt að neðan. Síðan eru ferningarnir heklaðir saman í poncho. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli og kantur neðst niðri á poncho. 1 FERNINGUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 5 með litnum beige og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. LESIÐ LITIR FERNINGUR og LITASKIPTI! Heklið síðan mynstur eftir A.1, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), * 1 st um hringinn, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum, skiptið yfir í litinn ljós beige og endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf (= 16 st með 1 ll á milli hverra). UMFERÐ 2: 1 kl um fyrstu ll, 3 ll (jafngilda 1 st), heklið 1 st um sömu ll, * heklið 2 ll, um næstu ll er heklaður STUÐLAHÓPUR – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum, heklið 2 ll, skiptið yfir í beige og endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf (= 16 st-hópar með 2 ll á milli hverra). UMFERÐ 3: 1 kl um fyrsta ll-bogann, 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st um sama ll-boga, 3 ll, 1 st-hópur um sama ll-boga, * um næsta ll-boga er heklaður 1 st-hópur + 3 ll + 1 st-hópur *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 4: 1 kl um fyrsta ll-bogann, 4 ll (jafngilda 1 fl + 3 ll), 1 fl um sama ll-boga, * um næsta ll-boga er heklað 1 fl + 3 ll + 1 fl *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 1 kl í 1. ll í byrjun umf. UMFERÐ 5: 1 kl í fyrsta ll-bogann, 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st + 4 ll + 1 st-hópur um sama ll-bogann, * um næsta ll-boga er heklaður 1 st-hópur + 4 ll + 1 st-hópur *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 6: 1 kl um fyrsta ll-bogann, 5 ll (jafngilda 1 fl + 4 ll), 1 fl um sama ll-boga, * um næsta ll-boga er heklað 1 fl + 4 ll + 1 fl *, endurtakið frá *-* 15 sinnum, skiptið yfir í litinn natur og endið á 1 kl í 1. ll í byrjun umf. UMFERÐ 7: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 9 ll (jafngildir 1 fl + 8 ll), * (1 fl um næsta ll-boga, 6 ll), endurtakið frá (-) alls 3 sinnum **, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **. Skiptið yfir í litinn ljós beige og heklið 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 8: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-boga (= horn), * 5 ll, 1 hst um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um sama ll-boga, 5 ll, 1 hst um næsta ll-boga, 5 ll **, um næsta ll-boga eru heklaðir 2 tbst + 3 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf. UMFERÐ 9: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-boga (= horn), * 1 ll, heklið síðan 7 st um hvern og einn af 4 næstu ll-bogum, 1 ll **, um næsta ll-boga eru heklaðir 2 tbst + 3 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf. UMFERÐ 10: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-boga (= horn), * (6 ll, 1 st í 4. St í fyrsta/næsta st-hóp), endurtakið frá (-) alls 4 sinnum, 6 ll **, um næsta ll-boga eru heklaðir 2 tbst + 3 ll + 2 tbst (= horn) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnu, en síðasta endurtekning endar eftir **, skiptið yfir í litinn natur og endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf. UMFERÐ 11: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst + 3 ll + 2 tbst í sama ll-boga (= horn), * 1 ll, síðan eru heklaðir 7 st um hvern og einn af næstu 5 ll-bogum, 1 ll **, um næsta ll-boga er heklað 2 tbst + 3 ll + 2 tbst (= horn) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf. UMFERÐ 12: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-bogann (= horn), * 1 ll, 1 tbst um fyrsta ll, (1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 tbst í næsta st), endurtakið frá (-) alls 17 sinnum, 1 ll, 1 tbst um ll, 1 ll **, um næsta ll-boga er heklað 2 tbst + 3 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf. UMFERÐ 13: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st + 3 ll + 2 st um sama ll-bogann (= horn), * 1 ll, síðan er heklaður 1 st um hverja ll og 1 st