DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Martine

Heklað poncho úr DROPS Cotton Light með ferningum og gatamynstri. Heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 167-21
DROPS Design: Mynstur nr cl-060
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
400-400-450-500 g nr 21, ljós beige
150-150-150-150 g nr 01, natur

ATH: Ef ponchoið er heklað með einum lit þá þarf 500-550-600-650 g Cotton Light.

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.
Fyrsta umf í A.1 er hekluð í hring, síðan er endurtekið A.1 og A.3 alls 4 sinnum.
Mynstur A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar.
Mynstur A.5 sýnir hvernig ferningarnir eru settir saman í lokin.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með st byrja á 3 ll og enda á 1 kl í 3. Ll.

RENDUR:
Heklið 0-4-4-4 v með litnum beige, heklið síðan * 2 umf með litnum natur, heklið 4 umf með litnum beige *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum.

ÚTAUKNING:
Í 1. umf í A.4 (þ.e.a.s. með st og ll) aukið út þannig: Heklið 1 ll, um ll-bogann á horni er heklað þannig: 2 st um ll-bogann, 3 ll, 2 st um sama ll-boga.
Í 2. umf í A.4 (þ.e.a.s. með st) er aukið út þannig: Heklið 1 st um ll, um ll-bogann á horni er heklað þannig: 2 st um ll-bogann, 3 ll, 2 st um sama ll-boga.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað frá hálsmáli og niður. Fyrst eru ferningarnir heklaðir.

FERNINGUR:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós beige og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Hekli A.1. Mynstur A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Þegar fyrsta umf A.1 hefur verið hekluð, endurtakið A.1 alls 4 sinnum hringinn. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 16 ll-bogar og 4 horn.

Heklið A.3 yfir A.1, þ.e.a.s. A.3 er endurtekið alls 4 sinnum hringinn (sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð). ATH: Fyrsta umf í A.3 er ekki hekluð, hún sýnir bara hvernig næsta umf er hekluð um l. Teikning A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Þegar A.3 hefur verið hekluð 1 sinni á hæðina eru 80-80-100-120 st og 4 horn. Klippið frá og festið enda. Ferningurinn mælist ca 15-15-17-19 x 15-15-17-19 cm.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið 8 ferninga.

FRÁGANGUR:
Saumið ferningana saman kant í kant (sjá A.5), þ.e.a.s. saumið í ysta lykkjubogann. Núna myndast efri hluti á poncho. Heklið nú áfram hringinn frá neðri kanti á ferningum þannig:

FRÁ HEKLUÐU FERNINGUNUM OG NIÐUR:
UMFERÐ 1: Byrjið í hlið á ferningi (sjá A.5), mitt í 1. ferningi (þ.e.a.s. 10-10-12-15 st á undan horni). Heklið 3 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 st í hvern af fyrstu 10-10-12-15 st, * yfir 2 samansaumuðu hornin er heklað þannig: 1 st í hvorn af æstu 2 st, 2 st um hvort af næstu 2 hornum, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, heklið síðan 1 st í hvern st að næsta samansaumaða horni (= yfir næstu 20-20-25-30 st), endurtakið frá *-* yfir næstu 2 samansaumuðu horn, 1 st í hvern af næstu 20-20-25-30 st, yfir næsta horn er aukið út þannig (sjá A.5): Heklið 1 st um ll, um ll-bogann á horni er heklað þannig: 2 st um ll-bogann, 3 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st um næstu ll. Heklið 1 st í hvern st og *-* yfir næstu 8 samansaumuðu horn og næstu 100-100-125-150 st (þ.e.a.s. 20-20-25-30 st á milli 2 samansaumuðu hornum). Um næsta horn er heklað þannig: Heklið 1 st um ll, um ll-bogann á horni er heklað þannig: 2 st um ll-bogann, 3 ll, 2 st um sama ll-boga. Heklið 1 st í hvern st og *-* út umf, endið á 1 kl í 3. ll = 276-276-326-376 st.

UMFERÐ 2: Heklið með litnum natur – LESIÐ RENDUR! Heklið A.4 fram þar til 3 st eru eftir á undan ll-boga í horni, passið uppá að endað sé með 1 st í síðasta st, heklið ÚTAUKNING – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið A.4 fram að næsta horni, heklið útaukningu, heklið A.4 út umf. Í hverri umf er aukið út um 8 st, þ.e.a.s. aukið út um 2 st í hvorri hlið við miðju að framan/aftan.

