Marianne skrifaði:
Jeg skal begynne å strikke bolen nå. Skal vrangmaskene på sidene alltid strikkes vrang helt til bolen er ferdig?
30.11.2014 - 20:31DROPS Design svaraði:
Hej Marianne. Ja, du skal strikke vrang hele vejen.
01.12.2014 - 14:45Мария skrifaði:
Есть описание на русском языке Drops 157-27
19.11.2014 - 20:04DROPS Design svaraði:
Уважаемая Мария. В настоящее время нет описаний моделей на русском языке.
01.04.2016 - 17:07
Antonella skrifaði:
Errore! Dopo gli aumenti per il corpo del raglan avete scritto: "Ora ci sono 32-36-40-44-48-54 m sul dietro e 20-22-24-26-28-31 m sul davanti e sul dietro". Ma secondo la versione inglese, e anche seguendo le indicazioni, il numero di maglie è lo stesso per davanti e dietro!!!
11.10.2014 - 15:27DROPS Design svaraði:
Buonasera Antonella. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
11.10.2014 - 15:59C Darmanin skrifaði:
Very trendy over leggings or skinnies. Rather comfy too.
05.06.2014 - 10:04
Marie-christine D skrifaði:
Encore un grand pull sympa mais le joli point demande t il beaucoup de laine ? en tout cas pull confortable comme je les aime. Merci
04.06.2014 - 07:51
Day After Day#dayafterdaysweater |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cloud eða DROPS Snow í perluprjóni og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-27 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MÆLING: Vegna þyngdar á garninu er öll mæling gerð þegar stykkinu er haldið uppi annars verður flíkin of löng. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstrið séð frá réttu. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við A.1 í hverri laskarönd. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat. ATH: Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í perluprjóni. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat. ATH: Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn með perluprjóni ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju og 2 l í perluprjóni: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l kantlykkja í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 44-48-52-56-60 l á hringprjóna nr 10 með Cloud eða Snow. Prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir = 54-58-62-66-70-74 l. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið með byrjun frá laskalykkju í hægri hlið að aftan: Setjið prjónamerki, A.1 (= 4 l), 1 l ykkja slétt, A.1 (= ermi), setjið prjónamerki, 18-20-22-24-26-28 l PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= framstykki), setjið prjónamerki, A.1, 1 l sl, A.1 (= ermi), setjið prjónamerki, 18-20-22-24-26-28 l perluprjón (= bakstykki). Haldið svona áfram, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! ATH! Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LASKALÍNA FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í annarri hverri umf 2-3-4-5-6-8 sinnum, í 4. hverri umf 1-1-1-2-2-3 sinnum og í 6. hverri umf 4-4-4-3-3-2 sinnum. Nú eru 32-36-40-44-48-54 l á fram- og bakstykki. LASKALÍNA Á ERMI: Aukið út í hverri umf 3-4-4-5-5-6 sinnum, í annarri hverri umf 7-7-8-8-9-9 sinnum og í 4. hverri umf 4 sinnum í öllum stærðum. Nú eru 37-39-41-43-45-47 l á hvorri ermi. Þegar útaukningu er lokið eru 138-150-162-174-186-202 l á prjóni. Stykkið mælist nú 27-28-29-30-31-32 cm. LESIÐ MÆLING! Setjið nú fyrstu 37-39-41-43-45-47 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 32-36-40-44-48-54 l (= framstykki), setjið næstu 37-39-41-43-45-47 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 32-36-40-44-48-54 l (= bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 78-86-94-102-110-122 l fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram í perluprjón yfir næstu 3 l, 1 l br (= hlið), setjið prjónamerki í þessa l, perluprjón yfir næstu 38-42-46-50-54-60 l, 1 l br (= hlið), setjið prjónamerki í þessa l, perluprjón yfir næstu 38-42-46-50-54-60 l í umf. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við br l með prjónamerki í hvorri hlið - LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm = 86-94-102-110-118-130 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm – Munið eftir MÆLING! Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Setjið til baka 37-39-41-43-45-47 l af þræði á hringprjóna nr 10. Haldið nú áfram í perluprjóni yfir allar l. Fitjið upp 4 nýjar l í lok á 2 næstu umf = 45-47-49-51-53-55 l. ATH: Nýjar l eru prjónaðar inn í perluprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið! Í næstu umf er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 4 sinnum til viðbótar = 35-37-39-41-43-45 l. Fellið nú af með 4½-3½-3½-3-3-3 cm millibili 6-7-7-8-9-9 sinnum = 23-23-25-25-25-27 l. Þegar ermin mælist 39-38-38-38-38-37 cm frá nýju l sem fitjaðar voru upp undir ermum – Munið eftir MÆLING – skiptið yfir á hringprjóna nr 9. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið saman op undir ermum. Klippið frá og festið enda. HÁLSMÁL: Takið upp 44-48-52-56-60-64 l (= 1 l í hverja l í uppfitjunarkanti) í kringum hálsmál á hringprjóna nr 9 með Cloud eða Snow. Prjónið 2 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 48-50-50-52-52-54 l. Prjónið næstu 4 umf í garðaprjóni. Fellið af. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dayafterdaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.