Anja Fix-Boerdijk skrifaði:
Zowel vest als deze trui vind ik prachtig; ook de kleur. Zou beide patronen willen hebben.
28.05.2015 - 12:36
Silvia skrifaði:
Die Farbe und die Kragenkombination zusammen mit der Mütze finde ich einfach toll. Auch das es gehäkelt wird. Da kommt man so richtig schnell voran.
27.05.2015 - 16:44
Anne-griet Leupen skrifaði:
Mooie trui, ook leuk met zo'n colsjaal eraan vast. Lekker warm!
27.05.2015 - 15:41
Lakeside#lakesidesweater |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Air með stuðlum, gatamynstri og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.
DROPS 164-31 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll í byrjun umf. Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. HEKLIÐ 2 ST SAMAN (í st): Heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í sama st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er heklað í gegnum alla uppslættina á heklunálinni. HEKLIÐ 2 ST SAMAN (um ll): Heklið 1 st um miðju ll í st-hópnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er heklað í gegnum alla uppslættina á heklunálinni. ST-HÓPUR: Heklið einn st-hóp um ll-boga þannig: Heklið * 1 st, 1 ll *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar um sama ll-boga, 1 st um sama ll-boga. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í 1 fl/st. ÚRTAKA: Fellið af 1 st í byrjun og lok umf þannig: Heklið 1 st (= 3 ll), * heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* þegar 3 st eru eftir í umf = 1 l færri hvoru megin við prjónamerki. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er í hring með byrjun umf fyrir miðju að aftan. BERUSTYKKI: Heklið 66-69-75-82-84-90 lausar ll með heklunál nr 6 með Air og tengið saman í hring með 1 kl. Heklið fyrstu umf þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fl í hverja af fyrstu 1-4-2-1-3-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 7 ll *, endurtakið frá *-* 7-7-8-9-9-10 sinnum til viðbótar = 58-61-66-72-74-79 fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hverja fl, JAFNFRAMT er aukið út um 6-8-8-9-12-23 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 64-69-74-81-86-102 st. Setjið nú 8 prjónamerki í stykkið fyrir útaukningu fyrir laskalínu án þess að hekla l. Setjið 4 prjónamerki í hvora hlið frá byrjun umf þannig að það speglist frá miðju að aftan: Setjið eitt prjónamerki eftir 10-10-10-11-12-15 st, setjið næsta prjónamerki eftir 2 st, setjið síðan næsta prjónamerki eftir 8-10-12-14-14-17 st og að lokum er síðasta prjónamerkið sett eftir 2 st. Nú eru 20-21-22-23-26-30 st á milli 2 miðju prjónamerkja við miðju framan á peysu. Haldið nú áfram með 1 st í hvern st, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st hægra megin við hvert af 8 prjónamerkjum. Aukið síðan út til skiptis hægra og vinstra megin við hvert prjónamerki. Endurtakið útaukningu í hverri umf 9-9-11-12-13-16 sinnum til viðbótar og í annarri hverri umf 2-3-2-2-2-0 sinnum = 160-173-186-201-214-238 st í umf. Stykkið mælist ca 20-23-23-24-26-27 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í næstu umf er heklað þannig: Heklið 21-23-25-28-30-34 st (= hálft bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 38-40-42-45-47-50 st frá fyrri umf (= ermi), 42-47-52-55-60-70 st (= framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 38-40-42-45-47-50 st frá fyrri umf (= ermi), 21-23-25-27-30-34 st (= hálft bakstykki). Setjið eitt prjónamerki, héðan er nú mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 100-109-118-127-136-154 st á fram- og bakstykki. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið 1 umf með st í hvern st/ll. Heklið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig: ATH: Heklið frá 1. umf í A.1-A.2. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= A.1) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan A.2 þannig: * Heklið 2 ST SAMAN (í st) – sjá útskýringu að ofan, 5 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, 5 ll, hoppið yfir 2 st *, endurtakið *-* 10-11-12-13-14-16 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í 3. ll í umf (= A.1). UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, * heklið 1 fl í 2 st sem var heklaður saman, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, heklið 1 ST-HÓPUR – sjá útskýringu að ofan, um næsta ll-boga, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-14-16 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í 1. ll í umf. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, * 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, heklið 2 ST SAMAN (um ll) – sjá útskýringu að ofan, 5 ll, 1 fl um næstu ll á eftir st-hóp, 1 ll *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-14-16 til viðbótar. Endið á 1 kl í 1. ll í umf. UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, heklið (1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st) um fyrsta ll-bogann, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl í 2 st sem heklaðir voru saman, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, * (1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st) um næsta ll-boga, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl í 2 st sem heklaðir voru saman, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* 9-10-11-12-13-15 sinnum til viðbótar, (1 st, 1 ll, 1 st) um síðasta ll-bogann. Endið á 1 kl í 3. ll í umf. UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, * heklið 2 ST SAMAN (um ll), 5 ll, heklið 1 fl um ll-bogann á eftir st-hóp, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-14-16 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í 3. ll í umf. Haldið svona áfram og endurtakið A.X (= 2.-5. umf) þar til stykkið mælist ca 32 cm í allar stærðir – stillið af að endað er á eftir UMFERÐ 2 eða 4 í A.1-A.2. Stykkið mælist alls 56-60-60-62-64-66 cm. ERMI: Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Setjið eitt prjónamerki á milli 8 ll sem hekluð var undir ermi. Prjónamerki fylgir með í stykkinu til loka. Festið þráðinn með 1 kl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Haldið áfram með 1 st í hverja af 3 næstu ll, 1 st í hvern af st fyrir ermi og síðan 1 st í þær 4 ll sem eftir eru undir ermi = 46-48-50-53-55-58 st – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið síðan áfram með 1 st í hvern st, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 3.-2.-2.-2.-2.-1. hverri umf 8-9-10-10-11-12 sinnum til viðbótar = 28-28-28-31-31-32 st eftir. Þegar stykkið mælist 46-44-44-43-42-40 cm er ermin tilbúin. Heklið hina ermina á sama hátt. --------------------------------------------------------- Húfa og kragi: Sjá DROPS 164-32. ---------------------------------------------------------- |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lakesidesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.