Stefanie skrifaði:
Nach A3 sind erst 4x 4 Maschen des Raglan abgenommen. Wie geht es dann weiter?Glatt rechts oder A3 nochmals stricken bis 8x4 Maschen Rglan abgesteckt wurden bei Größe L?
14.09.2018 - 09:35DROPS Design svaraði:
Liebe Stefanie, ja stimmt, A.3 wiederholen bis Sie die 8 Abnahmen gestrickt sind . Viel Spaß beim stricken!
14.09.2018 - 10:53
Birgitta Illyés skrifaði:
Hej! Jag undrar om jag ska sticka A3 fler gånger än vad som visas i mönstret.
14.07.2018 - 13:33DROPS Design svaraði:
Hei Birgitta. Du skal fortsette med A.3 på samme måte som vist i diagrammet til du er ferdig med raglanfellingen. Etter at fellingen til raglan er ferdig, skal ikke A.3 strikkes videre, men det strikkes A.4 over alle maskene. God fornøyelse
18.07.2018 - 09:26
Johanne skrifaði:
Hei! Jeg skal snart begynne med mønsteret (A.4) og lurer på hvor jeg begynner med det? Når jeg nå holder på med A.3 og raglan har liksom første maske i første erme blitt starten på en omgang. Usikker på om dette er rett, så enda mer usikker på hvor jeg burde begynne med A.4. Håper dere kan hjelpe meg :) mvh Johanne
03.04.2018 - 12:15DROPS Design svaraði:
Hei Johanne. Du feller til første erme på starten/slutten av omgangen, så når du strikker omgangen der ermene festes blir den første maskene på ermet starten av omganen. Det er bare å begynne med A4 etter siste omgang med A3. Det blir en liten forsyvning av mønsteret akkurat i skjøtet mellom omgangene, det er vanlig. Et tips er å velge å starte omgangen på bakstykket heller enn forstykket. God fornøyelse.
05.04.2018 - 13:41
Ulrike skrifaði:
Welche größe muss ich stricken, wenn ich normalerweise Größe 42 trage? der pullover sollte weit genug sein, um ein shirt darunter zu tragen aber sollte seine form behalten, danke
03.04.2018 - 10:19DROPS Design svaraði:
Liebe Ulrike, unten der Seite finden Sie eine Maßskizze mit allen Maßen für jede Größe. Vergleichen Sie diese Maßen mit den einer ähnlichen Kleidung die Sie gerne haben, um die passenden Größe zu finden. Mehr lesen Sie über Größe hier. Viel Spaß beim stricken!
03.04.2018 - 13:51
Ingeborg Heinzel skrifaði:
Hallo besteht die Möglichkeit den Pullover stricken zu lassen? Wenn ja, was würde das kosten. Mit freundlichen Grüßen Ingeborg
23.03.2018 - 14:23DROPS Design svaraði:
Leider können wir Ihnen keinen Strickservice anbieten. Da müssten Sie sich im Freundeskreis umhören oder vielleicht eine Kleinanzeige in die Zeitung setzen?
23.03.2018 - 21:37
Ingeborg skrifaði:
Hallo,\\r\\nbesteht die Möglichkeit den Pullover Nordic Summer fertig stricken zu lassen und was würde das kosten.?\\r\\n\\r\\nLiebe Grüße \\r\\nIngeborg
23.03.2018 - 14:17
Jette Gerhardsen skrifaði:
Hei I diagram a finner jeg ikke ,skjønner ikke forklaring på symbolet midt på det hvor du lager hullmønster Mvh Jette
21.03.2018 - 07:50
Kristin skrifaði:
Wie strickt man die Zunahme der 2 Maschen an der unteren Ärmelmitte? 2 Umschläge hintereinander oder 1 Masche dazwischen?
07.02.2018 - 07:37DROPS Design svaraði:
Liebe Kristin, die Maschenanzahl ist eine gerade anzahl, ich würde 2 M zwischen den Umschläge stricken. Viel Spaß beim stricken!
07.02.2018 - 09:05
Ann Fagerström skrifaði:
Hej! Jag förstår inte diagrammet, det känns som att symbolerna fattas.
