Josiane skrifaði:
Très beau modèle ... j'espère pouvoir le tricoter !
08.01.2016 - 20:34
Uta skrifaði:
Gefällt mir sehr gut. Auch die Passform scheint gut zu sein. Toll und super für den Sommer.
24.12.2015 - 01:42
Nicole skrifaði:
Tout en finesse parfait pour les soirées d'été 🌝✨ c'est mon préféré
17.12.2015 - 21:28
Lemon Cross#lemoncrossbolero |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS Muskat prjónaðu eins og ferningur með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 170-5 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað á þessari aðferð: Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggið þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér) og dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn er nú lagður aftan við og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóni, * stingið prjóninum inn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn er lagður aftan frá og að þér), dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjóni (þ.e.a.s. síðustu l sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 12 l eru á prjóni. Deilið l á 4 st sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í þráðar endann þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið l á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat – útauknar l eru prjónaðar br (séð frá réttu). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið er prjónað eins og ferningur frá miðju að aftan. Byrjið á sokkaprjónum og skiptið yfir á hringprjóna eftir þörfum. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna út frá tveimur af hliðunum á ferningnum. Síðan er kantur prjónaður í kringum op á jakkanum. BAKSTYKKI: Byrjið á GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan og Muskat = 12 l skipt á 4 sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. endurtakið A.1 alls 4 sinnum í umf (1 mynstureining á hverjum prjóni) og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 236 l í umf (þ.e.a.s. 59 l í hverri endurtekningu). Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið A.2A (= 29 l), prjónið A.2C (= 30 l) *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2A/A.2C hefur verið prjónað 1 sinni á hæð eru 268 l í umf (þ.e.a.s. 67 l í hverri endurtekningu). Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið A.2B (= 30 l), prjónið A.3 (= 7 l), prjónið A.2D (= 30 l) *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur þar til 300-316-332-356-372-388 l í umf (þ.e.a.s. 75-79-83-89-93-97 l í hverri endurtekningu) – ATH: A.3 kemur til með stækka á milli A.2B/A.2D Haldið nú eftir l meðfram hlið 1 á prjóni – sjá mynsturteikningu (= vinstri ermi). Setjið l meðfram hlið 2 á þráð (= neðst á bakstykki). Setjið l meðfram hlið 3 á þráð (= hægri ermi). Setjið l meðfram hlið 4 á þráð (= efst á bakstykki við hnakka). VINSTRI ERMI: = 75-79-83-89-93-97 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN UM ERMI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með mynstur fram og til baka á hringprjóna nr 3,5 eftir mynstri A.2B/A.2D og A.3 eins og áður með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan (ör í A.3 sýnir hvernig mynstur heldur áfram eftir stærðum í A.3). ATH: Útaukning í hvorri hlið er nú lokið (uppslátturinn yst í A.2B/A.2D er gerður aðeins lengri – þ.e.a.s. lykkjufjöldinn kemur til með að vera sá sami í hverri umferð. A.3 kemur til með að halda áfram að stækka og þess vegna verður A.2B/A.2D alltaf minna og minna í hvorri hlið). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm fækkar um1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í 6.-6.-4-.4.-4.-4. hverri umf alls 9-10-11-13-14-15 sinnum á hvorri hlið = 57-59-61-63-65-67 l eftir á prjóni – ATH: Þegar ekki eru fleiri l eftir í A.2B/A.2D í hvorri hlið er prjónað A.3 yfir allar l með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar l er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 26 cm frá prjónamerki (eða að óskaðri lengd), skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka (1. umf = rétta) og fellið síðan laust af með sl frá réttu. Ermin mælist ca 27 cm frá prjónamerki. HÆGRI ERMI: Setjið til baka þær 75-79-83-89-93-97 l af þræði meðfram hlið 3 á hringprjóna nr 3,5 og prjónið fram og til baka á hringprjóna á sama hátt og vinstri ermi. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman á lengd þannig að l af þráðum 2 og 4 á bakstykki (og prjónamerki í hvorri ermi) liggi á móti hvort öðru. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju – byrjið neðst niðri á hvorri ermi og saumið upp að prjónamerki. KANTUR: Setjið l af þráðum 2 og 4 á hringprjóna nr 3 = 150-158-166-178-186-194 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 50-52-54-62-64-66 l jafnt yfir (aukið út á eftir ca 3. hverja l) = 200-210-220-240-250-260 l á prjóni. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynstri A.4. Þegar kanturinn mælist 2 cm er aukið út um 1 á eftir hverri mynstureiningu – LESIÐ ÚTAUKNING = 240-252-264-288-300-312 l. Endurtakið útaukningu þegar kanturinn mælist 4 og 6 cm = 320-336-352-384-400-416 l (nú eru 3 l br á milli hverra mynstureininga alla leið hringinn). Þegar kanturinn mælist 7 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lemoncrossbolero eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.