í hvern st fram að næsta horni (= 39 st á milli horna), 1 ll **, um ll-bogann er heklað 2 st + 3 ll + 2 st (= horn) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 14: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st + 3 ll + 2 st um sama ll-bogann (= horn), * 1 ll, 1 st um fyrstu ll, (1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st), endurtakið frá (-) alls 19 sinnum, 1 ll, 1 st um ll, 1 ll **, um næsta ll-boga er heklað 2 st + 3 ll + 2 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 15: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st + 3 ll + 2 st um sama ll-boga (= horn), * 1 ll, heklið síðan 1 st um hverja ll og 1 st í hvern st fram að næsta horni (= 43 st á milli horna), 1 ll **, um næsta ll-boga er heklað 2 st + 3 ll + 2 st (= horn) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Klippið frá og festið alla enda. Ferningurinn mælist ca 40 x 40 cm. ATH: Ef óskað er eftir að hafa poncho stærra er umf 14-15 endurtekin að óskaðri lengd. FRÁGANGUR: Leggið ferningana eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Leggið 2 ferninga ofan á hvorn annan með röngu að röngu og heklið þá saman með litnum ljós beige þannig: Heklið 1 fl um ll-bogann í horni á fyrsta ferning, 1 ll, 1 f um ll-bogann í horni á hinum ferningnum, * 2 ll, hoppið yfir 2 st á fyrsta ferningi, 1 fl í næsta st á fyrsta ferningi, 2 ll, hoppið yfir 2 st á seinni ferningi, 1 fl í næsta st á seinni ferningi *, endurtakið frá *-* fram að næsta horni, heklið 2 ll, 1 fl um ll-bogann í horninu á fyrsta ferningi, 1 ll, 1 fl um ll-bogann á seinni ferningi, klippið frá og festið enda. Endurtakið meðfram hinum hliðunum. HÁLSMÁL: Heklið kant í lokin í kringum hálsmál með litnum ljós beige með heklunál nr 5 þannig – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR: Heklið umf 2 í A.2, en fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan eru ll-bogar, heklið 1 st í hvern ll-boga með 1 ll á milli hverra. Heklið umf 3 í A.2, en fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan eru heklaðir miðju 3 st saman þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 l á heklunálinni), heklið næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. Klippið frá og festið enda. KANTUR NEÐST Á PONCHO: Heklið kant í lokin neðst niðri á poncho með heklunál nr 5 þannig – LESIÐ LITIR KANTUR og HEKLLEIÐBEININGAR: Byrjið með litnum ljós beige og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.2, þ.e.a.s. heklið þannig: ATH: Til að kanturinn haldi áfram í fallegt horn eins og á ferningunum er mikilvægt að útaukningin við miðju að framan og fyrir miðju að aftan haldi áfram eins og áður, þ.e.a.s. um miðju ll-bogann fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan er heklað 2 ll + 2 st + 3 ll + 2 st + 2 ll, í hverri umf alveg eins og á sjálfum ferningunum. UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern st í kringum allt poncho, en þar sem 2 ferningarnir mætast eru ll-bogar, heklið 2 st um hvern ll-boga. Að auki heldur hornið við miðju að framan og við miðju að aftan eins og útskýrt er frá að ofan. UMFERÐ 2: * 1 st í fyrsta/næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en haldið áfram með hornið við miðju að framan og fyrir miðju að aftan. UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hvern st og 1 st um hverja ll, en haldið áfram með horn við miðju að framan og fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir í natur. UMFERÐ 4: 1 st, 3 ll, 1 kl í fyrstu af 3 ll, heklið 2 st í sömu l (= 1 st-hópur með picot), * 1 ll, hoppið yfir 3 st, í næsta st er heklaður 1 st, 3 ll, 1 kl í fyrstu af 3 ll, heklið 2 st í sama st*, endurtakið frá *-* umf hringinn, en passið uppá að þetta passi fallega við hornið við miðju að framan og fyrir miðju að aftan. UMFERÐ 5: * 6 ll, hoppið yfir st-hópinn, 1 fl um næstu ll*, endurtakið frá *-* umf hringinn. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midsummerjoyponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.