DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 155-22
DROPS Design: Mynstur nr e-223
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S /M - L /XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
300-350-400 gr litur nr 17, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan 1.-3.-5. og 7. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 224-280-336 l á hringprjóna nr 3 með Safran. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú A.1 (= 14 l) yfir allar l (= 16-20-24 mynstureiningar á breiddina). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 32 cm, stillið af að næsta umf sé umf 13 eða 27 í mynstri A.1, prjónið þannig: A.1 yfir fyrstu 52-66-80 l (ATH: Prjónið sléttprjón yfir síðustu l, ekki 2 l slétt saman eins og í mynstri), fellið af næstu 8 l (= þær síðustu 4 og fyrstu 4 l í A.1), byrjið á A.1 eftir 4 l í mynstri (ATH: Prjónið ekki 2 l slétt saman og 1 uppslátt eins og í mynstri) og prjónið síðan A.1 yfir næstu 104-132-160 l (ATH: Prjónið sléttprjón yfir síðustu l, ekki 2 l slétt saman eins og í mynstri), fellið af næstu 8 l (= síðustu 4 og fyrstu 4 l í A.1), byrjið á A.1 á eftir 4 l í mynstri (ATH. Ekki prjóna 2 l slétt saman og 1 uppslátt yfir fyrstu 4 l eins og í mynstri) og prjónið síðan A.1 yfir síðustu 52-66-80 l. Nú hafa verið felldar af 8 l í hvorri hlið á stykki og nú eru 208-264-320 l eftir á prjóni.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 86-100-114 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Safran. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan frá réttu – þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 (= 14 l) yfir næstu 84-98-112 l og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru fyrstu 13 umf prjónaðar 1 sinni til viðbótar JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af 5 l (ATH: Prjónið nú sléttprjón yfir síðustu l í A.1 áður en fellt er af) í hvorri hlið á stykki (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) = 76-90-104 l á prjóni. Klippið frá og festið enda.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sömu hringprjóna nr 3 eins og fram- og bakstykki = 360-444-528 l. Prjónið nú þannig – byrjið við miðju að aftan í 14. umf: A.1 (= 14 l) yfir næstu 42-56-70 l, A.2 (= 10 l) JAFNFRAMT er sett 1. prjónamerki eftir 9 l, A.3 (= 10 l) JAFNFRAMT er sett 2. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 56-70-84 l, A.2 JAFNFRAMT er sett 3. prjónamerki eftir 9 l, A.3 JAFNFRAMT er sett 4. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 84-112-140 l, A.2 JAFNFRAMT er sett 5. prjónamerki eftir 9 l, A.3 JAFNFRAMT er sett 6. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 56-70-84 l A.2 JAFNFRAMT er 7. prjónamerki sett eftir 9 l, A.3 JAFNFRAMT er 8. prjónamerki sett eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir síðustu 42-56-70 l.

Haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT byrjar úrtaka fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA – þannig: Fækkið um 1 l á undan 1.-3.-5. og 7. prjónamerki og 1 l á eftir 2.-4.-6. og 8. prjónamerki í annarri hvorri umf frá réttu (= 8 l færri) alls 28-35-42 sinnum = 136-164-192 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í næst síðustu umf er fækkað um 20-40-58 l jafnt yfir þannig að það verða 116-124-134 l á prjóni. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum og ermasauma.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Andrea wrote:

Hallo Petra, dasselbe ist mir auch schon aufgefallen (habe bisher ca. 10 cm geschafft). Bin gespannt, ob festere Umschläge da Abhilfe schaffen.

05.04.2024 - 10:40

country flag Petra wrote:

Ich habe jetzt 20 cm in Runden gestrickt, Nadelstärke 3. Die Maschenprobe entsprach ganz genau den Vorgaben. Leider ist der Pullover jedoch viel breiter, ca. 3 cm. Was ist hier falsch? Nehme ich Nadelstärke 2 1/2 werde ich mit den Reihen in der Höhe nicht hinkommen. Was raten sie mir? Liebe Grüße Petra

02.04.2024 - 12:49

DROPS Design answered:

Liebe Petra, haben Sie immer noch die richtige Maschenanzahl bzw Reihenanzahl bei diesen 20 ersten cm? Sonnst beachten Sie daß Ihre Umschläge nicht zu locker gestrickt wurden, das kann ein Grund sein. Viel Spaß beim Stricken!

03.04.2024 - 08:17

country flag Ela wrote:

Uważam ten top za jeden z najpiękniejszych, zrobilam biały 2 lata temu i ciągle mi się podoba, będą robić czarny, polecam, pieknie leży, jest lekko luźny, rekawki nie są przylegające, warto zrobić trochę większy. Piękny ażur.

