Petig skrifaði:
"Maska av för ärmhål..." inte bra, blir klumpigt! Jfr 166-3
11.08.2017 - 10:31
Rian skrifaði:
Ik brei de pas, herhaal A1. Maar dan heb ik nog niet 22 keer geminderd voor de raglan (nl nog maar 16 keer geminderd) Hoe brei ik verder? Nog een keer A1 herhalen?
07.06.2017 - 21:00DROPS Design svaraði:
Hoi Rian, Er staat bij de pas 'LET OP: herhaal A.1 in de hoogte.' Je moet A.1 dus 2 keer breien in totaal. Dit is ook te zien in de afbeelding. Waarschijnlijk kom je dan wel op het aantal minderingen. Veel breiplezier!
09.06.2017 - 08:43
Emilie skrifaði:
Bonjour, je voudrais savoir si il n'y a pas un problème avec les rangs raccourcis, car quand je réalise cette partie, l'ensemble des rangs ne paraît pas symétrique ?
15.11.2016 - 19:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Émilie, les rangs raccourcis de la ré-hausse encolure dos vont être symétriques: en commençant au milieu dos, tricotez 8-13 m tournez et tricotez 16-26 m (soit les 8-13 premières m et les 8-13 m suivantes), tournez et tricotez 24-39 m (= les 16-26 m précédentes + 8-13 m), tournez et tricotez 32-52 m (= les 24-39 m précédentes + 8-13 m) etc.. Bon tricot!
16.11.2016 - 09:07
Kathryn Briggs skrifaði:
Yolk question when sleeves are slipped onto body of sweater you have 304 stitches with 4 markers between sleeves and body. Decreases are done every alternate round twenty times. 4×20=80sts. 304-80=224 pattern says you have 144 sys left?
19.10.2016 - 22:02DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Briggs, dec for raglan are done on each side of the marker (= before marker + after marker), ie you will dec 8 sts 20 times in total = 160 sts dec. 304-160=144 sts. Happy knitting!
20.10.2016 - 12:03
Slávka skrifaði:
Zajímavé, povedené
18.01.2016 - 19:10
Vera Tagseth skrifaði:
Nydelig genser. Gleder meg til mønsteret kommer!
11.01.2016 - 14:02
Anita skrifaði:
Sehr schön mit der Rundpasse , gute Farbkombination, gefällt mir .
01.01.2016 - 13:45
Sabine skrifaði:
Sehr hübscher Pulli. Würde ich gern machen. Belle ist auch ein tolles, weiches Garn! Das Modell ist nicht so typisch wie sonst immer bei Drops, gefällt mir sehr gut!
14.12.2015 - 11:34
Catharina Duden skrifaði:
Sehr schön und tragbar dieses Modell
10.12.2015 - 15:00
Freja#frejasweater |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle með röndum, gatamynstri, ¾ ermum og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 169-30 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: 1 umf br með litnum zink, 1 umf sl með, 6-6-6-6½-6½-6½ cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum malva, 1 umf sl með, 6-6-6-6½-6½-6½ cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum fífill, 1 umf sl með litnum fífill, 6-6-6-6½-6½-6½ cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum natur, 1 umf br með litnum natur. RENDUR Á ERMI: 1 umf br með litnum zink, 1 umf sl með litnum zink, 4 cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum malva, 1 umf sl með litnum malva, 4 cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum fífill, 1 umf sl með litnum fífill, 4 cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum natur, 1 umf sl með litnum natur. MYNSTU: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi): Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt í þessum l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat (= 2 l fleiri). LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 126 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18 l) = 7. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru 6. og 7. l prjónaðar slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 160-176-192-216-240-264 l á hringprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 80-88-96-108-120-132 l. Aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 8-8-8-9-9-9 cm millibili alls 4 sinnum = 176-192-208-232-256-280 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12-10-11-12 cm prjónið RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar rendur hafa verið prjónaðar er haldið áfram með litnum ljós beige og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm er næsta umf prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg, prjónið 82-90-96-108-118-130 l (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið 82-90-96-108-118-130 l (= framstykki) og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 54-56-58-60-62-64 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 6-5-4-3½-3-2½ cm millibili alls 5-6-7-8-8-9 sinnum = 64-68-72-76-78-82 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-12-11-10-9-8 cm prjónið RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka er haldið áfram með litnum ljós beige og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 33-32-31-31-30-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 l, prjónið næstu 58-62-64-68-68-72 l og fellið af þær 3-3-4-4-5-5 l sem eftir eru. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjóna nr 4 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 280-304-320-352-372-404 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Prjónið mynstur í hring eftir A.1 – ATH: A.1 er nú endurtekið. JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 18-20-21-22-23-24 sinnum = 136-144-152-176-188-212 l eftir á prjóni. Klippið frá. UPPHÆKKUN AFTAN VIÐ HNAKKA: Skiptið yfir á hringprjóna nr 3, byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 10 l jafnt yfir = 126-134-142-166-178-202 l. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka þannig (1. umf = rétta): Prjónið 8-9-10-11-12-13 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16-18-20-22-24-26 l sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 24-27-30-33-36-39 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 32-36-40-44-48-52 l sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 40-45-50-55-60-65 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 48-54-60-66-72-78 l sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka að miðju að aftan. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! HÁLSMÁL: Haldið áfram í garðaprjóni hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki (passið uppá að næsta umf sé umf frá réttu), fækkið um 18-18-17-16-16-16 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 108-116-125-150-162-186 l. Þegar kantur í garðaprjóni mælist 4 cm í öllum stærðum er fækkað um 24-24-23-23-23-23 l jafnt yfir = 84-92-102-127-139-163 l. Endurtakið úrtöku einu sinni til viðbótar í stærð XL + XXL + XXXL þegar kantur í garðaprjóni mælist 5 cm, fækkið nú um 23-25-39 l jafnt yfir. Eftir alla úrtöku eru 84-92-102-104-114-124 l eftir á prjóni. Fellið laust af þegar kantur í garðaprjóni mælist 5-5-5-6-6-6 cm, peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frejasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.