17.12.2017 - 20:40DROPS Design svaraði:
Hej, du börjar med A.1, stickar första varv rät, varv 2 avig osv, 7:e varv stickar du 2 m räta tillsammans med vit, 1 omslag, 2 räta tillsammans, 1 omslag osv. Lycka till!
18.12.2017 - 14:14Kim Allen skrifaði:
Hi....please disregard my question about doing the neck elevation...I figured it out. Thanks!
29.10.2017 - 18:47
Nordic Summer#nordicsummersweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-33 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. AÐSNIÐ: Til þess að flíkin verði aðsniðin þá er lykkjum fækkað við 4 prjónamerki. Fækkið lykkjum á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ÚTAUKNING: Aukið út þar sem flíkin er aðsniðin við 4 prjónamerk þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir Fækkið lykkjum á undan 2 lykkjum á undan A.3 þannig: 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 200-220-240-264-288-316 lykkjur á hringprjóna nr 2,5 með litnum hvítur DROPS Baby Merino. Prjónið mynstur eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir fyrstu 24-28-31-36-42-48 lykkjur, 2. prjónamerki er sett eftir næstu 52-54-58-60-60-62 lykkjur, 3. prjónamerki er sett eftir næstu 48-56-62-72-84-96 lykkjur og 4. prjónamerki er sett eftir næstu 52-54-58-60-60-62 lykkjur (nú eru 24-28-31-36-42-48 lykkjur eftir í umferð eftir síðasta prjónamerki). Fellið nú af fyrir AÐSNIÐ við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 172-192-212-236-264-292 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum er aukið út eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNINGU (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6.-8.-8. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 200-220-240-264-288-316 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-39-39-40-41-43 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-5-6-6-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-100-110-120-132-146 lykkjur sléttprjón (= framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-100-110-120-132-146 lykkjur sléttprjón (= bakstykki) og fellið af síðustu 5-5-5-6-6-6 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-56-58-60-62-64 lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum hvítur. Prjónið mynstur eftir A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 lykkjur við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu í 9-7-7-6-6-5 hverri umferð alls 12-14-14-16-16-17 sinnum = 80-84-86-92-94-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-40-39-38-38-38 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þannig: Haldið áfram með litnum hvítur og prjónið lykkjur frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju og 1 prjónamerki í síðustu lykkju á ermi, prjónið lykkjur frá framstykki, prjónið lykkjur frá hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju og 1 prjónamerki í síðustu lykkju á ermi og prjónið lykkjur frá bakstykki = 320-348-372-400-428-464 lykkjur á prjóni og 4 prjónamerki í stykki. Prjónið nú sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er A.3 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við lykkju með prjónamerki í). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 6-7-8-8-9-9 sinnum = 272-292-308-336-356-392 lykkjur á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 20-26-28-32-36-40 lykkjur jafnt yfir = 252-266-280-304-320-352 lykkjur á prjóni. Prjónið nú mynstur hringinn eftir A.4 JAFNFRAMT 180-190-200-228-240-264 lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt með litnum hvítur JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-8-28-30-44 lykkjur jafnt yfir = 176-184-192-200-210-220 lykkjur. Prjónið nú mynstur eftir A.5 – veljið mynstur fyrir rétta stærð. Þegar A.5 hefur verið prjónað er prjónuð upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Byrjið við miðju að aftan og prjónið slétt (með litnum hvítur) þar til 14-14-16-16-18-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið slétt til baka þar til 14-14-16-16-18-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið slétt þar til 30-30-34-34-38-42 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið slétt til baka þar til 30-30-34-34-38-42 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið slétt þar til 46-46-52-52-58-64 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið slétt til baka þar til 46-46-52-52-58-64 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið slétt þar til 62-62-70-70-76-86 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið slétt til baka þar til 62-62-70-70-76-86 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið slétt til baka að byrjun umferðar. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið mynstur hringinn yfir allar lykkjur eftir A.1 JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 30-28-36-34-44-44 lykkjur jafnt yfir = 146-156-156-166-166-176 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt laust af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nordicsummersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.