Berit Fredriksen skrifaði:
Flot - men dog med en uforståelig ting for mig. Mærketråde og indtagninger ikke beskrevet så det giver mening - dels samme mærketråde i to fors str., dels start 45 m inden midt bak, derefter hver 18. m? Mod højre eller venstre? Dels hvorfor 45 m på den ene side af midt bag og 118 på anden side hvis man fortsætter mod højre, eller også mærkelig hvis anden vej. mvh
16.10.2014 - 17:03DROPS Design svaraði:
Hej Berit, mærketrådene sætter du bagpå. Enkelt forklaret så sætter du 3 mærketråde på hver side af midt bagpå med 18 m imellem hver (det bliver da 9 m på hver side af midtermasken bagpå for at få 18 m). God forøjelse!
23.10.2014 - 11:12Luz Stella skrifaði:
!!! HERMOSO!!!
15.07.2014 - 04:38
Evi skrifaði:
Wunderschönes Model - werde ich für meine Schwiegertöchter stricken
25.06.2014 - 14:00Heather Haswell skrifaði:
Can't wait for this ...will make lots in different colours
15.06.2014 - 20:58
Susan skrifaði:
Hele mooie kleur en een elegant setje.
14.06.2014 - 18:12
Inês skrifaði:
Muito bonito.
08.06.2014 - 23:35
Nathalex skrifaði:
Très joli modèle qui doit être très doux en alpaga.
03.06.2014 - 11:57
Chloe#chloeset |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa, axlarskjól og handstúkur úr DROPS Alpaca í garðaprjóni og stroffprjóni.
DROPS 158-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BYLGJU GARÐAPRJÓN 1 *3 umf br, 4 umf sl *, endurtakið frá *-*. BYLGJU GARÐAPRJÓN 2: *3 umf br, 8 umf sl *, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan hverju prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir, prjónið 1 l sl. Fækkið lykkjum á eftir hverju prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. AXLARSKJÓL: Fitjið laust upp 253-273 l á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið síðan BYLGJU GARÐAPRJÓN-1 – sjá útskýringu að ofan, yfir fyrstu 120-130 l, næstu 12 l eru prjónaðar þannig: 2 l sl, 3 l br, 2 l sl (= miðja að framan), 3 l br og 2 l sl, bylgju garðaprjón yfir næstu 121-131 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og haldið áfram með bylgju garðaprjón og stroffprjón þar til prjónuð hefur verið með 1 umferð með bylgju garðaprjóni á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA OG LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Eftir heila umf með bylgju garðaprjóni á hæðina eru prjónaðar 5 l í hvorri hlið við stroff fram með stroffmynstri, þ.e.a.s. 5 l á undan stroffi eru prjónaðar 2 l sl, 3 l br, eftir stroffið eru prjónaðar 3 l br og 2 l sl. JAFNFRAMT eru sett 6 prjónamerki í stykkið. Fyrsta prjónamerkið er sett í 45 l á undan byrjun á umf, hin prjónamerkin eru sett með 18 l millibili. Það á að fækka lykkjum við þessi prjónamerki í fyrstu umf í hverri mynstureiningu í sléttprjóni, en til skiptis 6 l og 12 l. Þegar fækkað er um 6 l er lykkjum fækkað til skiptis á undan og á eftir prjónamerki (þ.e.a.s. fækkið um 1 l við hvert prjónamerki). Fækkið um 12 l á undan og á eftir prjónamerkin (þ.e.a.s. fækkið um 2 l við hvert prjónamerki). Haldið áfram að fækka lykkjum við prjónamerki og prjónið inn fleiri og fleiri l í stroffprjóni. Fækkið lykkjum alls 10 sinnum, eftir alla úrtöku eru 3 l eftir á milli prjónamerkja. Haldið áfram að prjóna inn l í stroffprjóni þar til ekki eru neinar l eftir í bylgju garðaprjóni. Prjónið síðan stroffprjón þar til stroffið mælist ca 8 cm mælt frá síðustu umf þar sem bylgju garðaprjón endar (= miðja að aftan). Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 120-130 l á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff með 3 l br og 2 l sl þar til stykkið mælist 3-4 cm. Prjónið 1 umf slétt og fækkið jafnframt um 1-4 l jafnt yfir = 119-126 l. Prjónið nú BYLGJU GARÐAPRJÓN 1 – sjá útskýringu að ofan, alls 4 sinnum. Prjónið nú 4 umf slétt. Prjónið BYLGJU GARÐAPRJÓN 2 – sjá útskýringu að ofan, 4 sinnum eða þar til stykkið mælist ca 22 cm á hæðina aðeins strekkt, passið uppá að prjónuð sé heil umferð með bylgju garðaprjóni. Prjónið síðan 3 umf br. Setjið 7 prjónamerki í stykkið með 17-18 l á milli prjónamerkja. Héðan er prjónað áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er fækkað um 2 l við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum í 3. hverri umf alls 4 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 3 sinnum = 21-28 l eftir á prjóni. Í næstu umf er prjónað 1-0 l sl og prjónið l 2 og 2 slétt saman = 11-14 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HANDSTÚKA: Fitjið laust upp 48 l á sokkaprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið BYLGJU GARÐAPRJÓN 1 - sjá útskýringu að ofan, alls 7 sinnum, síðan eru prjónaðar 4 umf slétt. Prjónið nú BYLGJU GARÐAPRJÓN 2 – sjá útskýringu að ofan, alls 6 sinnum. Endið á 3 umf br, 1 umf sl og fellið laust af með sl. Prjónið aðra handstúku á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chloeset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.