07.08.2022 - 08:37

country flag Annie Kuijpers wrote:

Ik begrijp niets van de afmetingen. Er wordt in het patroon maar 1 keer een hoogte in cm aangegeven en dat is voor het lijf bij 32 cm afkanten voor de mouwinzet maar als je de verschillende afmetingen leest in het patroon dan moeten de verschillende lijflengtes 54-58-62 cm zijn! Moet jezelf de verschillende lengtes van lijf/mouwen opmeten en zolang breien tot je die bereikt hebt? Meestal staat er in een patroon tot hoeveel cm je moet breien bij de verschillende maten!

02.05.2021 - 14:44

DROPS Design answered:

Dag Annie,

De totale lengte van het lijf is inderdaad 54-58-62, maar de lengte van de opzet tot waar je afkant voor de mouw, dus de oksel is korter.

05.05.2021 - 09:08

country flag Yvonne wrote:

Ist es möglich den Pulli In Runden zu stricken also in ranglan.

07.05.2019 - 20:18

DROPS Design answered:

Liebe Yvonne, der Pulli wird hier in Runden gestrickt, zuerst stricken Sie Rumpfteill bis zum Armlöcher, dann legen Sie die Arbeit still und stricken die beiden Ärmel, dann wird die Passe in Runden gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

08.05.2019 - 07:27

country flag Mary Meier-Roeder wrote:

Ich habe 2 mal eine Maschenprobe sticky. State makes mit 3.5 mm Rundnadel und ich kam auf 10x9 cm. Dann habe ich es probiert mit eine 3.0 mm Rundstricknadel und habe 9x9 cm bekommen. Was mache ich hier falsch? Sind 24 Maschen wirklick korrekt?

25.02.2019 - 14:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Meier-Roeder, es sieht so aus, daß Sie die richtige Maschenprobe in der Breite mit der Nadeln 3,5 mm haben, versuchen Sie die Maschen etwas höher zu stricken - Gerne können Sie Ihre Maschenprobe mal waschen und blockieren, um zu prüfen, welchen Nadel am besten passt. Viel Spaß beim stricken!

25.02.2019 - 16:09

country flag Vali wrote:

Bonjour, ce point est affreux à faire. Après de nombreux essais ça ne donne rien de beau. Dommage car le pull est mignon.

23.02.2019 - 15:54

DROPS Design answered:

Bonjour Vali, lisez-vous bien les diagrammes comme il le faut? A.1 se tricote en rond en se répétant tout simplement en largeur, commencez à lire les diagrammes en bas à droite et lisez tous les rangs de droite à gauche (on tricote ici en rond). Quand vous tricoterez A.2 et A.3 veillez bien à ajuster le rang comme il faut pour que les rangs ajourés de chaque diagramme se tricotent tous sur le même rang. Bon tricot!

25.02.2019 - 12:33

country flag Ele wrote:

Guten Tag, die Ärmel möchte ich in Runden stricken. Wie füge ich dann die Ärmel in das Rumpfteil ein und mit welcher Musterfolge? Ist das möglich? Danke für die Antwort. Viele Grüße Ele

23.04.2018 - 18:25

DROPS Design answered:

Liebe Ele, um die Ärmel in der Runde zu stricken, würde ich einfach die beiden Randmaschen nicht anschlagen und Muster stricken wie beschrieben. Dann die Ärmel wie in diesem Video mit dem Rumpfteil auf die Nadel nehmen. Viel Spaß beim stricken!

24.04.2018 - 08:46

country flag Valérie wrote:

Bonjour, j'en suis à "à 32 cm de hauteur totale ajuster pour que le tour suivant soit le 13ème tour du diagramme". Je tombe sur un rang n°2. Dois-je diminuer de quelques rangs (et avoir un pull un peu court) ou tricoter jusqu'au 13ème rang au risque de ne pas avoir assez de fil pour finir le pull ? Merci.

16.03.2018 - 09:27

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, vous devez ajuster après le 13ème ou le 27ème rang de A.1, ainsi vous pouvez arrêter après un motif complet en hauteur soit les 27 rangs, sans en recommencer un nouveau. Bon tricot!

16.03.2018 - 09:52

country flag Valérie wrote:

BOnjour, merci de votre réponse mais je ne suis pas d'accord. Les manches doivent se tricoter en aller retours donc si je monte les mailles comme vous le montrez dans les vidéos (méthode continentale), le 1er rang se fait donc sur l'envers et A1 aussi. Il manque 1 rang dans les explications, non ? Merci.

27.10.2017 - 11:56

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, quelle que soit la méthode de montage, vous tricotez 2 côtes mousse = 4 rangs endroit en commençant par 1 rang sur l'endroit, à la fin des 4 rangs, votre ouvrage est sur l'endroit et vous pouvez tricoter le 1er rang de A.1 sur l'endroit (et tous les rangs pairs sur l'envers). Bon tricot!

27.10.2017 - 14:16