Endurtakið rendur og A.4 til loka. Þegar rendur hafa verið heklaðar mælist stykkið arb ca 36-40-42-44 cm frá hálsmáli.

KANTUR AÐ NEÐAN:
UMFERÐ 1: Heklið með litnum ljós beige. Heklið 1 ll, heklið 1 fl í fyrsta st, heklið * 5 ll, hoppið yfir 4 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* miðja framan/aftan, ** passið uppá að síðasta fl sé hekluð um ll-bogann miðja framan/aftan, 5 ll, 1 fl um sama ll-boga **, endurtakið frá *-* miðja framan/aftan, endurtakið frá **-** um ll-bogann miðja framan/aftan, endurtakið frá *-* út umf, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.

UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, 1 kl um fyrsta ll-boga, 2 ll (= 1 hst), heklið * 4 ll, 1 hst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* miðja framan/aftan, ** 4 ll, um ll-boga miðja framan/aftan er heklaður 1 hst + 4 ll + 1 hst **, endurtakið frá *-* miðja framan/aftan, endurtakið frá **-** um ll-bogann miðja framan/aftan, endurtakið frá *-* út umf, endið á 1 kl í 2. ll (= hst) í byrjun umf.

UMFEÐR 3: Heklið 3 ll (= 1 st), heklið 5 st um hvern ll-boga, um ll-bogann miðja framan/aftan er heklað: 1 ll, 2 st um ll-bogann, 3 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 ll, endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

HÁLSMÁL:
Byrjið við miðju að framan – sjá mynsturteikningu og heklið með litnum ljós beige með heklunál nr 4. Heklið nú frá réttu þannig:

UMFERÐ 1: Heklið 1 fl um ll-bogann í miðju (horn að miðju ferningi), ** heklið 5 ll, hoppið yfir hornið (þ.e.a.s. 3 ll + 2 st), 1 fl um ll, * 5 ll, hoppið yfir 5 st, 1 fl á milli 2 st *, endurtakið frá *-* 2-2-3-4 sinnum til viðbótar, 5 ll, hoppið yfir 5 st, 1 fl um ll, 5 ll, 1 fl í sauminn á milli ferninga **, endurtakið frá **-** í kringum allt hálsmálið, endið á 1 kl í fyrstu fl.

UMFERÐ 2: Heklið 2 ll, 1 kl í fyrsta ll-bogann, 2 ll (= 1 hst), * 4 ll, 1 hst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir fyrir miðju að aftan, heklið 1 hst um 2 næstu ll-boga, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, heklið 1 hst um síðasta ll-boga, endið á 1 kl í 2. ll (= 1 hst) í byrjun umf.

UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (= 1 st), heklið 2 st um fyrsta ll-bogann, heklið 5 st um hvern ll-boga þar til eftir er 1 ll-bogi á undan miðju að aftan, heklið 3 st um hvern og einn af 2 næstu ll-bogum, heklið 5 st um hvern ll-boga þar til 1 ll-bogi er eftir, heklið 3 st um síðasta ll-boga, endið á 1 kl í fyrsta st. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.04.2016
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.1 og A.2
Yfirfarið á vefsvæði: 07.09.2016
FERNINGUR:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með ljós beige...
Yfirfarið á vefsvæði: 24.10.2016
Nýtt mynstur A.4

Mynstur

symbols = heklið 4 ll og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll (sjá puntk í hring), umf byrjar og endar hér
symbols = ll
symbols = fl um ll-boga
symbols = umf byrjar á 3 ll, endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf
symbols = st um ll-boga
symbols = st í st
symbols = St-hópur með 2 st: Heklið 1 st um næstu ll/ll-boga, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st um sömu ll/ll-boga, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni.
symbols = horn: heklið um ll-bogann þannig: 2 st, 3 ll, 2 st
symbols = heklstefna
symbols = kl
symbols = þessi umf er útskýrð í uppskrift
symbols = byrjið á að hekla frá ferningi og niður hér
symbols = miðja framan/aftan - hér er aukið út - sjá ÚTAUKNING
symbols = byrjið á að hekla hálsmál hér
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet Martine

May, Argentina

Rustic Grey Sweet Martine Poncho

Kimberly, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Karen Lyons wrote:

Sweet Martine Poncho pattern says that the pattern has been corrected... I can not find a version that does not contain that notation/link.... Is the pattern on the website the "corrected version" ? Thank you

17.03.2023 - 02:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lyons, yes the correction applies only if you printed the pattern before the corrections. Happy crocheting!

