Helene skrifaði:
Bonjour j'ai un petit probleme je voudrais savoir je dois faire 2 rang de cote ou 4 rang de point mousse pour le bas du gilet
31.07.2014 - 22:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Hélène, on tricote 2 rangs end pour avoir 1 côte mousse, en bas du gilet, on tricote 4 rangs endroit pour avoir 2 côtes mousse. Bon tricot!
01.08.2014 - 09:39ΦΑΝΗ skrifaði:
STEEL WAITING FOR TRANSLATION IN GREEK!!!!
15.05.2014 - 16:11
Malena skrifaði:
Just curious as to the source of the name Malena here - is it a common Scandinavian name? I was named after my grandmother. Oh yeah - like the sweater, too!
12.02.2014 - 19:29DROPS Design svaraði:
Hi Malena :) - not common, approx 1100 woman in Sweden has this name. It is a Nordic version of the Hebrew name Magdalena which means "woman from Magdala" (http://en.wikipedia.org/wiki/Magdala)
13.02.2014 - 00:32
Marianne CONRAD skrifaði:
Joli
28.12.2013 - 18:37
Tammy skrifaði:
Love it. Can be dressed up and down. Wear with jeans or dresses. Very versatile.
23.12.2013 - 04:33
Haase Marina skrifaði:
Sehr Schick
21.12.2013 - 21:24
Maija skrifaði:
So beuatiful!
19.12.2013 - 10:02
Eva Schneider skrifaði:
Beautiful! Elegant and comfortable. I would like to knit it!
14.12.2013 - 09:01
RENOUF skrifaði:
Ce modèle est trop top, je pense que je le tricoterais
13.12.2013 - 19:48
Malena Cardigan#malenacardigan |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Safran með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 155-21 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S/M: 12, 19, 26, 33, 40, 47 og 49 cm. STÆRÐ L/XL: 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 53 cm. STÆRÐ XXL/XXXL: 7, 15, 23, 31, 39, 47, 55 og 57 cm. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan 1.- 3.-5. og 7. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l á eftir 2.-4.- 6. og 8. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 242-298-354 l á hringprjóna nr 3 með Safran. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú frá réttu – þannig: Prjónið 8 l garðaprjón (= kantur að framan), 1 l sléttprjón, A.1 (= 14 l) yfir næstu 224-280-336 l (= 16-20-24 mynstureiningar á breiddina), 1 l sléttprjón, endið á 8 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram með þetta mynstur, kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka og sléttprjónaða l í hvorri hlið er prjónuð í sléttprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 12-11-7 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 32-31-30 cm, stillið af að næsta umf sé umf 13 eða 27 í mynstri A.1, prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 8 l garðaprjón (= kantur að framan), 1 l sléttprjón, A.1 yfir næstu 52-66-80 l (ATH: Prjónið sléttprjón yfir síðustu l, ekki 2 l slétt saman eins og í mynstri), fellið af næstu 8 l (= þær síðustu 4 og fyrstu 4 l í A.1), byrjið A.1 á eftir 4 l í mynstri (ATH: Ekki byrja með 2 l slétt saman og 1 uppslætti eins og í mynstri) og prjónið síðan A.1 yfir næstu 104-132-160 l (ATH: Prjónið sléttprjón yfir síðustu l, ekki 2 l slétt eins og í mynstri), fellið af næstu 8 l (= þær 4 síðustu og þær 4 fyrstu l í A.1), byrjið á A.1 á eftir 4 l í mynstri (ATH: Ekki byrja á 2 l slétt saman og 1 uppslætti yfir fyrstu 4 l eins og í mynstri) og prjónið síðan A.1 yfir næstu 52-66-80 l, 1 l sléttprjón, endið á 8 l garðaprjón (= kantur að framan). Fækkið um 8 l á hvorri hlið á stykki og það eru 226-282-338 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 86-100-114 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Safran. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan frá réttu – þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 (= 14 l) yfir næstu 84-98-112 l (= 6-7-8 mynstureiningar á breiddina) og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru fyrstu 13 umf prjónaðar 1 sinni til viðbótar JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af 5 l í hvorri hlið á stykki (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) = 76-90-104 l á prjóni. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sömu hringprjóna nr 3 eins og fram- og bakstykki = 378-462-546 l. Prjónið nú þannig – byrjið á 14. umf (= frá röngu): Prjónið 8 l garðaprjón (= kantur að framan), 1 l sléttprjón, A.1 (= 14 l) yfir næstu 42-56-70 l, A.3 (= 10 l) JAFNFRAMT er sett 1. prjónamerki eftir 9 l, A.2 (= 10 l) JAFNFRAMT er sett 2. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 56-70-84 l, A.3 JAFNFRAMT er sett 3. prjónamerki eftir 9 l, A.2 JAFNFRAMT er sett 4. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 84-112-140 l, A.3 JAFNFRAMT er sett 5. prjónamerki eftir 9 l, A.2 JAFNFRAMT er sett 6. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 56-70-84 l A.3 JAFNFRAMT er 7. prjónamerki sett eftir 9 l, A.2 JAFNFRAMT er 8. prjónamerki sett eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 42-56-70 l og endið á 1 l sléttprjón og 8 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT byrjar laskaúrtaka – sjá ÚRTAKA – þannig: Fellið af 1 l á undan 1. -3.-5. og 7. prjónamerki og 1 l á eftir 2.- 4.-6. og 8. prjónamerki í hverri umf frá réttu (= 8 l færri) alls 28-37-44 sinnum = 154-166-194 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í 3. umf með garðaprjóni er fækkað um 22-26-44 l jafnt yfir þannig að það verða 132-140-150 l á prjóni. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #malenacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.