Heike Rohn skrifaði:
Guten Tag, was ist bitte der Unterschied zwischen Teil 1 und Teil 2? Kann ich einfach zwei Teile 1 stricken? Danke!
09.10.2017 - 20:29DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rohn, die Diagramme sind nicht in den gleichen Order unter beiden Teilen. Viel Spaß beim stricken!
10.10.2017 - 09:31
Wilma Brouwer skrifaði:
Ben bezig met 166-45, klopt het dat in patroon A4, dat ik de omslagen en overhalingen/ samenbreien op de verkeerde kant komt? Er zijn meerdere patroontjes dat ik op de verkeerde kant dit moet doen.
04.12.2015 - 13:53DROPS Design svaraði:
Hoi Wilma. De patronen A.1, 2 en 3 eindigen met een naald op de goede kant. Daarom begint A.4 ook met een naald op de verkeerde kant en de omslagen/samenbreien komen dan op de goede kant.
07.12.2015 - 13:30
Sandrine GERARD skrifaði:
Bonjour, j'aimerais réaliser cette étole mais j'ai l'impression que les diagrammes A5 et A6 comportent des erreurs. En effet les rangs 19 et 25 sont décalés et terminent pas 1 jeté, un surjet double et un jeté. Merci pour votre réponse.
27.10.2015 - 13:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gérard, les diagrammes A.5 et A.6 sont justes: la dernière m de A.5 se tricote avec les 2 premières m de A.6, la dernière m de A.6 se tricote avec les 2 premières m du A.6 suivant et la dernière fois avec les 2 premières m de A.7 - et ce, sur ces 2 rangs. Bon tricot!
27.10.2015 - 15:03
Barb Barraclough skrifaði:
Lovely shawl reminds me of Estonian lace without being so 'busy' in patterns.
26.06.2015 - 16:57
Rosa skrifaði:
Hola, falta el diagrama, no se ve. Un saludo.
26.06.2015 - 13:28
Centina skrifaði:
Leuk patroon om er een topje van te maken!
15.06.2015 - 12:17
E. M. skrifaði:
Wat een juweeltje
08.06.2015 - 23:10
E. M. skrifaði:
Zeer mooi kantwerk
08.06.2015 - 23:09
Victorian Charm#victoriancharmscarf |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Lace eða DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri.
DROPS 166-45 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.12. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. FORMUN: Ef nota á annað garn en Lace frá garnhópi A er ekki nauðsynlegt að strekkja það út í rétta stærð, heldur að leggja sjalið og draga það út í rétt form. Láta það þorna. Endurtaka síðan í hvert skipti sem sjalið er þvegið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin með lykkjuspori eða venjulegu spori. STYKKI 1: Fitjið upp 115 l á hringprjóna nr 3 með Lace eða BabyAlpaca Silk. Prjónið 2 umf slétt (1. umf = rétta). Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 3 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir 18 l, A.2 er endurtekið áfram þar til 22 l eru eftir, A.3 yfir 19 l og 3 kantlykkjur með garðaprjóni. Prjónið mynstur A.1-A.3 1 sinni á hæðina ) 79 l á prjóni. Prjónið mynstur A.4 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri (í umf með einungis uppslætti og 2 l slétt saman er síðasta l prjónuð slétt) og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.4 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.5-A.7 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.5 yfir 12 l, A.6 er endurtekið þar til 16 l eru eftir, A.7 yfir 13 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.5-A.7 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.4 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.4 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.8 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.8 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.8 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.9 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.9 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.9 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.10 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.10 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.10 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.11 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.11 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.11 þar til stykkið mælist ca 76 cm létt út strekkt (stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina). Prjónið mynstur A.12 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.12 er endurekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri (í umf einungis með uppslætti og 2 l slétt saman er síðasta l prjónuð sl) og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.12 1 sinni á hæðina og setjið l á þráð eða fellið af – LESIÐ FRÁGANGUR. STYKKI 2: Fitjið upp 115 l á prjóna nr 3 með Lace eða Baby Alpaca Silk. Prjónið 2 umf sl (1. umf = rétta). Prjónið mynstur A.1-A.3: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 18 l, A.2 er endurtekið áfram þar til 22 l eru eftir, A.3 yfir 19 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.1-A.3 1 sinni á hæðina = 79 l á prjóni. Prjónið mynstur A.4 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.4 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.8 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.8 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.8 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.9 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.9 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.9 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.10 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.10 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.10 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.5-A.7 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.5 er endurtekið yfir 12 l, A.6 er endurtekið þar til 16 l eru eftir, A.7 yfir 13 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.5-A.7 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.4 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri (í umf með einungis uppslætti og 2 l slétt saman er síðasta l prjónuð sl) og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.4 1 sinni á hæðina. Prjónið mynstur A.11 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjón, A.11 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og fyrsta l í mynstri og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.11 þar til stykkið mælist ca 76 cm létt út strekkt (stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina og þar til jafnmargar endurtekningar af A.11 eins og í stykki 1). Prjónið mynstur A.12 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.12 er endurtekið þar til 4 l eru eftir, 1 l eins og í fyrstu l í mynstri (í umf með einungis uppslætti og 2 l slétt saman er síðasta l prjónuð sl) og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.12 1 sinni á hæðina. Setjið l á þráð eða fellið af. FRÁGANGUR: Notið lykkjuspor og saumið STYKKI 1 við STYKKI 2. Ef l eru felldar af þá eru stykkin saumuð saman affellingarkantur við affellingarkant. STREKKING: Leggið sjalið í volgt vant þar til það er orðið gegnblautt. Pressið varlega vatnið úr – ekki vinda, rúllið síðan sjalinu inn í handklæði og pressið vatnið út – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Ef BabyAlpaca Silk er notað – LESIÐ FORMUN! Leggið Sjalið á mottu eða á dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð og notið nálar til að festa það með. Látið þorna. Endurtakið í hvert skipti sem sjalið er þvegið. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #victoriancharmscarf eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-45
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.