17.03.2023 - 08:54

country flag Ewa Mikander wrote:

Jag har virkat i 45 år och aldrig stött på ett så obegripligt mönster. Varför krångla till det med diagram?

20.02.2022 - 08:14

country flag Sirpa Kankainen wrote:

Mikä on yhden neliön koko (sivun pituus) esim. koossa XXL?

28.10.2021 - 16:45

country flag Coco wrote:

Bonsoir je suis entrain de faire se poncho et jaurais besoin dun conseil, au tour 2 en naturel, je vais commencer A4 , 1B,1Ml 1B, est ce quil faut sauter une maille pour la maille en lair, jai du mal à comprendre. Merci de votre réponse. Bonne soirée. Coco

07.06.2021 - 21:09

DROPS Design answered:

Bonjour Coco, à la fin du tour 1, crochetez la maille coulée en naturel pour un joli changement de couleur, puis crochetez 3 mailles en l'air pour commencer (cf INFO CROCHET) puis crochetez A.4 (= 1 maille en l'air, sautez 1 bride, 1 bride dans la bride suivante) répétez de (à) et crochetez de **à** au milieu devant/dos. Bon crochet!

08.06.2021 - 08:45

country flag Valeria wrote:

Salve ho provato ad assistere il video del poncho bege ma non c'è volume,cosa devo fare per vedere il video integrale

19.03.2021 - 15:50

DROPS Design answered:

Buonasera Valeria, i nostri video non hanno audio perchè vengono visti da persone di tutti i paesi. Sotto ogni video può trovare una spiegazione nella lingua che preferisce. Buon lavoro!

19.03.2021 - 23:10

country flag Cheryl Wentx wrote:

I find this pattern impossible to follow-love the poncho + would definitely make it if a written,understandable pattern was available

10.10.2020 - 18:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wentx, The DROPS patterns are knitted and crocheted by thousands and thousands of people  around the world. We understand however that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and how to read the diagrams in our patterns. Give them a try!

12.10.2020 - 09:15

country flag Conchi Hernández wrote:

Good afternoon, I would like to ask if there is any video where you can see the completion of the complete work. I'm not an expert and I have a hard time following the patterns. I would greatly appreciate your help because I am very interested in developing this project that you have called Pretty Boho Poncho. Sorry if the message is not entirely correct, my level of English is very basic. Cheers, Conchi Hernández

01.05.2020 - 18:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hernández, you will find a video showing how to crochet a square to this poncho and this lesson shows how to read crochet diagrams. For any further individual assistance, you are welcome to contact your DROPS store, even per mail or telephone. Happy crocheting!

04.05.2020 - 11:01

country flag Louise Ebbeck wrote:

On the first round after the squares you state to increase on every corner but then from round 2, only increase on the front and back tips.ok. so what do I do on the 2 sides? Ive undone my work twice already because the sides curl and pucker without any increase. I have been crocheting for years but these instructions are confusing. I know how to do the increases..I just want specific instructions on how to go around the other two side points.

17.04.2020 - 01:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ebbeck, follow the description of ROUND 1, you should incerase only in the squares with a round in A.5. After this round has been worked, simply work as shown in A.4 working the increase in the middle tip on front and on back piece. Happy crocheting!

17.04.2020 - 09:04

country flag Maria Mroz wrote:

Hello, What kind of crochet hook size should I use in USA size? I don't have 4mm. Also is there a whole video on how to make this? I am having trouble following the pattern. Thank you. Maria

18.02.2020 - 19:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mroz, edit the language of the pattern clicking on the scroll down menu under picture and choose "English (US/in) to get the pattern in US-English including US-crochet terminology. you will find here how to read crochet diagrams and how to crochet a square here. Happy crocheting!

19.02.2020 - 09:03

country flag Marilyn Boyle wrote:

Disregard my question. I've discovered that I connected the squares incorrectly, have corrected so that there are only 2 points, not 4. Would be helpful to have it specified in the pattern how to do it correctly, instead of just 'sew squares together'.

06.08.2019 - 22:18